Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Page 20
20 1. nóvember 2019FRÉTTIR
Reykjavik Raincoats
LAUGAVEGUR 62, 101 RVK
www.reykjavikraincoats.com
info@reykjavikraincoats.com
Sími: 5711177
Litrík saga grunaðs skattsvikara
n Sakfelldur fyrir ítrekuð umferðarlagabrot, fjársvik, hylmingu og fíkniefnabrot - Umfangsmikill í milljarðaviðskiptum
E
ngilbert Runólfsson
athafnamaður hefur verið
ákærður fyrir stórfelld
skattsvik og peningaþvætti.
Fyrirtaka málsins fór fram í Hér
aðsdómi Vesturlands á miðviku
daginn. Engilbert er gert að sök
að hafa brotið gegn skattalög
um, bókhaldslögum og lagt stund
á peningaþvætti. Samkvæmt
ákæru stóð hann ekki skil á virðis
aukaskatti á sex mánaða tímabili
á árunum 2017 og 2018, og nema
meint svik tæpum 24 milljónum
króna. Þetta er ekki í fyrsta skiptið
sem Engilbert hefur komist í kast
við lögin. Á hann langan og litrík
an sakaferil að baki sem má rekja
allt aftur til áttunda áratug síð
ustu aldar.
Ökuníðingur sem lætur ekki
segjast
Engilbert hefur ítrekað verið
fundinn sekur um brot gegn um
ferðarlögum. Á árinum 1982–
1996 gerði hann alls fimm sinnum
dómsátt vegna slíkra brota, auk
hylmingar á þýfi. Eins hafði hon
um í þrígang verið gerð viðurlög
vegna umferðarlagabrota og þar
að auki hafði hann hlotið sektar
dóm fyrir umferðarlagabrot.
Á þessu tímabili var Engilbert
einnig fundinn sekur um fíkni
efnalagabrot, brot gegn skot
vopnalöggjöfinni, hylmingu og
skjalafals.
Frá árinu 1982 til 1996 gekkst
Engilbert undir alls fimm
dómsáttir fyrir umferðarlaga
brot og hylmingu þýfis. Frá
1993–1996 gekkst hann þrívegis
undir viðurlagaákvörðun fyrir
umferðar lagabrot og hafði auk
þess hlotið fimm refsidóma frá
árinu 1988. Þetta kemur fram í
dómsorði Héraðsdóms Reykja
víkur frá 1996, en í því máli
var Engilbert dæmdur í skil
orðsbundið fangelsi fyrir fíkni
efnasmygl. Var það í annað sinn
sem Engilbert hlaut dóm fyrir
slíkan innflutning, en áður hafði
hann hlotið sakfellingu árið
1991 vegna hlutdeildar í fíkni
efnasmygli.
Héraðsdómur leit til sakaferils
Engilberts við ákvörðun refs
ingar og þótti ljóst að þrátt fyrir
að hafa ítrekað komist í kast við
lögin, hefði Engilbert ekkert lært
af reynslunni. „Ákærði Engilbert
er fulltíða maður, sem hefur ekki
látið af afbrotum þrátt fyrir óskil
orðsbundinn fangelsisdóm fyrir
sams konar afbrot. Telur dómur
inn þetta bera vitni um styrkan
og einbeittan brotavilja hans, og
er það virt ákærða til refsihækk
unar.“
Upp úr aldamótunum fór hag
ur Engilberts að vænka og varð
hann umsvifamikill í viðskipta
lífinu og fór fyrir fjölda fyrirtækja
sem sinntu stórum byggingaver
kefnum. Hann var þó sakfelld
ur fyrir umferðarlagabrot, enn
aftur, árið 2009 og gert að greiða
sekt í ríkissjóð. Í niðurstöðu hér
aðsdóms kom fram að innan við
tveimur vikum áður en dómur
þessi féll hafði Engilberg gengist
undir dómsátt vegna umferðar
lagabrots þar sem honum var
gert að greiða tæpar 200 þúsund
krónur í sekt og missti hann bíl
prófið í eitt ár.
Hvað varð um
Valgeir Víðisson?
Þann 19. júní 1994 hvarf maður
að nafni Valgeir Víðisson, að því
er virðist sporlaust. Hefur ekkert
spurst til hans síðan. Valgeir
þessi glímdi við fíkn og hafði átt
í útistöðum við hættulega menn
í undirheimum Reykjavíkur.
Skömmu eftir hvarfið höfðu fjöl
miðlar eftir kunningjum Valgeirs
að hann hefði skuldað hættu
legum mönnum töluverðar fjár
hæðir og virtust flestir á sama
máli um að fíkniefnaviðskipti
hefðu átt sinn þátt í hvarfi hans.
Valgeir hafði skilið við íbúð sína
líkt og hann hefði áformað að
skreppa aðeins frá. Enn var kveikt
á sjónvarpi og öll ljós íbúðarinn
ar kveikt. Faðir hans, Víðir Val
geirsson, var þess fullviss allt til
dauðadags að sonur hans hefði
ekki látið sig hverfa, heldur hefði
hann verið látinn hverfa.
Rannsókn lögreglu miðaði lítið
áfram og á árinu 2002 var mál
ið enn opið og fáar vísbendingar
til að fylgja eftir. Þá gáfu sig fram
nokkur vitni við lögreglu sem
greindu frá því að menn að nafni
Ársæll Snorrason og Engilbert
Runólfsson, hefðu myrt Valgeir
vegna fíkniefnaskulda. Bar frá
sögn vitnanna að mörgu leyti
saman. Engilbert og Ársæll áttu
að hafa farið á fund við Valgeir í
þeim til
gangi að neyða hann til að gera
upp skuldir. Hafi Ársæll gengið of
hart fram og Valgeir dáið. Árásin
á að hafa átt sér stað í bílakjallara
hjá húsi því sem Engilbert bjó í á
þeim tíma. Í kjölfarið, sögðu vitn
in, hafi Engilbert og Ársæll komið
líki Valgeirs fyrir í farangursrými
Chevrolet Capricebifreiðar þar
sem þeir geymdu líkið áður en
þeir losuðu sig við það skammt
frá Vík í Mýrdal.
Lögregla hafði upp á öðru
vitni, starfsmanni bifreiðaverk
stæðis, sem kannaðist við að
Engilbert og Ársæll hefðu kom
ið með Chevroletbifreiðina til
hans og beðið um að henni yrði
fargað. Minnti starfsmanninn að
áklæði í farangursrými hefði ver
ið rifið af og járnið þar bert. Þótti
starfsmanninum undarlegt að
mennirnir óskuðu eftir því að bif
reið, sem virtist í fínu lagi, yrði
fargað. Kvað hann Engilbert og
Ársæl hafa gefið þá skýringu að
bifreiðin væri að ryðga og þeir
vildu bara losna við hana. Bíllinn
var í eigu Ársæls sem undirritaði
afsal sem seljandi, en Engilbert
ritaði nafn sitt á skjalið sem vit
undarvottur. Það tók starfsmann
inn nokkra daga að taka vélina
úr bifreiðinni og farga og minnti
hann við yfirheyrslu að á þeim
tíma hafi komið til hans maður
og rekið á eftir förguninni.
Engilbert og Ársæll voru úr
skurðaðir í gæsluvarðhald vegna
málsins á grundvelli rann
sóknarhagsmuna. Sönnunar
gögn þóttu þó ekki næg til að
Erla Dóra
erladora@dv.is