Víkurfréttir - 19.12.2019, Side 34
IceMar ehf í Reykjanesbæ
þakkar samstarfsaðilum um allt land
fyrir traust og vináttu á umliðnum árum.
Með óskum um gleðileg jól
og heillaríks nýs árs
til allra landsmanna.
– framúrskarandi fyrirtæki í sjávarútvegi
Bátar loks komnir
á sjó eftir óveður
Það blés ansi hressilega í síðustu viku og eftir því var tekið. Við Suður-
nesjabúar fundum kannski ekki svo mikið fyrir því, nema að það var
mjög sterk norðanátt með tilheyrandi saltaustri yfir hús og bíla.
Við sluppum þó við allan snjóinn
sem íbúar á Norðurlandinu fengu,
eða þá rafmagnsleysið.
Þetta óveður gerði það líka að
verkum að bátar sem voru komnir
heim náðu ekki mikið að róa. Bátar
náðu loksins að komast á sjóinn
um helgina og þá hefur bátum loks
fjölgað í Grindavík því Sævík GK og
Dúddi Gísla GK eru komnir þangað.
Dúddi Gísla GK hefur landað fjór-
tán tonnum í þremur róðrum í
Grindavík og Sævík GK 25 tonn í
fimm róðrum.
Í Sandgerði hafa bátarnir fiskað
ágætlega, Óli á Stað GK er með 38
tonn í sjö róðrum. Margrét GK tólf
tonn í tveimur en fyrri túrinn af
þessum var landað í Hafnarfirði.
Alli GK 10,5 tonn í fjórum.
Katrín GK 7.8 tonn í þremur. Beta
GK 10,1 tonn í tveimur. Óli G GK,
sem er nýjasti báturinn í Sandgerði,
fór í fyrsta róður sinn 10. desember
og kom með 2,7 tonn í land í einni
löndun.
Addi Afi GK 3,3 tonn í einni og Guð-
rún Petrína GK 3,5 tonn í einni.
Netabátarnir hans Hólmgríms eru
komnir til Sandgerðis og hafa verið
að leggja netin beint út af Sandgerði
sem og meðfram ströndinni að Staf-
nesi. Sunna Líf GK var í Sandgerði
áður en þeir komu og hefur farið
tvisvar út og landað fjórum tonnum.
Halldór Afi GK 1,8 tonn í fjórum,
helmingnum landað í Keflavík.
Maron GK tvö tonn tveimur, fyrri
túrinn landaði í Njarðvík sá síðari
í Sandgerði. Grímsnes GK 8,3 tonn
í fimm, ein af þessum löndunum er
í Sandgerði.
Erling KE er ekkert búinn að leggja
netin í haust en ansi mikið er óveitt
á bátinn því 1500 tonna kvóti er
óveiddur á bátnum og því má búast
við því að áhöfnin á Erlingi KE muni
taka vel á því á vertíðinni 2020.
Siggi Bjarna GK er ennþá í slipp í
Njarðvík. Benni Sæm GK er ennþá
að veiða inn í Faxaflóan en veiði
hefur verið dræm. Báturinn kominn
með ellefu tonn í fimm róðrum,
mest af kola.
Aðalbjörg RE er einnig að veiða í
Faxaflóanum en landar í Reykjavík,
er með 8,8 tonn í þremur. Nokkrir
Suðurnesjamenn eru á bátnum og
þar á meðal nokkrir sem voru á
Njáli RE.
Sigurfari GK er með 10,4 tonn í
þremur. Gamli Gulltoppur GK,
sem Stakkavík átti og gerði út á
línuveiðar með bölum, er kominn
til Sandgerði að hluta til því að
báturinn heitir í dag Ísey EA 40.
Báturinn er í eigu Hrísey Seafood
sem fyrirtækið Iraco á, Iraco keypti
fiskvinnslu K og G í Sandgerði sem
var með vinnslu í Hrísey. Iraco er
með fiskvinnslu í Hafnarfirði og í
Hrísey, er með þrjá báta á sínum
snærum.
