Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.2019, Page 42

Víkurfréttir - 19.12.2019, Page 42
Óskum Suðurnesjamönnum öllum gleðilegra jóla, árs og friðar með þökk fyrir árið sem er að líða www.hjahollu.is & /hjahollu Við þökkum kærlega viðskiptin á árinu sem senn er að líða hjá okkur í Grindavík og á Keflavíkurflugvelli. Opið er hjá okkur til hádegis á Þorláksmessu og laugardaginn 28. desember frá 11-17. Lokað á öðrum dögum frá 24. desember til 1. janúar í Grindavík. Hlökkum til að sjá ykkur á nýju ári. Jólakveðja, starfsfólk Hjá Höllu. VIÐ ÓSKUM ÞÉR OG FJÖLSKYLDU ÞINNI GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI Gle ileg jól A b r a h a m L i n c o l n e r e i n n m e r k a s t i forseti sem Bandaríkja- menn hafa átt og meta margir hann f r e m s t a n allra forseta. Hann sagði eitt sinn; „Allt það sem æskilegt er fyrir velferð mannsins, bæði í þessu lífi og öðru, má finna í Biblíunni.“ Fyrir skömmu var mér boðið á að- ventukvöld Gídeonfélagsins. Þar var samankomin góður hópur fólks sem á það sameiginlegt að vilja stuðla að því að sem flestir eignist Guðs orð. Mér er það minnistætt þegar ég var ungur að árum og fékk Nýja testamentið að gjöf frá Gídeonfélaginu. Mér þótti bókin ákaflega falleg og þorði varla að fletta henni í fyrstu af ótta við að hún yrði þá fljótt slitin. Gídeonfélagið var stofnað 1899 í Banda- ríkjunum af þremur einstaklingum. Félagsskapurinn breiddist hægt og rólega út og var Ísland þriðja landið þar sem Gídeonfélag var stofnað. Það er í sjálfu sér svolítið merkilegt í ljósi þess að starfsemi þess er í dag nánast í öllum löndum heims. Meðlimir á heimsvísu eru um 270 þúsund og þeir færa öllum sem vilja Nýja testamentið og Biblíuna að gjöf á yfir 100 tungu- málum. Félagið hefur gefið rúmlega tvo milljarða eintaka af Biblíunni frá stofnun. Á Íslandi gaf félagið fyrstu Biblíuna á hótelherbergi árið 1949 en það var á Hótel Borg. Árið 1954 hóf fé- lagið að fara í grunnskólana og gefa tíu ára börnum Nýja-testamentið. Íslenskt samfélag og kristnar rætur Þeirri vegferð lauk því miður árið 2011 þegar kristin trú var sett í skammar- krókinn af Mannréttindaráði Reykja- víkurborgar. Þegar borgin bannaði að dreifa í grunnskólum boðandi efni eins og það var orðað. Þremur árum áður eða árið 2008 bannaði þá- verandi menntamálaráðherra Sjálf- stæðisflokksins kristnifræðikennslu í skólum landsins. Þessar ákvarðanir voru ekki heillavæn- legar að mínum dómi. Það var óskyn- samleg ákvörðun að þessi bók bókanna sem svo ríkulega hefur mótað íslenska menningu og íslenskan trúararf skuli þannig gerð að hornreku í íslensku skólakerfi. Uppeldishlutverk skólans er mikilvægt, ekki síst siðgæðisupp- eldi. Skólum er ætlað að miðla slíkum gildum og í íslensku samfélagi eiga þessi gildi sér kristnar rætur. Taka á tillit til þess að kristin trú hefur verið ráðandi í mótun menningar okkar og samfélags. Nú þegar styttist til jóla spyr maður sig að því hvenær verði farið að fetta fingur út í helgidagahald. Verður það jafn sjálfsagt að við fáum frí á kristnum helgidögum og verið hefur? Segja má að hér á landi hafi gætt tilhneigingar til ákveðinnar afkristnunar síðustu árin. Þessari öfugþróun hefur verið stjórnað af háværum minnihluta. Hér þarf að snúa við blaðinu. Bersýnilegt er að kirkjulegt starf hefur mjög færst í aukana á aðventunni í ís- lenskum söfnuðum hin síðari ár. Mikið framboð er af tónleikum og öðru efni sem laðar fólk að kirkjunni. Á þessum árstíma erum við minnt á langa sam- leið trúar og lista, ekki síst trúar og tónlistar og er það ánægjulegt. Mikilvægi kyrrðarinnar í aðdraganda jóla Boðberar kristni hafa á öllum tímum bent á mikilvægi kyrrðarinnar, mikil- vægi þess að draga sig um stund í hlé frá áreiti umhverfisins. Margir sakna kyrrðar og jafnvel þagnar á þessum tíma frammi fyrir öllum þeim hávaða sem umlykur fólk í flóði auglýsinga fyrir jólahátíðina. Við eigum ekki að vanmeta mikilvægi kyrrðarinnar í að- draganda jóla. Hugleiðum vel í hverju jólaundir- búningur okkar ætti helst að vera fólginn. Upplagt er nú á aðventunni að hugleiða gildi hinnar kristnu trúar, hver sé boðskapur jólanna og hver sé kjarni hinnar kristnu trúar og kristins siðar, sem hefur fylgt þjóðinni í meira en þúsund ár. „Allt það sem er æskilegt fyrir velferð mannsins.“ Gleðileg jól. Birgir Þórarinsson þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi. Við óskum viðskiptavinum okkar gleðilegs nýs árs. Með þökk fyrir viðskiptin á liðnu ári. Mikið úrval af ljúffengu sjávarfangi í áramótamatinn. Allt það sem er æskilegt fyrir velferð mannsins Stefnumótun og framtíðarskipulag náms á framhaldsskólastigi á Suður- nesjum var til umfjöllunar á síðasta fundi bæjarráðs Grindavíkur en fyrir Alþingi liggur þingsályktunartillaga um málið. Eins og fram kemur í þingsálykt- unartillögunni þá hefur fjölgun landsmanna undanfarin ár verið hlutfallslega mest á Suðurnesjum og langt umfram meðalfólksfjölgun í landinu. Á árinu 2018 fjölgaði íbúum á Suðurnesjum um 5,2% en árið 2017 var fólksfjölgunin um 7,4%. Samsetning íbúa á Suður- nesjum er einnig ólík því sem ger- ist í öðrum landshlutum þar sem fjórðungur íbúa er af erlendu bergi brotinn. Menntunarmöguleikar þurfa að endurspegla þörfina og það fjölbreytta samfélag sem þrífst á Suðurnesjum. Annað atriði sem taka þarf tillit til við skipulag náms á framhaldsskólastigi á svæðinu er hátt hlutfall vaktavinnufólks. Fjölbreyttar námsleiðir og sveigjan- legar kennsluaðferðir verða að vera í boði fyrir þann hóp, bæði fyrir framhaldsmenntun og símenntun. Í ljósi þessa fagnar bæjarráð Grinda- víkur og lýsir yfir ánægju sinni með framkomna þingsályktunartillögu og telur mikilvægt að tillagan verði samþykkt af Alþingi og að skipaður verði starfshópur um framtíðar- skipulag náms á framhaldsskóla- stigi á Suðurnesjum. Eins tekur bæjarráð Grindavíkur heilshugar undir umsögn frá Sam- bandi sveitarfélaga á Suðurnesjum. Menntunarmögu- leikar þurfa að endurspegla þörfina – og það fjölbreytta samfélag sem þrífst á Suðurnesjum 42 UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM f immtudagur 19. desember 2019 // 48. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.