Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Page 46
46 15. nóvember 2019STJÖRNUSPÁ
stjörnurnar
Spáð í
Naut - 20. apríl–20. maí
Fiskur - 19. febrúar–20. mars
Vatnsberi -
20. janúar–18. febrúar
Steingeit -
22. desember–19. janúar
Bogmaður -
22. nóvember–21. desember
Sporðdreki -
23. október–21. nóvember
Vog - 23. sept.–22. október
Meyja - 23. ágúst–22 .sept.
Ljón - 23. júlí–22. ágúst
Krabbi - 22. júní–22. júlí
Tvíburi - 21. maí–21. júní
Stjörnuspá vikunnar
Gildir 17.–23. nóvember
Þú nærð að melta og vinna úr hlutum í
hausnum á þér hraðar og betur en flestir.
Því stekkur þú oft áfram á meðan aðrir
skríða. Út af þessum hraða þá missir
þú stundum af smáatriðum og það er
nákvæmlega það sem gerist í mikilvægu
verkefni í vikunni. Þetta skaltu nota sem
lærdóm að staldra stundum við og anda.
Líta á heildarmyndina.
Þú skalt gæta orða þinna í vikunni, hvort
sem það er í vinnunni, vinahópnum eða
ástarsambandi. Þótt þér finnist þú luma
á svörum við flestum spurningum þá
skaltu hugsa þig tvisvar um áður en þú
lætur allt flakka. Orð geta nefnilega rist
ansi djúpt og þú vilt alls ekki skemma þín
góðu sambönd með einhverri fljótfærni
og besservisserhætti.
Það er komið að hreinsun. Ekki þessari
dæmigerðu jólahreingerningu heldur
alvöru hreinsun að innan sem utan. Þú
ert búin/n að fá að liggja í leti og velta
þér upp úr öllum heimsins vandamálum
að undanförnu. Nú skaltu hreinsa til í
þér, bæði andlega og líkamlega. Þú getur
nefnilega ekki breytt öðrum – aðeins þér
sjálfri/sjálfum.
Þú veltir mikið fyrir þér ákveðinni mann-
eskju sem þú áttir einu sinni í ástarsam-
bandi við. Þessi manneskja er búin að
vera mjög áberandi upp á síðkastið, þótt
hún sé ekkert endilega fræg. Þú bara sérð
hana alls staðar. Og þú ferð að velta fyrir
þér hvort þessi manneskja hafi verið eina,
stóra ástin sem slapp. Hafðu hugfast
hvernig samband ykkar endaði – þá
finnurðu svarið.
Þú ert örlítið meyr um þessar mundir, án
nokkurrar sérstakrar ástæðu. Stundum
bera tilfinningar mann bara ofurliði og
það er allt í lagi. Þú verður að taka þess-
um tilfinningum og vinna með þær. Leyfa
þér að gráta þegar þú þarft, leyfa þér
að vera döpur/dapur og leyfa þér líka að
elska og vera glöð/glaður. Ekki skammast
þín fyrir að vera manneskja.
Þú ert minnt/ur á einhverja góða
minningu, hugsanlega bara á samfélags-
miðlum. Það hreyfir við þér um að taka
upp gamlan þráð og demba þér aftur í
verkefni sem þú náðir aldrei að klára. Það
reynist góð og afdrifarík ákvörðun fyrir
þig þar sem þessi endurminning mun
verða hluti af einhverju stærra og meira.
Fjármálin eru í toppstandi hjá vogunum í
þessum heimi eftir smá strögl að undan-
förnu. Þú nærð loksins að hafa yfirsýn yfir
fjármálin og setur það í forgang að hafa
þau í lagi. Vissulega geta peningar ekki
keypt allt í veröldinni en hins vegar skapa
þeir ákveðinn stöðugleika og öryggi sem
þú kannt vel við að hafa og venst fljótt.
Sporðdrekinn hefur látið sjálfan sig sitja
á hakanum undanfarið en nú er breyting
á því. Þú setur sjálfa/n þig í fyrsta sæti
og stjanar við þig, innan hóflegra marka
samt sem áður. Þú sinnir áhugamálinu
þínu, hittir vini og ættingja og gerir vel við
þig í mat og drykk. Hreint út sagt æðisleg
vika fyrir sporðdreka.
Rosalega ertu búin/n að vera að vinna
mikið undanfarið. Þú ert að slíta sjálfri/
sjálfum þér út og það er ekki gott fyrir
neinn – síst fyrir þig. Þú virðist samt ekki
sjá að vinnan er að fara með þig og skilur
ekkert í því að ástvinir þínir séu fjarlægir
og virðist fúlir út í þig. Opnaðu augun og
gefðu þeim meiri tíma með þér. Hlustaðu!
