Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Side 44
01. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐGæði
Margir sem þjást af staðbundnum verkjum geta ekki tekið inn
bólgueyðandi verkjalyf vegna
aukaverkana sem geta fylgt
notkun þeirra. „Bólgueyðandi
verkjalyf til inntöku geta valdið
ertingu í meltingarvegi. Því getur
verið gott að hafa valmöguleika
um staðbundna meðferð, eins og
með Diklofenak Apofri hlaupi” segir
Sigrún Sif, lyfjafræðingur hjá LYFIS.
„Lyf til staðbundinnar notkunar
hafa færri aukaverkanir en lyf til
inntöku þar sem þau frásogast
aðeins að litlu leyti inn í blóðrásina“.
Diklofenak Apofri hlaup inniheldur
diclofenac tvíetýlamín, 11,6
mg/g, og er bólgueyðandi lyf og
dregur úr verkjum og er notað til
meðferðar á staðbundnum verk í
tengslum við meiðsli í vöðva eða
lið. Hlaupið er ætlað fullorðnum
og börnum, 14 ára og eldri.
„Diklofenak Apofri hlaup er borið
á húð, á aumt og bólgið svæði, 3
til 4 sinnum á dag og er nuddað
varlega inn í húðina“ upplýsir
Sigrún Sif. „Hlaupið fæst í tveimur
pakkningastærðum, 60 g túpu
og 100 g túpu. Lyfið er til í flestum
apótekum og er á góðu verði.“
Lesið vandlega upplýsingar
á umbúðum og í fylgiseðli fyrir
notkun lyfsins. Leitið til læknis
eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu
og aukaverkanir. Sjá nánari
upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is.
Diklofenak Apofri hlaup er á góðu verði. Sigrún Sif lyfjafræðingur hjá LYFIS.
Hreyfing skapar vellíðan.
Ert þú með vöðva-
eða liðverki?
DIKLOFENAK APOFRI HLAUP HEFUR BÓLGUEYÐANDI
VERKUN OG DREGUR ÚR VERKJUM.