Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Blaðsíða 37
SAKAMÁL 3715. nóvember 2019
– The Most Barbaric Murder-
ers Of Our Time sem fjallar um
marga af iðjusömustu morðingj-
um sögunnar.
Rannsókn á blóð gaf til kynna
að Xiao-Mei hefði sennilega verið
myrt í forstofunni og á einhverj-
um tímapunkti hafði Bonnie
reynt að flýja örlög sín með því að
þrýsta sér upp að uppþvottavél-
inni í eldhúsinu.
Ekki vandaður pappír
Derek sagðist koma af fjöllum.
Hann fullyrti að innbrotsþjófar
hefðu myrt konurnar tvær í íbúð
hans. Einhverra hluta vegna lagði
kviðdómur ekki trúnað á frá-
sögn hans. Kviðdómur hafði enda
heyrt að Derek hefði árið 1989
fengið sjö ára dóm fyrir að nauðga
konu fyrir framan 14 mánaða
barn hennar. Einnig höfðu fimm
fórnar lömb kynferðislegrar árás-
ar borið kennsl á hann í jafn-
mörgum málum sem áttu sér stað
yfir tveggja áratuga skeið.
Derek Brown hafði þess utan
verið grunaður um morð við
rannsókn máls utan London. Því
mátti ætla að Derek væri ekki
vandaður pappír.
Þann 3. október 2008 komst
kviðdómur, á innan við þremur
klukkustundum, að þeirri niður-
stöðu að Derek væri sekur um að
hafa myrt konurnar tvær.
Lokaorð dómarans
Lokaorðið átti Martin Stephens
þann 6. október þegar hann
dæmdi Derek til 30 ára fangelsis-
vistar. „Við getum aðeins spek-
úlerað í hvað þú gerðir við þessar
konur áður en þú myrtir þær. Þú
hefur ekki sýnt snefil af iðrun og
hvernig þú banaðir þeim vitum
við ekki. Það sem við vitum, er
að þú losaðir þig við lík þeirra á
ógnvænlega áhrifaríkan hátt svo
ekki fyndist arða af líkamsleifum
þeirra.“
Frægð Dereks Brown fólst
kannski ekki í síst í því að hafa
verið dæmdur fyrir tvö morð, án
þess að lík fórnarlambanna hefðu
nokkurn tíman fundist. n
FÓRNAÐ Á ALTARI FRÆGÐAR FÚLMENNIS
n Tvær ungar konur hurfu með skömmu millibili í London n Áttu það eitt sameiginlegt að vinna á götum úti n Derek Brown vildi verða frægur n Honum varð að ósk sinni, um sinn
„Það sem við vitum, er að þú
losaðir þig við lík þeirra á ógn-
vænlega áhrifaríkan hátt svo ekki
fyndist arða af líkamsleifum þeirra.
Xiao-Mei Guo Átti sín einskis ills von.
Bonnie Barrett Var
sennilega auðveld bráð.