Ísey EA, Straumey EA, sem hefur
ekki ennþá landað á Suðurnesjum,
og Pálínu Ágústdóttir EA sem er
trollbátur og hét lengst af Sóley
SH. Pálína hefur komið með afla
til löndunar bæði til Sandgerðis og
Grindavíkur.
AFLAFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
AFLA
FRÉTTIR
Hátíðleg byrjun á nýju ári
Nýárstónleikar fara fram miðvikudaginn 1. janúar klukkan 20:00 í Ytri-Njarðvikurkirkju. Þetta er
hátíðardagskrá með fjölbreyttum lögum úr þekktum óperum, söngleikjum, dægurlögum og fleira.
Flytjendur:
Rúnar Þór Guðmundsson - tenór
Alexandra Chernyshova - sópran
Steinar Matthías Kristinsson - trompet
Helgi Már Hannesson - píanóleikari
Stúlknakór Tónlistarskólans í Grindavík
Rúnar Þór lauk burtfararprófi með
hæstu einkunn árið 2008 en hann
hefur búið erlendis undanfarin ár
og sungið í Noregi, Danmörku, Ítal-
íu, Frakklandi og Bandaríkjunum.
Hann var í verðlaunasæti í alþjóðlegu
söngvarakeppni Barry Alexsander í
New York árið 2010.
Alexandra Chernyshova hefur ein-
staka rödd og útgeislun á sviði hvort
sem hún fer með hlutverk Violettu
Valery úr La Traviata eftir G. Verdi
eða Ragnheiði úr „Skáldið og Biskups-
dóttirin“. Hún hóf feril sinn á sviði
sem einsöngvari hjá Kiev Academic
Musical Theater of Opera and Ballet.
Sumarið 2013 kom hún fram í fyrsta
skipti hjá New York Contemporary
Opera, auk þess sem hún hefur sungið
sem einsöngvari með Óperu Skaga-
fjarðar og DreamVoices. Árið 2014
var Alexandra valin í hóp topp tíu
framúrskarandi ungra Íslendinga
fyrir framlag sitt til menningar á Ís-
landi.
Helgi Hannesson lauk burtfararprófi
vorið 2000 frá Tónskóla Sigursveins
D. Kristinssonar undir handleiðslu
Önnu Málfríðar Sigurðardóttur og
hefur mjög víða komið við sem píanó-
leikari, t.d. á Spáni, Austurríki og all
víða á Norðurlöndum, í Bandaríkj-
unum þar sem hann lauk samtíðar-
tónlistarnámi frá MI í Los Angeles.
Á efnisskrá eru aríur eftir Mozart,
Verdi, Puccini, óperettutónlist
eftir Lehar og alþýðutónlist leikin
af Steinari Matthíasi Kristinsssyni
sem lærði hjá Steven Emery við Bo-
ston Conservatory Music Theater
and Dance. Steinar hefur spilað með
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníu-
hljómsveit áhugamanna, Brassbandi
Reykjavíkur.
Tónleikarnir eru styrktir af Menn-
ingarráði Reykjanesbæjar.
Þið sem viljið upplifa ógleymanlega
alþjóðlega tónlistarveislu með frá-
bærum flytjendum í byrjun árs í
Reykjanesbæ verið hjartanlega vel-
komin í Ytri-Njarðvíkurkju þann
1. janúar kl. 20:00.
Miðaverð er 3.500 kr. almennt verð,
2.800 kr. eldri borgarar en frítt fyrir
tólf ára og yngri. Miðasala á tix.isAlexandra og Rúnar Þór að loknum nýárstónleikum
sem haldnir voru í Ytri-Njarðvíkurkirkju í byrjun þessa árs.
Opið: Mánudaga-föstudaga 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
Hringbraut 99 - 577 1150
Starfsfólk Apóteks Suðurnesja
óskar þér og þínum gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári
Þökkum fyrir viðskiptin á árinu
Hjá okkur njóta allir sérkjara
Félagar í FEB og öryrkjar fá
16% afslátt
Verið hjartanlega velkomin
34 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 19. desember 2019 // 48. tbl. // 40. árg.