Víkurfréttir - 19.12.2019, Síða 42
Óskum Suðurnesjamönnum öllum
gleðilegra jóla, árs og friðar
með þökk fyrir árið sem er að líða
www.hjahollu.is & /hjahollu
Við þökkum kærlega viðskiptin á árinu sem senn er að líða
hjá okkur í Grindavík og á Keflavíkurflugvelli.
Opið er hjá okkur til hádegis á Þorláksmessu og laugardaginn
28. desember frá 11-17. Lokað á öðrum dögum frá
24. desember til 1. janúar í Grindavík.
Hlökkum til að sjá ykkur á nýju ári.
Jólakveðja, starfsfólk Hjá Höllu.
VIÐ ÓSKUM ÞÉR OG FJÖLSKYLDU ÞINNI
GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI
Gle ileg jól
A b r a h a m
L i n c o l n
e r e i n n
m e r k a s t i
forseti sem
Bandaríkja-
menn hafa
átt og meta
margir hann
f r e m s t a n
allra forseta.
Hann sagði eitt sinn; „Allt það sem
æskilegt er fyrir velferð mannsins,
bæði í þessu lífi og öðru, má finna í
Biblíunni.“
Fyrir skömmu var mér boðið á að-
ventukvöld Gídeonfélagsins. Þar var
samankomin góður hópur fólks sem á
það sameiginlegt að vilja stuðla að því
að sem flestir eignist Guðs orð. Mér er
það minnistætt þegar ég var ungur að
árum og fékk Nýja testamentið að gjöf
frá Gídeonfélaginu. Mér þótti bókin
ákaflega falleg og þorði varla að fletta
henni í fyrstu af ótta við að hún yrði
þá fljótt slitin.
Gídeonfélagið var stofnað 1899 í Banda-
ríkjunum af þremur einstaklingum.
Félagsskapurinn breiddist hægt og
rólega út og var Ísland þriðja landið
þar sem Gídeonfélag var stofnað. Það
er í sjálfu sér svolítið merkilegt í ljósi
þess að starfsemi þess er í dag nánast
í öllum löndum heims. Meðlimir á
heimsvísu eru um 270 þúsund og þeir
færa öllum sem vilja Nýja testamentið
og Biblíuna að gjöf á yfir 100 tungu-
málum. Félagið hefur gefið rúmlega
tvo milljarða eintaka af Biblíunni frá
stofnun. Á Íslandi gaf félagið fyrstu
Biblíuna á hótelherbergi árið 1949 en
það var á Hótel Borg. Árið 1954 hóf fé-
lagið að fara í grunnskólana og gefa tíu
ára börnum Nýja-testamentið.
Íslenskt samfélag
og kristnar rætur
Þeirri vegferð lauk því miður árið 2011
þegar kristin trú var sett í skammar-
krókinn af Mannréttindaráði Reykja-
víkurborgar. Þegar borgin bannaði
að dreifa í grunnskólum boðandi
efni eins og það var orðað. Þremur
árum áður eða árið 2008 bannaði þá-
verandi menntamálaráðherra Sjálf-
stæðisflokksins kristnifræðikennslu
í skólum landsins.
Þessar ákvarðanir voru ekki heillavæn-
legar að mínum dómi. Það var óskyn-
samleg ákvörðun að þessi bók bókanna
sem svo ríkulega hefur mótað íslenska
menningu og íslenskan trúararf skuli
þannig gerð að hornreku í íslensku
skólakerfi. Uppeldishlutverk skólans
er mikilvægt, ekki síst siðgæðisupp-
eldi. Skólum er ætlað að miðla slíkum
gildum og í íslensku samfélagi eiga
þessi gildi sér kristnar rætur. Taka á
tillit til þess að kristin trú hefur verið
ráðandi í mótun menningar okkar og
samfélags.
Nú þegar styttist til jóla spyr maður
sig að því hvenær verði farið að fetta
fingur út í helgidagahald. Verður það
jafn sjálfsagt að við fáum frí á kristnum
helgidögum og verið hefur? Segja má
að hér á landi hafi gætt tilhneigingar
til ákveðinnar afkristnunar síðustu
árin. Þessari öfugþróun hefur verið
stjórnað af háværum minnihluta. Hér
þarf að snúa við blaðinu.
