Víkurfréttir - 19.12.2019, Qupperneq 12
HJARTANS ÞAKKIR
Elsku þið öll, sem stóðuð svo þétt við bakið á okkur fjölskyldu Grétars
Einarssonar við andlát og útför hans eigið okkar innilegu hjartans
þakkir. Við erum djúpt snortin yfir umhyggju ykkar fyrir okkur,sam-
kennd, kærleika og hlýju sem umvefur okkur á þessum erfiða tíma.
Aðstoð ykkar er algjörlega ómetanleg og verður seint fullþökkuð en
aldrei gleymd. Það er gott að finna hvað hann átti marga hér í Garð-
inum hans heimabæ sem þótti vænt um hann og mátu hann mikils.
Við erum sannarlega blessuð að eiga ykkur að, allt þetta fólk með
svona fallegt hjarta, þið eruð ómetanleg.
Eins viljum við þakka ykkur starfsfólki Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
á D-deild fyrir hvað þið önnuðust Grétar okkar af mikilli virðingu,
kærleika og alúð og gerðuð þessa viku í lífi okkar allra eins bærilega
og ykkur var unnt. Við höfðum okkar eigið einkaafdrep sem er nauð-
synlegt í þessum aðstæðum og þið voruð alltaf tilbúin að ljá okkur
axlir til að gráta við þegar allt var svo erfitt og yfirþyrmandi. Þið eruð
ómissandi í líknandi meðferð hér á Suðurnesjum, það er jú alltaf best
að vera sem næst heimahögunum þegar kemur að því að kveðja ástvin
í síðasta sinn, bæði fyrir hann og aðstandendur. Takk fyrir styrkinn og
stuðninginn þið eruð englar í okkar huga.
Með kærri kveðju
Óskum við ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Guð blessi ykkur öll
Erla Dögg Gunnarsdóttir og fjölskylda.
Ógerlegt að greina
á milli eftirlætis-
bóka og -höfunda
– Skúli Thoroddsen lögfræðingur
og rithöfundur er lesandi vikunnar.
Lesandi vikunnar í
Bókasafni Reykjanes-
bæjar er Skúli Thorodd-
sen en hann er einn af
þeim sem gaf út nýja
bók fyrir jólin, bókina
Ína.
Hvaða bók ertu að lesa núna?
Veröld sem var, sjálfsævisögu
Stefan Zweig, enn eina ferðina
og var að ljúka við Olgu eftir
Bernhard Schlink, höfund
Lesarans, sem var aldeilis
frábær.
Hver er þín eftirlætisbók?
Þær eru svo margar að ógerlegt er
að greina á milli.
Hver er eftirlætishöfundurinn þinn?
Þeir eru margir; Ismail Kadaré (Al-
bani), Amos Oz (Ísraeli), Pamuk
(Tyrki), Ivan Klima (Tékki) og þeir
Steinbeck, Hemingway, Scott Fitz-
gerald og Joyce Carol Oates frá
Bandaríkjunum, Rússarnir eru
Tolstoy, Gorky og Dostojevskí,
frá Svíþjóð Kerstin Ekman, Knut
Hamsum (Norðmaður), Nexö (Dani)
og William Heinesen (Færeyingur
og Bandaríkjamaður). Af íslenskum
er Þórbergur Þórðarson minn
maður, Jóhannes úr Kötlum, Snorri
Hjartason, Sigfús Daðason, Thor og
höfundur Njálu. Af núlifandi eru
það Jón Kalman, Gyrðir og Einar
Már en það er ómögulegt að gera
upp á milli snillinganna.
Hvernig bækur lestu helst?
Ljóðabækur og skáldsögur en ég
dett líka af og til í reyfara, einkum
sænska.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif
á þig?
Jóhann Kristófer eftir franska
skáldið Romain Rolland. Verkið var
samið gegn ríkjandi hugmyndum
tímans, gegn afstöðu eða afstöðu-
leysi þeirrar listar sem þá var í tísku,
hálfkákinu og hálfvelgjunni á tíma-
bili siðferðilegar og félagslegrar
rotnunar (á enn við). Hann vildi
sýna einingu mannanna, hversu
margbreytilegt form hennar kann
að vera, sem sé höfuðmarkmið
listarinnar og vísindanna. Hreinn
húmanismi hjá Rolland, þ.e. mann-
gæska og samkennd með mönnum.
Hvaða bók ættu allir að lesa?
Veröld sem var.
Hvar finnst þér best að lesa?
Í stólnum mínum.
Hvaða bækur standa upp úr sem
þú vilt mæla með?
