Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Page 22
22 1. nóvember 2019FRÉTTIR
Þ
ann 2. október síðastliðinn
áttaði Rebekka Guðleifs-
dóttir sig á því að launin
sem hún fékk útborguð
fyrir fullt starf á leikskóla væru
rétt rúmlega 50 þúsund krónum
hærri en bætur sem hún fékk á
meðan hún sótti prógramm hjá
Virk.
Rebekka er lærður myndlistar-
maður og ljósmyndari og sótti um
starf á leikskóla, sem hún hugsaði
sem tímabundna lausn. „Ég hef
unnið á leikskóla áður og sótti
um þetta vegna þess að ég vinn
vel með börnum og þau kunna að
meta mig, einhverra hluta vegna,“
segir hún í samtali við DV.
Frásögn Rebekku er ekkert
einsdæmi. Hún tjáði sig stutt-
lega um málið á Facebook nú á
dögunum og segir viðbrögðin
hafa verið mun meiri en hún átti
von á. „Mér finnst að allir ættu
að vita af þessu. Það kom nefni-
lega í ljós að fjöldi fólks gerði sér
ekki grein fyrir því að launin væru
svona rosalega léleg, þó svo að
allir viti að þetta sé láglaunastarf.“
Leigir hjá foreldrum, borðar
lítið og ferðast ekkert
Fyrir fullt starf á leikskólanum
fékk Rebekka útborgaðar 270
þúsund krónur.
„Það þarf lítið að reikna til að
átta sig á að þessi laun eru bara
hálfgert prump. Ég er ekki með
aðra fyrirvinnu, en ég er svo
blessunarlega heppin að eiga for-
eldra sem eru að hjálpa mér mjög
að koma undir mig fótunum eft-
ir nýlegan skilnað þar sem ég
stóð uppi með sáralítið. Ég leigi
af þeim, mun lægra en ég myndi
gera á almennum leigumarkaði.
Ég er ekki, sem stendur, að reka
bíl. Ég kaupi mér ódýr föt með
margra mánaða millibili, skó enn
sjaldnar. Ég borða lítið. Eyði sára-
litlu í snyrtivörur. Ferðast ekkert.
Ef ég stæði bara ein, með ekkert
bakland, og leigði á almennum
markaði þá myndu þessi laun
varla duga til að láta enda ná
saman, þrátt fyrir sparsaman lífs-
stíl. Og það gerir mig svo reiða,
því ég veit að það er alltof margt
fólk í þessum sporum. Vinnur
þreytandi og krefjandi láglauna-
störf, á enga orku afgangs, en þarf
að fá sér aðra vinnu með til að
skrimta gegnum mánuðinn, ekki
síst ef það er með börn á framfær-
slu.“
Rebekka segir leikskólastarf-
ið vera mjög gefandi, en að sama
skapi mjög þreytandi, bæði
líkam lega og andlega.
„Þetta er einfaldlega ekki
vinna sem þú vinnur með annarri
vinnu. Það ættu eiginlega allir
ráðamenn þjóðarinnar að vera
skikkaðir til að vinna mánuð á
leikskóla til að raunverulega átta
sig á að þetta snýst um svo miklu,
miklu meira en að „passa“ börn
eða horfa á þau leika sér. Börn-
in mynda sterk tengsl við mann,
treysta manni og leita til manns,
en eru líka með mótþróa og
stæla og þrjósku, alveg nákvæm-
lega eins og þau eru við foreldra
sína. Og allir foreldrar vita hvað
það getur verið erfitt að halda ró
sinni og jafnvægi þegar eitt eða
tvö börn fara í krefjandi skap, það
er ekki auðveldara þegar þau eru
orðin margfalt fleiri.
Leikskólastarfsmenn eru
allan daginn að leiðbeina, að-
stoða, hugga, klæða, hvetja, setja
mörk, þrífa eftir matartíma, snýta,
svæfa, skipta um bleyju, stilla til
friðar, vera skemmtikraftar og svo
margt fleira. Oftar en ekki með
bros á vör.“
Stanslaus veikindi
Rebekka nefnir einnig veikindin
sem fylgja starfi á leikskóla.
„Það er oft sagt í hálfgerðu
gríni: „Búðu þig undir að verða
veikur þegar þú byrjar á leik-
skóla.“ Í mínu tilviki þá var ég
næstum samfleytt lasin í átta
vikur. Ég missti marga vinnudaga,
með bullandi samviskubit þótt
ég væri augljóslega ekki að leika
mér að þessu, annars var ég oft-
ast bara drulluslöpp í vinnunni.
Allar helgar voru nýttar í það eitt
að hvílast. Það liðu kannski tíu
veikindalausir dagar, og svo kom
ælupest sem ég missti tvo vinnu-
daga út af og enn ein helgin fór í
að jafna mig. Á sex vikum fór 1/6
hluti af mánaðarlaunum mínum
í lækna- og lyfjakostnað, meðal
annars þrjá sýklalyfjakúra, tvær
ferðir á læknavakt, tíma hjá sér-
fræðingi og tölvusneiðmynda-
töku til að komast nákvæmlega
að hvað væri að hrjá mig,“ seg-
ir Rebekka og bætir við að áður
en hún hóf störf á leikskólanum
í ágúst síðastliðnum hafi hún í
mesta lagi fengið kvef tvisvar á
ári.
Hún segir að knúsin frá börn-
unum séu ágætis bónus en þau
borga því miður ekki reikninga.
„Allir leikskólastarfsmenn eiga
einfaldlega miklu betra skilið,
enda færi samfélagið á hliðina ef
við værum ekki til staðar.“
Rebekka spyr hvers vegna störf
leikskólakennara og leikskólaliða
séu eins illa metin og raun ber
vitni.
„Þjóðfélagið færi á hausinn ef
engir leikskólastarfsmenn væru
til staðar. Og við sem vinnum
þessa vinnu vitum nákvæmlega
hversu miklu máli við skiptum í
lífi barnanna. Þetta er mér gjör-
samlega óskiljanlegt.“ n
Sundaborg 1
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
BANNER-UP STANDAR
Ódýr
og einföld
leið l að
kynna
þína vöru.
„Knúsin frá börnunum
borga ekki reikningana“
n Rebekka segir laun starfsmanna á leikskóla smánarleg n Upplifun hennar ekkert einsdæmi
„Það þarf lítið að
reikna til að átta
sig á að þessi laun eru
bara hálfgert prump
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is