Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Síða 24
24 PRESSAN 15. nóvember 2019
R
ætur fíkniefnafaraldursins
í Portúgal má rekja aftur
til áttunda áratugar síð-
ustu aldar. Hin blóðuga
nellikubylting skall á árið 1974
og kjölfar hennar losnuðu Portú-
galar undan valdi einræðisherr-
ans Antónios Salazar og öðluðust
sjálfstæði. Nærri fimm ára ein-
angrun var því lokið í landinu
og opnaðist það fyrir fíkniefnum
frá Afganistan og Evrópu. Þetta
nýfundna frelsi breyttist fljótt í
martröð því á níunda áratug síð-
ustu aldar var fíkniefnafaraldur-
inn búinn að breiða úr beitt-
um klóm sínum og var talað um
að dópið væri mun alvarlegra
og verra en AIDS-faraldurinn.
Stjórnmálamenn litu framhjá
vandanum sem óx sífellt ásmegin.
Talið er að einn af hverjum hund-
rað Portúgölum hafi verið háður
heróíni seint á tíunda áratug síð-
ustu aldar. Árið 1999 dóu tæplega
fjögur hundruð manns úr of stór-
um skammti eiturlyfja.
Sjúklingar, ekki glæpamenn
Loksins þurftu yfirvöld að opna
augun fyrir vandanum og seint á
tíunda áratugnum hófst vinna við
að afglæpavæða fíkniefnaneyslu.
Árið 2001 var það síðan bundið í
lög og varð Portúgal fyrsta landið
í heiminum til að afglæpavæða
fíkniefnaneyslu. Fíkniefni voru,
og eru, enn ólögleg og fólk er sótt
til saka fyrir að selja eða smygla
inn fíkniefnum en fólk sem tekið
er með neysluskammta er ekki
handtekið. Markmiðið var að
meðhöndla fólk með fíknisjúk-
dóma af mannúð, að meðhöndla
fíkn eins og sjúkdóm, ekki bresti.
Litið var á fíkla sem sjúklinga,
ekki glæpamenn og þeir fóru í
meðferð, ekki í fangelsi.
Þessar breytingar virkuðu og
það fljótt. Fjöldi heróínnotenda
í Portúgal hefur minnkað um
tvo þriðju og einnig dauðsföll-
um, en aðeins þrjátíu manns lét-
ust úr fíkniefnaneyslu allt árið
2016, miðað við tæplega fjögur
hundruð árið 1999. Þá hefur HIV-
smiti einnig fækkað umtalsvert
en átján tilfelli smits voru greind
árið 2016 miðað við 907 árið 2000.
Þetta ófremdarástand sem
skapaðist í kringum fíkniefnafar-
aldurinn hafði áhrif á marga.
Fangelsin voru yfirfull af fíklum
og segir Félix da Costa, sem hef-
ur unnið með fólki með fíknisjúk-
dóma síðustu þrjá áratugina, í
samtali við Huffington Post að um
mannlega harmleiki hafi verið að
ræða í hverri einustu viku.
„Í öllum fjölskyldum var ein-
hver sem neytti fíkniefna eða lést
úr eiturlyfjaneyslu, eða fjölskyld-
an þekkti einhvern náinn sér sem
var í neyslu.“
Andstaða úr hægri
Læknirinn João Goulão lék veiga-
mikið hlutverk í þessari hugar-
fars- og lagabreytingu í Portúgal.
Um miðjan níunda áratug síðustu
aldar var hann ungur læknir á Al-
garve í suðurhluta Portúgals og
fann fyrir fjölgun sjúklinga sem
glímdu við eiturlyfjafíkn.
„Ég var ekki sérfræðingur í
eiturlyfjum en ég var til stað-
ar þegar fólk vildi koma til mín,“
segir hann. Það má segja að João
hafi orðið sérfræðingur í að með-
höndla fíkla, líkt og svo margir
heimilislæknar í Portúgal á þess-
um tíma. João varð síðar lykil-
maður í afglæpavæðingu fíkni-
efnaneyslu í landinu. En fyrst
leiddi hann opnun á almennings-
miðstöðvum sem meðhöndluðu
fólk með fíknisjúkdóma, CAT, á
seinni hluta níunda áratugar-
ins. Fyrsta miðstöðin var opnuð
í Lissabon árið 1987 og stjórnað
af heilbrigðisráðuneytinu. João, í
samvinnu við annað heilbrigðis-
starfsfólk, opnaði slíkar mið-
stöðvar víðs vegar um landið og
fyrsta skref í átt að afglæpavæð-
ingu var sprautuprógrammið
sem byrjaði árið 1993. Með því
gat hver sem er mætt í apótek
með notaða sprautunál og fengið
hreina í staðinn án þess að þurfa
að gera grein fyrir einu eða neinu.
