Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Side 58

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Side 58
58 1. nóvember 2019STJÖRNUSPÁ D onna Cruz er svo sannar- lega á uppleið, en hún hef- ur hlotið einróma lof gagn- rýnenda fyrir leik sinn í kvikmyndinni Agnes Joy. DV ákvað því að lesa í tarotspil þessarar ungu og efnilegu leikkonu, en lesendum er bent á að þeir geta sjálfir dregið sér tarotspil á vef DV. Bless erfiðleikar Fyrsta spilið sem kemur upp er Hamingjuhjólið. Það táknar mikið hamingjutímabil framundan hjá Donnu og munu tækifæri í fram- tíðinni koma henni ánægjulega á óvart og færa henni betri tíma. Heppnin eltir Donnu og ham- ingjuhjólið snýst henni í hag. Hún getur kvatt alla erfiðleika, hvort sem þeir eru andlegir eða fjár- hagslegir. Hún er heil í gegn hún Donna og upplifir almenna vellíð- an. Þessi hamingja styrkir hana og þá sem skipta hana máli. Nú þarf hún að leyfa góðum hlutum að bera ríkulegan ávöxt. Næstu skref sem Donna stígur verða þak- in hamingjudropum og mun hún taka sér göfug verkefni fyrir hend- ur. Skapar sína eigin framtíð Næst eru það 7 sverð sem tákn- ar að vitsmunir Donnu eru meiri en hún gerir sér grein fyrir. Öfl- ugar hindranir eru yfirstíganlegar á sama tíma og Donna er fær um að koma í veg fyrir hvers kyns vandræði. Framhald velgengni Agnesar Joy verður sniðið að þörfum Donnu ef hún leggur sig fram við að skapa sína eigin fram- tíð. Donna þarf að standa fast á sínu og þekkingu sinni á sjálf- inu. Þannig getur hún fært sér í nyt nánast allt sem á vegi henn- ar verður. Barn eða brúðkaup Loks eru það 3 bikarar. Fjöl- skyldulíf Donnu er í blóma og hún myndar rík vináttubönd við gott fólk. Í spilunum felst merki um einhvers konar vöxt, nýtt ást- arsamband eða barnsburð – jafn- vel stóra hamingjustund eins og brúðkaup. Mikill fögnuður birt- ist þar sem Donna er gerandi og upplifir sterkar tilfinningar sem tengjast gleði og ómældri ást. Hamingjubikar ýtir undir vellíð- an og framtíðin mun leiða Donnu áfram þar sem heilindi og jákvæð samskipti munu eiga sér stað. n stjörnurnar Spáð í Naut - 20. apríl–20. maí Fiskur - 19. febrúar–20. mars Vatnsberi - 20. janúar–18. febrúar Steingeit - 22. desember–19. janúar Bogmaður - 22. nóvember–21. desember Sporðdreki - 23. október–21. nóvember Vog - 23. sept.–22. október Meyja - 23. ágúst–22 .sept. Ljón - 23. júlí–22. ágúst Krabbi - 22. júní–22. júlí Tvíburi - 21. maí–21. júní Stjörnuspá vikunnar Gildir 3.–9. nóvember Þú ert að spá mikið í einhverja langtíma- fjárfestingu og í þessari viku tekurðu loksins ákvörðun um hvort eigi að hrökkva eða stökkva. Ef þú ert undir það búin/n að leggja mikið á þig og skera útgjöld við nögl næstu mánuði, jafnvel ár, þá getur þessi fjárfesting orðið afar gjöful. Þú skalt hins vegar ekki stökkva ef þú ert ekki tilbúin/n að færa miklar fórnir á leiðinni að takmarkinu. Þú upplifir köfnunartilfinningu í sambandi sem þú ert í. Þetta gæti verið ástarsamband sem er nýtt af nálinni eða samband við vin eða kunningja. Þú upplifir að þú hafir gefið og gefið og gefið af þér en fengið lítið sem ekkert til baka. Ekki kasta þessu sambandi á glæ alveg strax heldur reyndu að miðla málum og koma hreint fram. Ekki lofa þér í of mikið þessa dagana. Kíktu frekar yfir verkefni vikunnar og athugaðu hvort þú hefur tíma. Það er ein- hver uppreisnarseggur í þér og þig langar að brjóta allar reglurnar. Gerðu það hins vegar á skynsamlegan og heilbrigðan hátt. Eyddu peningi í þig sjálfa/n og í eitthvað sem lætur þér líða vel í líkama og sál. Krabbinn þarf meira en yfirborðshjal til að vera hamingjusamur. Krabbinn þarf áskoranir, ný verkefni og djúpa tengingu við fólk. Þú stendur þig allt í einu að því að sætta þig við það sem er á yfirborðinu og það líkar þér ekki. Því heldur þú nú á vegferð til að leita að því sem leynist undir yfirborðinu í þínum nánu sambönd- um og þetta er spennandi ferðalag. Þú leggur mikið upp úr því þessa dagana að finna jafnvægi á milli vinnu og heimilis og það gengur vægast sagt illa. Það er of mikið að gera hjá þér í vinnunni og annríkið heima fyrir ber þig stundum ofurliði. Því spáir þú mikið í það þessa vik- una hvort þú getir sagt upp vinnunni og unnið sjálfstætt. Það gæti verið eitthvað fyrir þig, ef þú nærð að temja þér öguð vinnubrögð. Þú ert í mikilli leit að tilgangi þínum í þessu lífi um þessar mundir. Hvað þýðir hitt og hvað þýðir þetta? Þú bara nærð ekki að finna út úr því og það veldur þér hugarangri. Þú þarft að finna eitthvað sem kveikir í þér