Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Qupperneq 40
40 FÓKUS 15. nóvember 2019
Konurnar í
lífi Keanus
n Missti kærustu og dóttur á innan við þremur
árum n Áfallið markaði djúp spor í ástalífinu
Þ
að eru fáir leikarar í Hollywood jafn
dulir og vinsælir og Keanu Reeves.
Hann hefur oft verið kallaður „kær-
asti internetsins“ einfaldlega út af
því hve mögnuð mannvera hann er. Hann
er maður fólksins og kærir sig ekki um glans
og glamúr stjörnuheima. Ástalíf leikarans
hefur verið líkt og lokuð bók og því supu
sumir hveljur þegar hann frumsýndi kær-
ustu sína fyrir stuttu, listakonuna Amöndu
Grant. DV fannst því tilvalið að fara yfir
ástalíf leikarans, sem er allt í bland, sorglegt
og lítilfjörugt.
Ástfangin í laumi
Svo er það hún Alexandra Grant en þau Keanu brutu næstum
því internetið þegar þau mættu saman í galaveisluna LACMA
Art + Film Gala fyrr í mánuðinum. Þau kynntust í matarboði
árið 2009, urðu góðir vinir og unnu að bók saman. Langt er
síðan Keanu hefur mætt með kærustu upp á arminn á rauða
dregilinn en kunnugir segja að Alexandra og Keanu hafi
verið par svo árum skipti. Til að sýna lesendum nákvæm-
lega hve elskaður Keanu er þá endum við greinina á fallegri
athugasemd við frétt á DV um opinberun á ástarsambandi
Alexöndru og Keanus:
„Hann á svo sannarlega skilið að vera loksins hamingju-
samur þessi góður maður hann Keanu Reeves.“
Auðvitað var Keanu orðaður á róm-
antískan hátt við leikkonuna Söndru
Bullock enda áttu þau tvö senuna á
tíunda áratug síðustu aldar í kjölfar
vinsælda kvikmyndarinnar Speed.
Þau staðfastlega neita því hins vegar
að hafa verið par en hafa bæði ját-
að að hafa verið skotin í hvort öðru.
Þegar Keanu mætti í þátt Ellen
DeGeneres um árið sýndi Ellen hon-
um gamalt myndbrot þar sem Sandra
segist hafa verið skotin í honum. Þá
sagði Keanu að þær tilfinningar hefðu
verið gagnkvæmar. „Hún vissi greini-
lega ekki að ég var skotinn í henni.“
Margt benti til þess að Keanu væri
byrjaður með Chinu Chow, dóttur
matarmógúlsins Michaels Chow,
sumarið 2008 þegar þau sáust í fríi
við Miðjarðarhafið saman. Leikar-
inn staðfesti aldrei þann orðróm en
þau virtust fara hvort í sína áttina
eftir fríið. China og Keanu sáust aft-
ur saman í maí á þessu ári og þá var
haft eftir heimildarmanni US Weekly
að China hefði reynt stíft við leikar-
ann.
Háværar sögusagnir voru uppi þess
efnis árið 2004 að Keanu væri byrjaður
með leikkonunni Claire Forlani, sem er
hvað þekktust fyrir leik í Meet Joe Black.
Á samband þeirra að hafa varað til
ársins 2006. Þau hafa hins vegar aldrei
gengist við sambandinu og þegar Claire
var spurð út í það árið 2006 í viðtali við
New York Daily News sagði hún ein-
faldlega: „Við erum góðir vinir“ og hló.
Þá víkur sögunni að átakanlegu
ástarsambandi Keanus við Jenni-
fer Syme. Þau urðu ástfangin
samstundis árið 1998 og ári síðar
var von á barni hjá fjölskyldunni.
Dóttir þeirra, Ava Archer Symes-
-Reeves, var hins vegar andvana
fædd í desember árið 1999. Áfall-
ið stíaði þeim Keanu og Jennifer
í sundur og árið 2000 hættu þau
saman. Einu og hálfu ári síðar
lést Jennifer í bílslysi, aðeins 28
ára gömul, en á þeim tíma var
hún í sálfræðimeðferð við þung-
lyndi. Keanu tjáði sig um þenn-
an hræðilega tíma í viðtali við
Parade árið 2006.
„Sorgin breytir okkur öllum
en hverfur aldrei. Fólk hefur þær
ranghugmyndir að þú getir greitt
úr sorgum þínum og sagt svo
skilið við þær. Það er rangt. Þegar
fólk sem þú elskar er horfið, þá
ertu einn.“
Leikstjórinn Francis Ford
Coppola leikstýrði Keanu í Bram
Stoker‘s Dracula sem frumsýnd
var árið 1992. Þá kynntist Ke-
anu dóttur leikstjórans, Sofiu
Coppola, og þau deituðu um
stutta hríð. Strax í kjölfar sam-
bandsslitanna kynntist Sofia leik-
stjóranum Spike Jonze, en þau
voru gift frá 1999 til ársins 2003.
Keanu var meðal leikara í jólamyndinni Babes
of Toyland sem kom út árið 1986. Á tökustað
kynntist hann leikkonunni Jill Schoelen og
sagan segir að þau hafi fellt hugi saman. Heim-
ildir slúðurrita vestanhafs herma að þau Keanu
og Jill hafi verið saman í þrjú ár, allt til ársins
1989. Eftir að þau hættu saman byrjaði Jill með
leikaranum Brad Pitt og voru þau trúlofuð í þrjá
mánuði áður en neistinn slokknaði.
Missti kærustu og dóttur
Pabbinn í hlutverk Amors
Jólaandinn færði þau saman
„Við erum góðir vinir“
Fríið örlagaríka
Skot í myrkri