Fréttablaðið - 02.04.2016, Blaðsíða 34
Ein ástæða fyrir notkun aflands
félaga er ef viðskiptin eru umfangs
mikil, til dæmis ef tveir eða fleiri
aðilar með lögheimili í ólíkum
löndum vilja stofna til sameiginlegra
fjárfestinga, þá getur borgað sig að
halda utan um þær í aflandsfélagi
fremur en að skrá eignina í heima
landi eins aðilans. Þá greiðir hver
aðili fyrir sig skatta þar sem hann
hefur lögheimili og þannig er komið
í veg fyrir mögulega tvísköttun að
hluta eða öllu leyti, segir Erlendur
Magnússon. Annar kostur við að
vera með eignir í aflandsfélögum er
að þau eru ekki bundin íslenskum
gjaldeyrishöftum, svo framarlega
sem þau eiga ekki viðskipti á Íslandi.
„Víðast hvar er hægt að greiða út
arð hvenær árs sem er, eigi fyrirtæki
óráðstafað eigið fé, en á Íslandi eru
hömlur á slíku,“ segir Erlendur.
„Hér áður fyrr gátu eigendur
aflandsfélaga frestað skattlagningu
hagnaðar af fjárfestingum sínum
með því að skrá þær í eigu slíkra fé
laga – frestað en ekki koma í veg fyrir
skattlagningu. Þess vegna var talað
um skattaskjól slíkra fjárfestinga.
Það er ekki lengur hægt, eftir að svo
kölluð CFClöggjöf var innleidd á Ís
landi, líkt og í flestum, ef ekki öllum
OECDlöndum,“ segir Erlendur.
Af hverju færir fólk
peningana sína í
skattaskjól?
Frá því á tíunda áratug síðustu
aldar og fram til dagsins í dag
hefur efnahags og framfarastofn
un OECD beitt sér gegn skatta
paradísum til þess að vinna bug á
því sem hún kallar „ósanngjarna
skattasamkeppni“. Þar sem lægri
skattstofn þýðir minni fjárfestingu
í innviðum og velferðarþjónustu
sem skilar lakari lífsskilyrðum í við
komandi ríki.
Samkvæmt upplýsingum frá
OECD hefur meiri árangur náðst
gegn skattsvikum og skattaskjól
um undanfarin ár en áratuginn
þar á undan. Frá því á G20fund
inum í London í apríl 2009 hefur
verið skrifað undir meira en þrjú
hundruð skattasamninga til að
mæta skilyrðum OECD um skatta
gagnsæi og upplýsingaflæði. Öll
OECD og G20lönd munu uppfylla
þessi skilyrði.
Í lok síðasta árs gaf OECD út
reglubók til að herða fyrirtækja
skattalöggjöf í því skyni að loka
fyrir alþjóðlegar leiðir til þess að
sniðganga skatta. Markmiðið er
að reglurnar komi í veg fyrir að
fyrirtæki geti fært sölutekjur og
hagnað milli landa í skattaskjól.
Hvernig er verið
að reyna að hindra
skattaskjól?
Tax Justice Network
áætlaði árið 2012 að
21-32 þúsund
milljarðar Bandaríkjadala
lægju í skattaskjólum víðs
vegar um heiminn.
Hins vegar er mjög erfitt að
áætla töluna nákvæmlega.
Hvað er skattaskjóls-
vandamálið stórt?
Þegar fjárfestar geyma peninga í
skattaskjólum og komast hjá því að
greiða skatta verður ríkissjóður við-
komandi landa af milljörðum.
Breski ríkissjóðurinn hefur
árlega orðið af
11,8 milljörðum
breskra punda vegna þess að
fimmtíu stærstu fyrirtæki Bret-
lands komu sér undan sköttum
samkvæmt áætlun Trade Union
Congress frá því fyrir nokkrum árum.
Sextíu stórfyrirtæki í
Bandaríkjunum settu
árið 2012 yfir
166 milljarða
dollara í aflandsfélög í
skattaskjóli
Það samsvarar yfir
40%
af hagnaði þeirra
skv. rannsókn á sextíu
stórfyrirtækjum.
15%
Bahamaeyjar
Panama
Bresku jómfrúareyjar
Dóminíka
Lúxemborg
Sviss
Máritíus
Cayman-eyjar
Nýja-Sjáland
Jersey
Saga
skattaskjóla
eins gömul og skatta
Skattaskjól eru svæði þar sem ekki eru greiddir tekjuskattar. Ekki er
ólöglegt að eiga peninga í aflandsfélögum, hins vegar er ólöglegt að
stinga undan skatti. Erfitt er að meta umfang skattaskjóla en talið er
að milli 21 þúsund og 32 þúsund milljarðar dollara liggi í skjóli.
M i k i ð h e f u r verið rætt um aflandsfélög í skattaskjólum undanfarið eftir að í ljós kom að
þrír ráðherrar í ríkis stjórninni, þau
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra, Bjarni Benedikts-
son fjármálaráðherra og Ólöf Nordal
innanríkisráðherra tengjast slíkum
félögum.
Mál félaganna eru þó ólík inn-
byrðis þar sem Wintris, félag Önnu
Sigurlaugar Pálsdóttur, eiginkonu
Sigmundar Davíðs, er það eina sem
enn er til en eignir þess nema um
milljarði króna.
