Fréttablaðið - 02.04.2016, Blaðsíða 105
Hvað? Origami-smiðja fyrir alla fjöl-
skylduna
Hvenær? 13.00
Hvar? Borgarbókasafnið, Sólheimum
Jón Víðis kynnir leyndardóma ori-
gami-pappírsbrots fyrir börnum
og fullorðnum. Origami er japönsk
pappírslist og gengur út á miserfið
pappírsbrot sem eru svo endur-
tekin á ýmsan máta. Ekkert þarf
nema pappír, skæri og þolinmæði.
Allir velkomnir og allur efniviður
er á staðnum.
Hvað? Skrímslatjáning
Hvenær? 13.30
Hvar? Menningarhús, Gerðubergi
Leikkonan Ólöf Sverrisdóttir leiðir
stutta leiklistarsmiðju fyrir börn
á aldrinum 5-8 ára þar sem leikið
verður með þemu úr bókum þar
sem koma góðar og erfiðar til-
finningar í samskiptum skrímsla.
Smiðjan stendur yfir í um klukku-
tíma og er spunasmiðja byggð á
brotum úr bókunum og börnin
setja upp lítinn leikþátt. Skráning
fer fram á olof.sverrisdottir@
reykjavik.is.
Opnanir
Hvað? Á mótum tveggja tíma
Hvenær? 13.00
Hvar? Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Sýningin Á mótum tveggja tíma
verður opnuð í Skoti Ljósmynda-
safns Reykjavíkur í dag. Sýninguna
prýða myndir eftir Díönu Júlíus-
dóttur en í Á mótum tveggja tíma
leitast ljósmyndarinn við að túlka
á ljóðrænan hátt hið einangraða
þorp Kulusuk. Frítt inn og allir vel-
komnir.
Hvað? Nýjar rannsóknir
Hvenær? 15.00
Hvar? Myndasögudeild Borgarbóka-
safns, Grófinni
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir opnar
myndasögusýningu í mynda-
sögudeild Borgarbókasafnsins í
Grófinni. Á sýningunni má finna
myndasögur úr nýjustu bók Lóu.
Fyrirlestrar
Hvað? Alþýðuhreyfingar, útópíur og
tálsýn tíðarandans
Hvenær? 14.00
Hvar? Efri hæð, Iðnó
Þröstur Ólafsson hagfræðingur
flytur erindið Alþýðuhreyfingar,
útópíur og tálsýn tíðarandans.
Fyrirlesturinn er einn átta fyrir-
lestra sem verða fluttir á næstu
mánuðum um Alþýðuflokk og
jafnaðarstefnu á vegum Bók-
menntafélags jafnarmanna í tilefni
af 100 ára afmæli Alþýðuflokksins.
Hvað? Handritaspjall Guðrúnar Nordal
Hvenær? 14.00
Hvar? Landnámssýning, Aðalstræti
Guðrún Nordal, forstöðumaður
Stofnunar Árna Magnússonar í
íslenskum fræðum, spjallar við
gesti um íslensk handrit. Spjallið
er hluti af fyrirlestraröð sem Árna-
stofnun stendur fyrir alla sunnu-
daga í apríl í samstarfi við Borgar-
sögusafn Reykjavíkur. Frítt er inn
á handritasýninguna Landnáms-
sögur – arfur í orðum á meðan á
handritaspjallinu stendur.
Hvað? Listaverkasöfn og listaverka-
safnarar
Hvenær? 15.00
Hvar? Kjarvalsstaðir
Kári Finnsson, listfræðingur
og aðstoðarritstjóri Viðskipta-
blaðsins, fjallar um samspil opin-
berra safna og safna hér heima
og erlendis og hvernig landið
liggur í listheiminum. Geirlaug
Þorvaldsdóttir segir frá listaverka-
söfnun föður síns, Þorvaldar Guð-
mundssonar. Listaverkasafnar-
arnir Ásmundur Hrafn Sturluson
og Sverrir Kristinsson sitja fyrir
svörum. Málþingið er haldið í
tengslum við sýninguna Jóhannes
S. Kjarval: Hugur og heimur.
Aðgangseyrir á sýninguna er 1.500
krónur.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Sunnudagur
3. apríl 2016
Tónlist
Hvað? Vortónleikar Barbörukórsins
2016
Hvenær? 17.00
Hvar? Hafnafjarðarkirkja
Flutt verða verk eftir Smára Óla-
son, Báru Grímsdóttur, Önnu
Þorvaldsdóttur, Þorkel Sigur-
björnsson, Stefán Arason og Sigurð
Sævarsson. Aðgangseyrir er 1.000-
2.000 krónur og enginn posi á
staðnum.
Hvað? Ryans: Ryan Sawyer & Ryan Ross
Smith
Hvenær? 21.00
Hvar? Mengi, Óðinsgötu 2
Ryan Sawyer slagverksleikari og
Ryan Ross Smith raftónlistar-
maður mynda saman dúettinn
Ryans sem gerir út frá New York.
Miðaverð er 2.000 krónur.
Uppákomur
Hvað? Finnsk sögustund
Hvenær? 12.00
Hvar? Norræna húsið
Finnsk sögustund fyrir börn í
barnabókasafni Norræna hússins.
Hvað? Heimilislegir sunnudagar
Hvenær? 13.00
Hvar? Kex hostel
Elva Rut og Eydís Arna, kennarar
og eigendur Plié Listdansskóla,
stýra skemmtilegu jóga fyrir alla
fjölskylduna. Allir velkomnir og
enginn aðgangseyrir.
Hvað? Leiðsögn
Hvenær? 15.00
Hvar? Listasafn Árnesinga
Steinunn Aldís Helgadóttir gengur
um sýninguna Keramík og segir
frá fjölbreyttum mótunarað-
ferðum, glerungi og brennslu leir-
listarinnar.
Hvað? Syngjum saman
Hvenær? 15.00
Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg 10
Sigurkarl Stefánsson stjórnar sam-
söng í klukkustund í Hannesar-
holti. Miðaverð er 1.000 krónur.
M e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 57L A U g A R D A g U R 2 . A p R í L 2 0 1 6