Víkurfréttir - 19.12.2019, Síða 39
Þökkum ánægjuleg viðskipti
á árinu sem er að líða
Gleðilegt nýtt bílaár!
REYKJANESBÆ
Óskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla og
farsældar á nýju ári
Þekking í þína þágu
Óskum öllum nemendum og
Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári og þökkum
samstarfið á árinu sem er að líða.
mss.is
Gleðileg jól
kæru nemendur
Guðrún Kjartansdóttir býr í Sandgerði en hún er myndlistar-
maður og handverkskona hjá GK Art.
Aðventan er í mínum huga
… dásamleg, tími jólatónleika,
kertaljósanna, baksturs og
skreytinga. Yndisleg stemm-
ing í skammdeginu.
Ég skreyti … ekki of mikið.
Jólahlaðborðið … er alltaf
spennandi í góðra vina hópi og
ég fer alltaf á nokkur.
Grænar baunir eru … ekki í
neinu uppáhaldi hjá mér, en
Orabaunir eru samt alltaf settar
í skál af gömlum vana.
Laufabrauð … er ómissandi
með hangikjötinu og á milli
mála.
Jólaskraut fer á húsið mitt … í
byrjun nóvember.
Jólatréð skreytum við … í vikunni
fyrir jól.
Jólastemmningin … kemur þegar
jólatréð er skreytt.
Hangikjöt er … gott kalt og enn
betra heitt á beini.
Malt og Appelsín eru … alltaf á
mínum borðum um jól og er frá-
bært par.
Jólasveinarnir eru … skemmti-
legir, háværir og gjafmildir, en mis-
fallegir.
Ég kaupi alltaf jólagjöfina handa
maka mínum … rétt fyrir jól. Hún
er oftast seinasta gjöfin sem ég
kaupi.
Á Þorláksmessu fer ég ... á bæjar-
rölt og borða skötu.
Aðfangadagur er … tími með þeim
sem mér þykir vænst um, kveiki
ljós hjá látnum ástvinum og borða
góðan mat með fjölskyldunni.
Um áramótin ætla ég … að gleðjast
og fagna nýju ári með mínum
nánustu.
Jólastemmningin … kemur
þegar jólatréð er skreytt
Ingvi Kristinn Skjaldarson er flokksleiðtogi hjá Hjálpræðishernum í Reykjavík.
Aðventan er í mínum huga …
tími gjafmildis.
Ég skreyti … sem minnst.
Jólahlaðborð … eru bara hættu-
leg.
Grænar baunir eru … nauðsyn-
legar.
Laufabrauð … og minningarnar
streyma fram.
Jólaskraut fer á húsið mitt … úfff,
jú, jú, en samt ekki mikið takk.
Jólatréð skreytum við … saman
sem fjölskylda.
Jólastemmningin … er allskonar.
Hangikjöt er … gott með uppstúf
og kartöflum mmm.
Malt og Appelsín eru … best
saman.
Jólasveinarnir eru … einn og
átta, hvað er það ekki að fatta, þar
sem þeir eru nú víst þrettán.
Ég kaupi alltaf jólagjöfina
handa maka mínum … já því það
er ljótt að stela.
Á Þorláksmessu fer ég … í vinnu
og stend við jólapottinn hjá Hjálp-
ræðishernum að safna inn aur
fyrir velferðarstarf Hersins.
Aðfangadagur er … dagur sem
ég ver með 250 manns í jólaboði
Hersins.
Um áramótin ætla ég … svo að
vera í faðmi litlu fjölskyldunnar
þar sem við erum bara 25 manns.
Ég kaupi alltaf jólagjöfina handa
maka mínum … já, því það er ljótt að stela
Þórný Jóhannsdóttir, bankastarfsmaður og varaforseti Kvenfélagasambands Íslands.
Aðventan er í mínum huga ...
friðsæll mánuður með góð-
um hefðum.
Ég skreyti ... lítið en að mínu
mati fallega.
Jólahlaðborðið ... með
vinnunni og Kvenfélaginu
Gefn.
Grænar baunir eru ... nauð-
synlegar með hangikjöti.
Laufabrauð ... keypt úti í búð.
Jólaskraut fer utan á húsið
mitt ... ekki seinna en á Þor-
láksmessu.
Jólatréð ... skreytum við þriðja
í aðventu.
Jólastemmningin ... er svo góð
og kærleiksrík.
Hangikjöt er ... gott.
Malt og Appelsín eru ... nauð-
synleg.
Jólasveinarnir eru ... gaurar sem
gefa í skóinn.
Á Þorláksmessu fer ég ... niður í
bæ til að anda að mér jólamenn-
ingunni.
Aðfangadagur er ... hátíð ljóss
og friðar blessunarlega hjá okkur
Íslendingum.
Áramótin ætla ég ... að njóta með
demöntunum mínum sem eru
fjölskyldan mín.
Ég skreyti ... lítið en að mínu mati fallega
Enginn vinningur?
Þú átt enn möguleika! Skilaðu miðanum í kassa í næstu Nettó-verslun
á Suðurnesjum. Næsti útdráttur er á Þorláksmessu kl. 18:00.
Skafmiðaleikur Víku
rfrétta og verslana á
Suðurnesjum
Jólaluk
ka
2019
Skafmiðaleikur Víkurfrétta og verslana á Suðurnesjum
Jólalukka
39MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 19. desember 2019 // 48. tbl. // 40. árg.