Skattaskjól er svæði þar sem ekki
eru greiddir tekjuskattar, það er hins
vegar ekki ólöglegt að eiga peninga
í aflandsfélögum, séu allir skattar
greiddir samkvæmt lögum. Helstu
aflands svæði eru meðal annars
Bahamaeyjar, Bresku jómfrúareyjar
og Sviss.
Margvíslegar ástæður eru fyrir
notkun aflandsfélaga, sem ekki endi-
lega fela í sér skattsvik. Til dæmis ef
viðskipti eru umfangsmikil, ef tveir
eða fleiri aðilar með lögheimili í
ólíkum löndum vilja stofna til sam-
eiginlegrar fjárfestinga, eða til þess að
geta greitt út arð hvenær árs sem er.
Dæmi eru þó um að erlend stórfyrir-
tæki nýti sér skattaskjól til að komast
hjá skattgreiðslum í þeim löndum þar
sem þau eru með starfsemi.
Fræðimenn telja að einhvers konar
skattaskjól hafi verið til frá því að
byrjað var að skattleggja almenning.
Í Grikklandi til forna voru einhverjar
af grísku eyjunum notaðar sem skjól
fyrir varning sjómanna sem skildu
varninginn þar eftir til að forðast
tveggja prósenta skatt sem borgríkið
Aþena lagði á innfluttar vörur.
Frá því á sjötta áratug síðustu
aldar hafa vinsældir skattaskjóla
Sæunn
Gísladóttir
saeunn@frettabladid.is
Skattaskjól er svæði þar sem ekki eru greiddir
tekjuskattar. Þá skiptir ekki máli hvaðan
tekjurnar koma; þar sem og annars staðar í
heiminum gildir sú regla að félög eru skattskyld í
heimalandi sínu af öllum sínum tekjum.
Það er ekki ólöglegt að eiga peninga í aflands
félögum í skattaskjólum. Það hvílir algjör leynd
yfir félaginu og það eru ekki gefnar neinar
upplýsingar um það. Það eru ekki gerðar neinar
kröfur um að félögin skili ársreikningum eða
leggi fram neinar upplýsingar um starfsemi sína,
sem er algild regla í öðrum löndum að sögn
Indriða H. Þorlákssonar, fyrrverandi ríkisskatt
stjóra.
Það er hins vegar ólöglegt að stinga undan
skatti og þá skiptir engu hvort menn gera það
utanlands eða innanlands að sögn Erlends
Magnússonar, fjárfestis og stjórnarformanns í
bresku fjárfestingafyrirtæki.
Erfitt er fyrir Íslendinga í dag að stofna svona
félög nema þeir eigi eignir erlendis. „Eins og ég
skil það, vegna gjaldeyrishafta, geta menn ekki
stofnað félög og ekki fjárfest utanlands, nema
þá að fá leyfi Seðlabankans til þess. En menn
geta endurfjárfest, innan ákveðinna reglna,
eignir sem þeir eiga utanlands,“ segir Erlendur.
„Flestallir fjárfestingasjóðir alþjóðlega, þó
þeir séu reknir frá London eða New York, eru
með lögheimili í einhvers konar aflandsfélagi
og það er fyrst og fremst til þess að fjárfest
arnir séu skattlagðir í sínu heimalandi en ekki í
þriðja landi. Þegar íslenskir lífeyrissjóðir fjárfesta
í slíkum sjóðum vegna þess að þeir borga ekki
skatta á Íslandi þá fá þeir þessar tekjur skatt
frjálsar til Íslands. Umræðan hefur verið þannig
að allt þetta sé gert til að reyna að stinga undan
fé, en flestir eru að gera þetta í mjög skynsam
legum tilgangi til þess að forðast tvísköttun.
Hvað er
skattaskjól?
landa í
heiminum eru
skattaskjól
Samkvæmt áætlun efnahagsrann
sóknadeildar bandaríska ríkisins.
Nokkur lönd eru hins vegar ekki
lengur skattaskjól og má þar nefna
Líbanon, Líberíu og Kýpur.
farið vaxandi. Frá því á tíunda áratug
síðustu aldar og fram til dagsins í dag
hefur efnahags- og framfarastofn-
unin OECD beitt sér gegn skatta-
paradísum til þess að vinna bug á
því sem hún kallar „ósanngjarna
skattasamkeppni“. Ástæðan er sú
að þegar fjárfestar geyma peninga í
skattaskjólum og komast hjá því að
greiða skatta, verður ríkissjóður við-
komandi landa af milljörðum. Tax
Justice Network áætlaði árið 2012 að
milli 21 þúsund og 32 þúsund millj-
arðar Bandaríkjadala lægju í skatta-
skjólum víðsvegar um heiminn. Hins
vegar er mjög erfitt að áætla töluna
nákvæmlega.
Í lok síðasta árs sendi OECD frá
sér reglubók til að taka á fyrirtækja-
skattalöggjöf í því skyni að loka fyrir
leiðir til að forðast skatta, meðal ann-
ars með notkun skattaskjóla. Níutíu
lönd hafa unnið með stofnuninni að
þessari áætlun. Einungis tíminn mun
leiða í ljós hvort vinnan skilar tilætl-
uðum árangri.
2 . a P r í L 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r34 h e L G i N ∙ F r É T T a B L a ð i ð