Fréttablaðið - 02.04.2016, Blaðsíða 2
Veiðitímabilið á Íslandi hófst í gær í ágætu veðri. Sumir nýttu tækifærið og brunuðu að Vífilsstaðavatni til þess að kasta flugu. Fréttablaðið/anton brink
Veður
Í dag er útlit fyrir austangolu og skúrir
víða um land, en norðaustanlands
verður hiti það nálægt frostmarki
að úrkoman verður slydda eða snjó-
koma. Annars staðar verður hiti 3 til 9
stig, hlýjast vestan til. sjá síðu 50
Betri ferð
- vita.is
fyrir betra verð
Verð frá:
89.900
12.500 vildarpunktar
Á mann m.v. 2 fullorðna í stúdíó
á Tenerife Sur. Verð án
Vildarpunkta: 99.900 kr.
Vorsólin á
Tenerife
ferðaþjónusta Borgaryfirvöld
skora á Stjórnstöð ferðamála að
beita sér fyrir því að sveitarfélög fái
tekjur af ferðamönnum. Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri skrifar að
krafan sé ekki flókin: gistináttagjald
renni til sveitarfélaga.
„Þetta er einfalt í innheimtu og
víða um heim rennur gistinátt-
agjaldið eða svokallaður „city tax“
til sveitarfélaga. Aukinn straumur
ferðamanna til landsins hefur í för
með sér gríðarlegt álag á gatna-
kerfi, umhirðu og innviði sveitar-
félaga. Tekjur af virðisaukaskatti,
gistináttagjaldi og öðrum sköttum
af ferðafólki renna hins vegar allar
í ríkissjóð en ekki til nærsam-
félagsins. Það er óásættanlegt. Það
er forgangsmál að breyta þessu og
mikilvæg prófraun á hvort tilvist
stjórnstöðvarinnar er yfirhöfuð til
einhvers,“ segir Dagur. Tilefni til-
lögunnar segir hann vera þær yfir-
lýsingar Ragnheiðar Elínar Árna-
dóttur, ráðherra ferðamála, að
sérstök gjaldtaka af ferðaþjónustu
sé ekki forgangsmál vegna þess að
ríkissjóður njóti nú þegar milljarða
skatttekna af ferðaþjónustu.
„Málflutningur ráðherra dregur
í raun fram hversu óréttlátt það er
að sveitarfélög beri fyrst og fremst
kostnað af aukinni ferðaþjónustu
á meðan ríkið hagnast gríðarlega.“
Krefjast
tekna af
túristum
Það er forgangsmál
að breyta þessu og
mikilvæg prófraun á hvort
tilvist stjórnstöðvarinnar er
yfirhöfuð til einhvers.
Dagur B. Eggertsson,
borgarstjóri
Veiðitímabilið hafið
Framkvæmdirnar á Hverfisgötu eiga að kosta reykjavíkurborg 109 milljónir króna.
Sjálfstæðismenn vilja að það fé fari í endurnýjun gervigrasvalla.
Fréttablaðið/anton brink
skipulagsmál Fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins í borgarráði Reykja-
víkurborgar vilja að fé sem nýta á í
framkvæmdir á Hverfisgötu milli
Klapparstígs og Smiðjustígs fari í að
skipta út dekkjakurli á gervigrasvöll-
um borgarinnar. Tillaga þess efnis
var lögð fram á fundi borgarráðs
Reykjavíkurborgar á fimmtudag.
„Við erum að ítreka það hvað það
er mikilvægt að forgangsraða rétt,“
segir Halldór Halldórsson, oddviti
Sjálfstæðisflokksins. Halldór telur
endurnýjun gervigrasvallanna með
dekkjakurlinu meira aðkallandi en
framkvæmdir á Hverfisgötunni og
vill að dekkjakurlinu verði skipt út
á einu ári.
S. Björn Blöndal, oddviti Bjartrar
framtíðar og formaður borgarráðs,
segir að þegar hafi verið samþykkt
aðgerðaáætlun um að leggja nýtt
gervigras og skipta út gúmmíkurli á
völlum Reykjavíkurborgar á næstu
árum. Á þessu ári verður skipt um
gras og gúmmíkurl á Víkingsvelli,
vorið 2017 á gervigrasvöllum Fylkis
og KR auk þess sem skipt verður um
gúmmíkurl á gervigrasvelli Fram í
Úlfarsárdal. Búist er við að kostnað-
urinn á næstu þremur árum nemi
rúmum 200 milljónum króna. Þá er
stefnt að því að endurnýja gervigras-
velli Leiknis árið 2018 og hjá ÍR árið
2019.
Það er hins vegar ótengt fyrirhug-
uðum framkvæmdum við Hverfis-
götu, að sögn Björns. „Það að tengja
þetta við gúmmíkurlsmálið er að
mínu mati nokkuð langsótt,“ segir
hann. „Nákvæmlega þessir peningar
fara ekki í það. Þarna er verið að slá
saman ótengdum málum.“
Tillaga um framkvæmdirnar við
Hverfisgötu var samþykkt í borgar-
ráði en tillögu sjálfstæðismanna
var frestað. Á Hverfisgötunni, milli
Klapparstígs og Smiðjustígs, á að
skipta um allar lagnir og brunna auk
þess sem gatan verður endurnýjuð
og hjólastígar lagðir beggja vegna
götunnar.
Björn segir fjármunina koma til
vegna þess að ekki takist að ljúka
framkvæmdum við Geirsgötu. Það
fé sem ekki verði nýtt þar eigi að fara
í framkvæmdirnar við Hverfisgötu.
Halldór gagnrýnir að féð til fram-
kvæmdanna við Hverfisgötu hafi
ekki verið á fjárhagsáætlun ársins.
Áætlaður kostnaður Reykjavíkur-
borgar af framkvæmdunum nemur
109 milljónum króna.
ingvar@frettabladid.is
Vilja dekkjakurl burt
í stað framkvæmda
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarráði Reykjavíkurborgar vilja skipta út
dekkjakurli á gervigrasvöllum í stað framkvæmda á Hverfisgötu. Formaður
borgarráðs segir fé sem ekki nýttist við aðrar framkvæmdir fara í Hverfisgötuna.
Þarna er verið að slá
saman ótengdum
málum.
S. Björn Blöndal,
formaður
borgarráðs
alþingi Eiríkur G. Guðmundsson
þjóðskjalastjóri segir að ekki hafi
reynt á ákvæði um 110 ára leynd yfir
gögnum sem sett var í lög um opin-
ber skjalasöfn árið 2014. „Engin gögn
njóta þessarar 110 ára verndar í dag.“
Framsóknarflokkurinn hyggst
leggja fram frumvarp um afnám
reglunnar svo varpa megi ljósi á gögn
sem varða uppgjör þrotabúa föllnu
bankanna. Hefur það verið tengt við
gögn sem varða færslu eignarhalds á
nýju bönkunum í hendur slitabúanna
sem þingmenn hafa aðgang að í lok-
uðu herbergi á nefndarsviði Alþingis.
Aðeins einn þingmaður í einu
má skoða gögnin sem bundin eru
trúnaði. Þingmenn mega ekki afrita
gögnin og ekki vitna í þau opinber-
lega en sín á milli kalla þingmenn
herbergið leyniherbergið. – tpt / þea
Aldrei reynt á
110 ára reglu
2 . a p r í l 2 0 1 6 l a u g a r D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð