Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Side 12
12 1. nóvember 2019FRÉTTIR
SENDI ÚR AÐ OFAN OG
SVEIK ÚT ÚR AÐ NEÐAN
n Íslendingur grunaður um alþjóðleg fjársvik n Sveik út fokdýr
armbandsúr n Að minnsta kosti 13 fórnalömb á þremur árum
S
amfélag áhugamanna
um armbandsúr á netinu
kom upp um íslenskan
svikahrapp. Sá er grunaður
um að hafa svikið á aðra milljón út
úr grandalausum einstaklingum
með ástríðu fyrir úrum.
Sviðin jörð
„Ég vil taka það skýrt fram að
ég er ekki að halda því fram að ég
hafi óvefengjanleg sönnunargögn
fyrir því hver gerandinn í þessum
brotum er. Það eru þung spor að
deila nafni hans hér og ég geri
mér grein fyrir þeim álitshnekki
sem hann getur orðið fyrir í
kjölfarið. Hins vegar vegna þeirra
sterku tenginga og gagna sem ég
hef safnað og geri grein fyrir hér,
og sönnunargagna um ítrekuð
svik í gegnum árin, þá finnst mér
mikilvægt að deila þessu með
samfélaginu til að koma í veg fyrir
að aðrir lendi í svikum.“
Þetta segir í færslu sem Ástrali
nokkur, sem ekki vill láta nafns
síns getið, deildi á vefsvæðum
áhugamanna um armbandsúr
fyrir skömmu. Með færslunni
vildi hann koma upp um
íslenskan svikahrapp sem hafði
skilið eftir sig sviðna jörð víða um
heiminn.
Dabbispade
Ástralinn, sem hér eftir verður
nefndur Róbert, segir í samtali
við blaðamann að hann hafi
um árabil átt í farsælum og
jákvæðum viðskiptum við aðra
áhugamenn um armbandsúr á
veraldarvefnum. Hann gerir sér
grein fyrir að slíkum viðskiptum
fylgi viss áhætta en hann átti aldrei
von á því að verða svikinn með
þeim hætti sem hér átti sér stað.
Úrið sem Róbert átti að fá sent
(til vinstri) og úrið sem hann fékk
sent (til hægri)
„Einstaklingur með
notendanafnið „dabbispade“
hafði samband við mig í gegnum
vefsíðu fyrir safnara armbandsúra.
Hann fylgdi skilaboðunum
eftir með tölvupósti og stakk
upp á skiptum; hann léti mig
hafa Omega Speedmaster-úr
og fengi í staðinn IWC-spariúr
frá mér.“ Verðmæti úranna var
svipað og því greiddi hvorugur
aðilinn umframkostnað. Báðir
sendu sönnun þess að þeir hefðu
umrædd úr í fórum sínum og svo
sönnun þess að úr hefði verið sent
með póstinum til viðtakanda.
Róbert fékk þó ekki það úr sem
honum hafði verið lofað, heldur
annað verðlaust og ónýtt. „Úrið
sem ég sendi frá mér var nýlega
metið á 170 þúsund krónur,“ sagði
Róbert í samtali við blaðamann.
Þegar Róbert fékk verðlausa
úrið í hendurnar gerði hann sér
grein fyrir því að hann hefði verið
blekktur. Hann fór að spyrjast
fyrir um málið og kannaði hvort
aðrir hefðu lent í slíkum svikum.
Svörin létu ekki á sér standa
og innan skamms hafði Róbert
frétt af að minnsta kosti þrettán
einstaklingum sem allir höfðu
lent í svikara frá Íslandi.
Aðferð íslenska svikarans var
áþekk í öllum tilvikum. Hann
stofnaði nýjan notanda inni á
vefsvæðum áhugamanna um
armbandsúr. Þar birti hann
nokkrar ómerkilegar færslur
til að ekki liti strax út fyrir að
annarlegar hvatir lægju að baki
notandanafninu. Síðan átti hann
frumkvæði að samskiptum við
einstaklinga sem höfðu úr til sölu
eða vildu skipta og upphófst þá
blekkingin. Í allavega tveimur
tilfellum sendi svikarinn
sannanlega pakka frá sér sem
skilaði sér alla leið til viðtakanda.
Var þó ekki um umsamið innihald
pakkans að ræða heldur ónýt
verðlaus úr.
Róbert hafði enn fremur
samband við þá sem standa að
baki vefsvæðum áhugamanna
um úr og fékk þaðan staðfest
að öll notandanöfnin kæmu frá
sömu IP-tölunni á Íslandi.
Saklausum frændi svikarans
blandað í málið
Þá brá Róbert á það ráð að taka
saman allar upplýsingar sem
hann hafði aflað sér um svikarann
og deila þeim ásamt fullu nafni
glæpamannsins á áðurnefndum
vefsvæðum. Það var þá sem
hjólin fóru að snúast.
Svikarinn var fljótur að setja
sig í samband við Róbert. Nafnið
sem Róbert hafði grafið upp kom
frá PayPal-reikningi sem hafði
verið notaður við ein svikin.
Svikarinn vildi fyrir alla muni fá
það nafn tekið út af síðunni, hann
hefði fengið lánaðan PayPal-
reikning frá frænda sínum sem
væri saklaus í málinu. Hefði
frændi hans þegar orðið fyrir
nokkru ónæði vegna málsins,
yfirheyrður af lögreglu og steini
hefði verið kastað í gegnum rúðu
heima hjá ömmu hans. Lofaði
hann að láta af svikastarfseminni
og skila síðustu tveimur úrunum
sem hann hafði svikið út.
„Ég vona að þú takir út
upplýsingarnar núna. Ég er að
hafa samband við fólk til að
bæta ráð mitt. Hvorki þú né aðrir
munuð nokkurn tímann sjá mig
aftur á þessum síðum,“ segir í
tölvupósti frá svikaranum sem
blaðamaður hefur fengið að sjá.
Úrunum tveimur var vissulega
skilað, en eftir sem áður eru mörg
fórnarlömb svikarans sem enn
sitja eftir með sárt ennið.
Minnst 13 fórnarlömb
Málið er nú rannsakað af lögreglu
og samkvæmt heimildum DV hafa
svikarinn og frændi hans verið
yfirheyrðir vegna málsins. Róbert
telur að þó hann viti aðeins um
þrettán fórnarlömb sem stendur
þá séu þau líklega mun fleiri,
jafnvel heilu tugirnir til viðbótar.
Að minnsta kosti tveir hafa verið
í sambandi við lögregluna á
Íslandi vegna málsins, en einnig
yfirvöld í Ástralíu og Kanada.
Fórnarlömb eru staðsett víðs
vegar um heiminn, í Portúgal,
Bandaríkjunum, Kanada og
Ástralíu, svo fáein lönd séu nefnd.
„Nafnleysi á vefnum getur
skapað kjöraðstæður fyrir svik-
ara og þjófa, hins vegar getur slíkt
hátterni komið manni í koll. Ekki
stela frá öðrum. Því miður mun
þessi stærðargráða af svikum í
viðskiptum með úr, sem stafa frá
sama staðnum, Reykjavík, valda
því að menn verða hikandi við að
skipta við aðra áhugamenn frá Ís-
landi,“ segir Róbert. n
Erla Dóra
erladora@dv.is
Mynd sem
svikarinn sendi
til að sanna á
sér deili