Fréttablaðið - 02.04.2016, Blaðsíða 32
Hvert eigum við að fara? þessir tveir með allt sem þeir eiga,
svefnpokana, vettlinga, nokkrar niðursuðudósir, prímus,
og götóttar peysur, á leið eftir aðalgötunni í norðurenda
búðanna eftir að lögreglan jafnaði Hús þeirra við jörðu.
Þessir strákar, nýkomnir alla leið frá Afganistan, reisa sér húsaskjól á besta stað í bænum, við aðalgötuna inn í bæinn. Lögreglumenn passa upp á að gröfur fái að jafna búðirnar við jörðu.
Rétttrúnaðarkirkja, fyrir hina réttlátu, messa alla
sunnudaga. Reist á sama hátt og íbúðarhús bæjarins.
Einföld grind klædd plastdúk. Fallegar freskur inni.
Vinur vor hann Yohannes horfir á hús vinar síns verða eldi að bráð.
og Sýrland hingað að Ermarsundinu, ein. Konur og börn eru
um þriðjungur, en þau eru minna á ferðinni í þessari drullu og
kulda. Halda sig heima.
Frakkland hefur sloppið vel við flóttamannaflóðbylgjuna
miðað við stóru Evrópuþjóðirnar. Á síðasta ári, sóttu 79 þús-
und um hæli þar, hundrað þúsund færri en komu til Svíþjóðar,
og milljón færri en komu til Þýskalands, á sama tíma.
„Hér vil ég ekki vera. Ég hef komist þrisvar inn í vöruflutn-
ingabíl eftir ótal tilraunir til að komast yfir,“ segir Yohannes.
„Löggan hefur handtekið mig í öll skiptin og síðan sleppt mér.
Ég gefst ekki upp, ég ætla mér yfir. Þar eru tveir vinir mínir
hólpnir. Annar meira að segja kominn í svarta vinnu, í Leeds.
Ég tala hvorki frönsku eða þýsku. Þarna hinum megin get ég
allavega bjargað mér, byrjað nýtt líf.“
En það getur verið þrautin þyngri að komast yfir. Frakkar og
Bretar hafa víggirt alla vegi sem liggja að göngunum. Landa-
mærin rétt norðar, að Belgíu, eru meira að segja undir ströngu
eftirliti. „Ég þekki einn afganskan strák, hér í næstu götu, sem
hefur náð 30 sinnum að laumast inn í trukk til að komast yfir.
Hann hefur alltaf náðst, en hann ætlar sér yfir, þrátt fyrir að
hafa misst sinn besta vin, sem kafnaði undir Ermarsundinu.“
Já, hinum megin er fyrirheitna landið. Yohannes horfir hátt,
og segir: „Hér er ekkert nema drulla og vosbúð, en himinninn
er eins og heima.“
Stundum velti ég fyrir mér hvort hann hafi komist yfir, kom-
ist einhvern tíma yfir. Og allir hinir.
Og ekki hjálpa þessu vesalings fólki árásirnar í Brüssel á
dögunum. Margir setja alla flóttamenn undir einn hatt, hatt
haturs og hryðjuverka.
↣
2 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r32 h e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð