Víkurfréttir - 19.12.2019, Qupperneq 32
með raftæki frá Siemens og íþrótta-
vörur. Verslunarrekstri hefur verið
hætt og nú er áherslan á rafmagnið.
Með stærstu verkefnum sem Sigurður
Ingvarsson hefur tekið að sér var
raflögn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
við byggingu hennar en þá stofnaði
hann félag með öðrum sem bauð í raf-
magnsvinnuna og fékk. Sama gerist
nokkrum árum síðar þegar Icelandair
byggði flugskýli sitt á Keflavíkurflug-
velli. Aftur var Sigurður í félagi við
aðra og fékk verkið. SI RAF, eins og
fyrirtækið heitir í dag, hefur einnig
tekið þátt í mörgum stórum verk-
efum á höfuðborgarsvæðinu og er
í dag með tíu rafvirkja að störfum í
verkefnum þar.
Þakklátur eiginkonunni
Sigurður hefur alltaf haft nóg fyrir
stafni og í samtali hans við blaðamenn
Víkurfrétta kemur nokkrum sinnum
fram að hann hafi í raun ekki hug-
mynd um hvernig hann hafi farið að
því að púsla saman deginum og þeim
verkefnum sem hann hafi tekið sér
fyrir hendur. Hann sé þakklátur eigin-
konu sinni, Kristínu Guðmundsdóttir,
sem hafi staðið með honum í öll þessi
ár. Árið 1974 skellti Sigurður sér í
hreppspólitíkina í Garðinum, sem
þá var Gerðahreppur. Sigurður var
í hreppsnefndinni frá 1974 til 2002.
Sigurður játar því að oft hafi gustað
um pólitíkina í Garði og stundum hafi
verið gaman og stundum leiðinlegt.
„Það var leiðinlegt þegar það voru
mikil læti en oft var gaman. Það
stefndu allir að sama markmiði,
að gera byggðarlagið betra. Það var
gaman að taka þátt í því að byggja
íþróttahús og sundlaug, stækka
Gerðaskóla og standa að gerð á nýjum
knattspyrnuvelli í Garðinum. Maður
hafði brennandi áhuga á því að gera
byggðarlagið betra. Það var gaman
að sjá vegi malbikaða og loftlínurnar
sem voru um allan Garð teknar niður.
Þá sá maður breytingar á milli daga,
hvað það breyttist mikið. Maður hafði
metnað fyrir byggðarlaginu.“
Hefði frekar viljað stærri
sameiningu
- Nú hefur Garðurinn sameinast Sand-
gerði í Suðurnesjabæ. Varst þú sam-
einingarsinni?
„Nei, en ég tók þá ákvörðun að ég
ætlaði ekki að skipta mér neitt af því.
Þegar ég hætti í pólitíkinni þá hætti
ég. Ég ákvað að ég ætlaði ekki að vera
maðurinn sem kæmi til að kenna
hinum sem tóku við. Ég hefði sjálfsagt
verið á móti sameiningunni.“
- Út af hverju?
„Ég held að það hefði sjálfsagt verið
betra að sameina bara allt, stærri
sameiningu.“
- Hvaða tilfinningu hefur þú fyrir
sameiningunni í Suðurnesjabæ?
„Ég veit það ekki, ég held að þetta sé
að ganga ágætlega. Þetta eru breyttir
tímar og krafa um það að sveitarfélög
stækki. Það koma peningar með þessu
og verkefni sveitarfélaga eru alltaf
að verða flóknari og flóknari. Það
er meira lagt á sveitarfélögin í dag,
en ég ætla ekki að dæma um þetta.“
Aðspurður hvort hann sjá fyrir sér
frekari og stærri sameiningar, þá
heldur Sigurður að svo verði.
- Hefðir þú stutt stærri sameiningu?
„Ég hugsa að ég hefði gert það en ég
ákvað að hafa þetta bara fyrir sjálfan
mig hvað ég var að hugsa.“
Sonarmissir erfiður tími
Viðtalið við Sigurð Ingvarsson endum
við að Útskálum en í mörg ár hefur
Sigurður séð um jólalýsingu í kirkju-
garðinum á aðventunni. Gjaldið sem
hefur verið innheimt fyrir tengingar
á ljósakrossum hefur runnið óskipt til
góðra málefna en það hafa Sigurður
og Kristín gert í minningu um son
sinn, Sigurð, sem lést ungur að árum
eftir veikindi.
„Við misstum son okkar 22. desember
1985. Það var erfiður tími en þá kom
í ljós að við áttum marga vini sem
hjálpuðu okkur í gegnum það,.“sagið
Sigurður Ingvarsson.
GUÐFAÐIR
FÓTBOLTANS Í GARÐI
TEXTI OG MYNDIR
Páll Ketilsson og Hilmar Bragi Bárðarson
„Maður hafði brennandi áhuga á því að gera byggðarlagið
betra. Það var gaman að sjá vegi malbikaða og loftlínurnar
sem voru um allan Garð teknar niður. Þá sá maður breyt-
ingar á milli daga, hvað það breyttist mikið. Maður hafði
metnað fyrir byggðarlagið“.
Ólafur Róbertsson, Jóna Sigurðardóttir, Kristín Guðmundsdóttir, Sigurður Ingvarsson, Guðlaug Sigurðardóttir og Elías Líndal.
Íþróttahúsið, sundlaugin og Gerðaskóli í Garði.
SENDUM ÍBÚUM
Í VOGUM BESTU
ÓSKIR UM
GLEÐILEG JÓL OG
FARSÆLT NÝTT ÁR
Starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sendir
Suðurnesjamönnum öllum innilegar jólakveðjur
með óskum um farsælt komandi ár
Til þjónustu reiðubúin
32 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 19. desember 2019 // 48. tbl. // 40. árg.