Bersýnilegt er að kirkjulegt starf hefur
mjög færst í aukana á aðventunni í ís-
lenskum söfnuðum hin síðari ár. Mikið
framboð er af tónleikum og öðru efni
sem laðar fólk að kirkjunni. Á þessum
árstíma erum við minnt á langa sam-
leið trúar og lista, ekki síst trúar og
tónlistar og er það ánægjulegt.
Mikilvægi kyrrðarinnar
í aðdraganda jóla
Boðberar kristni hafa á öllum tímum
bent á mikilvægi kyrrðarinnar, mikil-
vægi þess að draga sig um stund í hlé
frá áreiti umhverfisins. Margir sakna
kyrrðar og jafnvel þagnar á þessum
tíma frammi fyrir öllum þeim hávaða
sem umlykur fólk í flóði auglýsinga
fyrir jólahátíðina. Við eigum ekki að
vanmeta mikilvægi kyrrðarinnar í að-
draganda jóla.
Hugleiðum vel í hverju jólaundir-
búningur okkar ætti helst að vera
fólginn. Upplagt er nú á aðventunni
að hugleiða gildi hinnar kristnu trúar,
hver sé boðskapur jólanna og hver sé
kjarni hinnar kristnu trúar og kristins
siðar, sem hefur fylgt þjóðinni í meira
en þúsund ár.
„Allt það sem er æskilegt fyrir velferð
mannsins.“
Gleðileg jól.
Birgir Þórarinsson
þingmaður Miðflokksins
í Suðurkjördæmi.
Við óskum viðskiptavinum okkar gleðilegs nýs árs.
Með þökk fyrir viðskiptin á liðnu ári.
Mikið úrval af ljúffengu
sjávarfangi í áramótamatinn.
Allt það sem er æskilegt fyrir velferð mannsins
Stefnumótun og framtíðarskipulag náms á framhaldsskólastigi á Suður-
nesjum var til umfjöllunar á síðasta fundi bæjarráðs Grindavíkur en
fyrir Alþingi liggur þingsályktunartillaga um málið.
Eins og fram kemur í þingsálykt-
unartillögunni þá hefur fjölgun
landsmanna undanfarin ár verið
hlutfallslega mest á Suðurnesjum
og langt umfram meðalfólksfjölgun
í landinu. Á árinu 2018 fjölgaði
íbúum á Suðurnesjum um 5,2%
en árið 2017 var fólksfjölgunin um
7,4%. Samsetning íbúa á Suður-
nesjum er einnig ólík því sem ger-
ist í öðrum landshlutum þar sem
fjórðungur íbúa er af erlendu bergi
brotinn. Menntunarmöguleikar
þurfa að endurspegla þörfina og
það fjölbreytta samfélag sem þrífst
á Suðurnesjum. Annað atriði sem
taka þarf tillit til við skipulag náms
á framhaldsskólastigi á svæðinu
er hátt hlutfall vaktavinnufólks.
Fjölbreyttar námsleiðir og sveigjan-
legar kennsluaðferðir verða að vera
í boði fyrir þann hóp, bæði fyrir
framhaldsmenntun og símenntun.
Í ljósi þessa fagnar bæjarráð Grinda-
víkur og lýsir yfir ánægju sinni með
framkomna þingsályktunartillögu
og telur mikilvægt að tillagan verði
samþykkt af Alþingi og að skipaður
verði starfshópur um framtíðar-
skipulag náms á framhaldsskóla-
stigi á Suðurnesjum.
Eins tekur bæjarráð Grindavíkur
heilshugar undir umsögn frá Sam-
bandi sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Menntunarmögu-
leikar þurfa að
endurspegla þörfina
– og það fjölbreytta samfélag sem þrífst á Suðurnesjum
42 UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM f immtudagur 19. desember 2019 // 48. tbl. // 40. árg.