Bréf til Láru, (Þórbergur), Yfir
Ebrofljótið (Álfrún Gunnlaugs-
dóttir) og Vopnin kvödd (Hem-
ingway).
Bókasafn Reykjanesbæjar er opið
alla virka daga frá klukkan 9 til 18
og á laugardögum frá klukkan 11
til 17. Á heimasíðu safnsins sofn.
reykjanesbaer.is/bokasafn er hægt
að mæla með Lesanda vikunnar.
BÓKASAFN REYKJANESBÆJAR:
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga
kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Reiki, heilun
getur lagað hina ýmsu kvilla
þunglyndi, verki, léttir lund
Hef unnið með veik dýr líka
með góðum árangri.
Helga P. Hrafnan,
reikimeistari
Tímapantanir á
palina1937@hotmail.com
Vegleg gjöf Lionsmanna til Velferðarsjóðsins
Lionsklúbbur Keflavíkur afhenti á dögunum Velferðarsjóði Suðurnesja styrk upp á 550.000 krónur til minningar
um Árna Þór Þorgrímsson er lést þann 18. nóvember síðastliðinn. Hann var jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju í
upphafi aðventu og fer vel á að afhenta styrkinn í hans nafni áður en jólahátíðin gengur í garð. Árni var einn af
stofnfélögum Lionsklúbbs Keflavíkur þar sem hann lét til sín taka á vettvangi klúbbsins og starfaði ötullega að
málefnum sem létu sér samfélagi varða í öll þau 65 ár sem klúbburinn hefur starfað.
Frá afhendingu styrks Lionsmanna til Velferðarsjóðs.
Hvað minnir þig á jólin?
Veiga Sig-
urðardóttir:
„Fallegu
jólaljósin
sem koma
og skína
í hverri
götu.“
Hlíf
Kára-
dóttir:
„Smör-
líkisaug-
lýsingin
sem við
sungum með
Ríó tríó, æði. Það sem
var gaman að leika
jólasveininn og fara
með jólakort a milli
húsa. Eplalyktin dá-
samlega, appelsín
og malt. Og stóra
jólatréð, síðasta tréð
í Nonna og Bubba,
ég dróg það heim, auð-
vitað snjór. Tréð náði
upp í loft, ég var nýflutt,
vantaði jólaskraut, svo
ég setti tréð út i horn
og skreytti það bara að
framan, maður bjargar
sér sko.“
Ómar og
Magga:
„Lyktin
af nýjum
eplum
sem komu
á þessum árstíma frá
Bandaríkjunum.“
Hildur
Sigfús-
dóttir:
„Laufa-
brauðs-
gerð og börn
að væla yfir að-
gerðaleysi foreldra í
skreytingum.“
Tómas J.
Knúts-
son:
„Ég gleymi
ekki epla-
lyktinni úr
gámunum sem við
fluttum með Jökul-
fellinu rétt fyrir jólin,
alveg yndislegt alla
leiðina yfir hafið.“
Jóna
Fanney
Holm:
„Sjónvarps-
auglýsingar
eru miklar
þessa dagana,
meðal annars eru
bækur auglýstar.“
Helga Ragnarsdóttir:
„Lyktin af heimagerða
rauðkálinu.“
Heba Ingvarsdóttir:
„Eplailmurinn
í kaldri
geymsl-
unni en
mamma
geymdi
alltaf jóla-
eplin þar og
smákökurnar
sem hún hafði bakað.
Þar voru einnig tveir
trékassar með malt
og appelsín í gler-
flöskum. Ilmurinn var
dásamlegur í geymsl-
unni.“
Hjördís Árnadóttir:
„Hvernig
við leitum
leiða til að
lýsa upp
svartasta
skammdegið
og efla nánd
fjölskyldunnar.“
Kristjana Jóhannes-
dóttir:
„Heitt súkku-
laði með
rjóma,
eplalyktin
og aðfanga-
dagskvöld
með öllu
mínu fólki sem
barn hjá ömmu og
afa heima á Ísafirði,
yndislegt að rifja upp
dásamlegar minn-
ingar.“
Sveindís
Valdi-
mars-
dóttir:
„Kerta-
ljós og
eplailmur.“
Ágústa Guðrún Gylfa-
dóttir:
„Lesnar auglýsingar
í útvarpinu með jóla-
lagi undir, jólaljósin í
glugganum og jólastúss
heima við.“
Hrafnhildur Gunn-
arsdóttir:
„Ekkert stress, bara
gaman að undirbúa jól,
styttir skammdegið.“
12 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 19. desember 2019 // 48. tbl. // 40. árg.