lífsneista og það gæti verið jafn einfalt og að lesa bók eða skrá þig á námskeið til að opna skilningsvitin upp fyrir nýrri upplifun. Þú ert í bullandi uppsveiflu þessa dagana og sjarminn drýpur af þér. Sjálfstætt starfandi vogir ættu að fara í grófan niðurskurð og henda út öllum kúnnum sem valda meiri ama en ánægju. Þú finnur fyrir nýjum neista í vinnu ef þú ert á vinnustað og dembir þér ofan í nýtt verkefni sem gefur þér mikla lífsfyllingu. Það er manneskja í þínu lífi sem þú hefur mikið litið upp til en allt í einu veldur hún þér miklum vonbrigðum. Svo miklum að þú nærð ekki að horfa framhjá því. Þú þarft að komast í burtu og skipuleggur ferð til að hreinsa hugann og hjartað af alls kyns leiðindum sem hafa plagað þig síðustu vikur. Þú rekur þig á marga veggi í vinnunni og veist ekki nákvæmlega hvernig þú átt að brjóta þá niður. Getur verið að þú sért á bandvitlausum stað í lífinu eða er þetta tímabundið ástand? Þetta þarft þú að spá í og horfa einnig gagnrýnin/n á þig sjálfa/n. Hugsanlega gæti kröftum þínum verið betur varið annars staðar. Það er mikill leikur í þér í þessari viku og það er einhver manneskja sem heillar þig mjög á rómantíska sviðinu. Heillar þig á hátt sem þú hefur ekki upplifað áður. Þú skalt samt varast að fara út fyrir boxið og þinn eigin karakter og fremur taka upplýsta ákvörðun um hvort þú vilt gera eitthvað meira með þessar tilfinningar eða láta þær líða hjá. Þú þarft að taka á honum stóra þínum í vinnunni og vinna að settu markmiði í hópi, eitthvað sem reynist þér ávallt mjög erfitt. En markmiðið er göfugt og þessi hópvinna mun gefa svo margt af sér, meira en þig hefði nokkurn tímann grunað. Bíddu bara, þinn tími í metorða- stiganum mun koma. Það er mjög mikilvægt fyrir þig að segja meiningu þína og ekki halda aftur af þér. Vinnufélagi eða náinn vinur kemur til þín og biður um ráðleggingar. Segðu þessari manneskju sannleikann. Vissulega getur sannleikurinn verið sár en til að virkilega hjálpa þessari manneskju í neyð þarftu að vera fullkomlega hreinskilin/n. Hrútur - 21. mars–19. apríl Afmælisbörn vikunnar n 3. nóvember Líneik Anna Sævarsdóttir stjórnmálakona, 55 ára n 4. nóvember Einar Ben athafnamaður, 37 ára n 5. nóvember Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir mæjónesdrottning, 41 árs n 6. nóvember Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Stundarinnar, 40 ára n 7. nóvember Ásgrímur Már Friðriksson tískugúrú, 37 ára n 8. nóvember Toshiki Toma prestur, 61 árs n 9. nóvember Hörður J. Oddfríðarson, fyrrverandi formaður Sundsambands Íslands, 55 ára Lesið í tarot Donnu Cruz Þórunn og Harry selja slotið – Svona eiga þau saman Þórunn Ívars Fædd 4. septem- ber 1989 Meyja n trygg n góðhjörtuð n vinnusöm n hagsýn n feimin n of gagnrýnin Harry Fæddur: 10. des- ember 1980 Bogmaður n örlátur n góð kímnigáfa n heiðvirður n ævintýragjarn n óþolinmóður n lofar upp í ermina á sér Á hrifavaldurinn Þórunn Sigurborg Ívarsdóttir og eiginmaður hennar, Harry Sampsted, settu nýverið íbúð sína á Holtsvegi í Garðabæ á sölu. Það eru því mikil tíma- mót í lífi þeirra og álagstími í vændum. Því fannst DV tilval- ið að lesa í stjörnumerkin og sjá hvernig þau Þórunn og Harry eiga saman. Þórunn er meyja en Harry er bogmaður. Þegar þessi tvö merki koma saman í ástarsambandi verður sambandið afskaplega heilsteypt og sterkt. Bogmaður- inn elskar að kanna nýjar slóð- ir og vera meðal fólks og meyjan hefur unun af því að greina allar uppgötvanir bogmannsins í ör- eindir. Bæði merkin hafa gaman af því að tala saman um allt milli himins og jarðar og þó að meyj- an fari oft fram á að bogmaður- inn sé jafn mikill fullkomnunar- sinni og hún sjálf þá læra þau að meta kosti og galla hvort annars með tímanum. Oft getur verið erfitt fyrir bogmanninn að sætta sig við raunsæi meyjunnar og meyjan á stundum í mestu vandræðum með að halda í við orkuna sem flæðir innra með bogmannin- um. Þau vega hins vegar hvort annað upp. Meyjan býður bogmanninum upp á öryggi og traustan grunn til að láta drauma sína rætast á meðan bogmaðurinn kryddar sam- bandið með nýjum ævintýrum. Það má í raun segja að meyj- an elski að fara ofan í hvert einasta smáatriði á meðan bogmaðurinn sér frekar heildar- myndina. Þannig eiga þau vel saman, þessar andstæður, og ná að velta upp öllum hliðun- um á teningnum. Ástin er sterk og hrein og litlir árekstrar ná ekki að skemma þá djúpu tengingu sem bogmaðurinn og meyjan mynda. n Næstu skref umlukin hamingju

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.