Það var svo seint á tíunda ára-
tugnum sem yfirvöld byrjuðu að
skoða lagabreytingar. Fjölmargir
komu að borðinu, sérfræðingar,
læknar, dómarar og fleiri, til
að búa til aðgerðaráætlun um
hvernig Portúgalar gætu barist
gegn dópvánni og haft sigur. João
var í þessum hópi. Hópurinn
kynnti áætlun árið 1998 sem lagði
grunn að lögum um afglæpavæð-
ingu og voru þau samþykkt árið
2001. Þetta var róttækt plan og
hægrimenn ekki á eitt sáttir. Vör-
uðu þeir við því að með þessari
löggjöf myndi landið verða sem
segulstál á fíkniefnaneytendur
um heim allan.
Allt annað kom á daginn og
fljótlega var hægt að merkja já-
kvæð áhrif laganna. Þá myndaðist
þverpólitísk sátt um lögin. Í dag
eru hins vegar nokkrar áhyggj-
ur um hvort hægt sé að viðhalda
þessum góða árangri. João segir
að dópstríðið hafi fallið neðar og
neðar á forgangslista stjórnvalda
og búið sé að skera niður fjár-
framlög til verkefnisins. João tel-
ur því að verkefnið sé í hættu.
„Þetta er ekki lengur sexí um-
ræðuefni,“ segir hann.
Fyrirmynd Íslands
Það er þó vert að minnast á að ár-
angur Portúgals í fíkniefnastríð-
inu hefur vakið heimsathygli,
en fíkniefnanotkun þar í landi
er meðal því minnsta sem gerist
og gengur í Evrópu. Fjöldi þeirra
sem deyja á ári hverju úr fíkni-
efnaneyslu er töluvert lægri en
meðalfjöldi í Evrópu og Banda-
ríkjunum. Fyrir tuttugu árum
voru um það bil hundrað þúsund
heróínfíklar í Portúgal en nýjustu
gögn sýna að þeir séu 25 þúsund
talsins í dag.
Afglæpavæðing fíkniefna-
neyslu hefur verið talsvert í
umræðunni síðustu misseri á
Íslandi og vekur upp heitar um-
ræður í þingheimi. Nýlega lagði
Píratinn Halldóra Mogensen
fram frumvarp um að varsla
neysluskammta yrði ekki leng-
ur refsiverð, þótt sala fíkniefna,
afhending, framleiðsla og smygl
yrði enn bannað. Þá lagði Svan-
dísar Svavarsdóttur heilbrigðis-
ráðherra einnig fram frumvarp
um neyslurými fyrir stuttu og er
Portúgal mikil fyrirmynd við gerð
þessara frumvarpa. Skiptar skoð-
anir hafa verið á afglæpavæðingu
fíkniefnaneyslu hér á landi en
tölurnar frá Portúgal segja meira
en mörg orð. n
GODDI.IS
Auðbrekku 19 - kópAvogi - S. 544 5550
S una- og
gistitunnur ásamt
við rkyntum pott m
Sjáðu úrvalið
á goddi.is
Marg r ge ðir
Eigum fjórar stærðir af lokum á
lage í gráum o brúnum litum
Verð aðeins 58.500 kr.
Eigum fjórar stærðir af lokum á
lager í gráum og brúnum litum
Verð frá 58.500 kr.
„Í öllum fjölskyldum var
einhver sem neytti fíkni-
efna eða lést úr eiturlyfjaneyslu
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
Svona unnu
Portúgalar
dópstríðið
n Dauðsföllum fækkað úr einu á dag í þrjátíu á ári
n Afglæpavæðing neysluskammta lykilatriði
Dópdjöfullinn
Portúgal hefur náð
góðum árangri í stríð-
inu gegn fíkniefnum.