Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Page 28
Vetur 15. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ THAI NUDDSTOFAN: Aldagamlar aðferðir og ótrúleg virkni Thai-nudd er aldagömul heilunaraðferð sem kemur úr dýpstu rótum búddískrar menningar í Asíu. Það er framkvæmt með fjölbreyttum aðferðum svo sem jógastöðum og þrýstitækni. Thai Nuddstofan býður upp á guðdómlegar nuddmeðferðir sem láta stressið, kvíðann og vöðvabólguna líða úr líkamanum á undraverðan hátt. Ekki skemmir fyrir hvað stofan er notalega og fallega innréttuð, en nuddmeistarinn Joomjan Konkhan, eigandi stofunnar, hefur lagt mikið upp úr notalegri stemningu og þægilegu andrúmslofti. Thai-nuddmeðferðir: Alhliða árangur Thai-nudd er stórkostleg og heildræn meðferð þar sem ýmsum aðferðum er beitt: Þrýstimeðferð, svæðanuddi á iljar, orkubrautavinnu, teygjum og jóga. Til að beita þessum aðferðum notum við lófa, þumla, framhandleggi, hné og fætur. Árangur er aukið orkuflæði, það losar um spennu, eykur lífsþrótt og skapar fullkomið jafnvægi á milli líkama og huga. Alhliða Thai-nudd tekur 60 eða 90 mínútur. Bak-, herða- og höfuðnudd: Dásamleg líðan Dásamlega endurnærandi meðferð sem er sérstaklega hönnuð til að losa um spennu og létta á höfuðverk. Þessi 30 mínútna meðferð gefur slökun, endurnærir og skapar frið og æðruleysi til að takast á við hvað sem framundan er. 10–25% afsláttur á nuddmeðferðum Alla jafna er verðið á nuddmeðferðum hjá Thai Nuddstofunni eftirfarandi: 30 mínútna tími: 6.000 kr. 60 mínútur: 10.000 kr. 90 mínútur: 15.000 kr. Nú býður Thai Nuddstofan upp á nuddmeðferðir á frábærum afslætti sem gildir til 7. janúar. „Á hverjum stökum tíma, 30, 60 eða 90 mínútum, er þá 10% afsláttur. Ef þú kaupir 5 tíma færðu þá saman með 20% afslætti. 10 tímar eru svo með 25% afslætti. Þannig að ef þú kaupir t.d. 10x60 mínútna tíma færðu þá á 75.000 kr. í stað 100.000 kr. Hér er um að ræða hina fullkomnu jólagjöf fyrir þann sem á allt. Nudd er eitthvað sem allir ættu að leyfa sér endrum og eins enda er tilfinningin eftir gott nudd óviðjafnanleg. Afslátturinn gildir á öllum kortum og gjafabréfum sem keypt eru fyrir 7. janúar. Svo er hægt að nota kortin eins og maður vill, eftir það. „Ég býð alla velkomna inn í Zen- draumaheim Thai Nuddstofunnar, sem veitir slökun á huga, líkama og sál,“ segir Joomjan. Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook-síðunni Thai Nuddstofan. Thai Nuddstofan er staðsett á annarri hæð, Háaleitisbraut 58–60, 108 Reykjavík Sími: 892-3899 Opið er frá 09–20 alla daga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.