Það hefur verið mikið stuð á þér síðustu
daga og nú er komið að skuldadögum. Nú
þarftu að hvíla lúin bein og halda áfram í
rútínunni sem þú hefur verið út úr síðustu
daga og vikur. Þú átt ekki í miklum
vandræðum með að koma skipulagi á
hlutina en núna reynir á þessa hæfileika
þegar þú nennir ómögulega að snúa aftur
í raunveruleikann.
Þú hefur verið á leið upp metorðastigann
í nokkurn tíma og lagt mikið á þig til að
komast á þann stað sem þú ert á í dag.
Því kemur það þér í opna skjöldu þegar
þú finnur ekki fyrir sama metnaði og áður.
Ekki örvænta – oft þarf ekki nema eitt
spennandi verkefni til að koma þér aftur
á réttan kjöl, nú eða skemmtilega frí-
stund utan vinnu sem blæs þér líf í brjósti.
Þú lendir í smá klemmu í vikunni milli
tveggja vina. Þú segir algjörlega óvart
frá leyndarmáli sem þér var treyst fyrir.
Hugsanlega fannst þér þetta leyndar-
mál ekkert sérstaklega mikilvægt eða
merkilegt en með því að segja frá særir þú
manneskju sem stendur þér nærri. Nýttu
krafta þína í að bæta upp fyrir þessi mis-
tök. Það er hægt að laga nánast allt.
Hrútur - 21. mars–19. apríl
Afmælisbörn vikunnar
n 18. nóvember Reynir Traustason fjölmiðlamaður, 66 ára
n 19. nóvember Pétur Eggerz leikari, 59 ára
n 20. nóvember Kristín Svava Tómasdóttir skáld, 34 ára
n 21. nóvember Björk Guðmundsdóttir tónlistarkona, 54 ára
n 22. nóvember Þorsteinn Víglundsson stjórnmálamaður, 50 ára
n 23. nóvember Ebba Sig, leikkona og uppistandari, 29 ára
Lesið í tarot Þorsteins Más
Ragnheiður og Reynir ástfangin
– Svona eiga þau saman
Ragnheiður Guðfinna
Fædd 27. janúar
1980
Vatnsberi
n frumleg
n sjálfstæð
n mannvinur
n drífandi
n flýr tilfinningar
n sveimhugi
Reynir
Fæddur: 21.
desember 1972
Steingeit
n ábyrgur
n agaður
n góður stjórnandi
n skynsamur
n besservisser
n býst við hinu
versta
Velur hreinskilni
frekar en undanskot
Þ
að má með sanni segja að
Þorsteinn Már Baldvins
son, forstjóri Samherja,
hafi verið mikið á milli
tannanna á fólki í vikunni eftir að
ásakanir um mútuþægni og spill
ingu komu upp. DV ákvað því að
lesa í tarotspil Þorsteins til að sjá
hvað framtíðin ber í skauti sér en
lesendum DV er bent á að þeir
geta dregið tarotspil á vef DV.
Horfir djúpt í eigin barm
Fyrsta spilið sem kemur upp er
6 sverð. Spilið er oftast tákn um
ferðalag eða flutninga, en þeir eru
hér ekki sýndir í góðu ljósi. Þess
ir flutningar tengjast hneykslis
málinu sem nú er komið upp um
Samherja og mikilvægt er að Þor
steinn horfi djúpt í eigin barm og
taki hreinskilni fram yfir undan
skot. Vissulega munu aðstæður
hans lagast með tímanum en að
eins ef hann kemur hreint fram
og tekur ábyrgð á sínum gjörð
um. Ef hann gerir það mun fram
tíðin verða björt, þótt hún verði
gjörólík þeirri framtíð sem hann
ímyndaði sér.
Mikilvægt val
Næst er það 4 bikarar. Þorsteini
leiðist umræðan síðustu og
næstu daga en þessi reynsla mun
efla þroska hans og sjálfið. Hann
á ekki að örvænta þótt erfið
leikarnir virðist óyfirstíganlegir
eða honum finnist hann fastur
í rútínu. Ljóst er að Þorsteinn
stendur frammi fyrir mikilvægu
vali þessa dagana, vali sem gæti
ákvarðað hans framtíð alla. Hann
ætti að staldra við og horfa með
opnum huga á afleiðingar gjörða
sinna. Hann ætti einnig að huga
að breytingum á sínum lífsstíl og
högum til að líða betur.
Erfitt með mannleg samskipti
Loks er það Stríðsvagninn. Þor
steinn er drífandi manneskja og
veit nákvæmlega hvernig hann á
að ná markmiðum sínum og hvar
tækifærin liggja. Hann hefur hins
vegar ekki nýtt þessa hæfileika
vel og spilin biðla til hans að
leysa þann vanda. Finna það sem
raunverulega gefur honum lífs
fyllingu. Hann má ekki gera neitt
í fljótræði heldur af sannfæringu,
jafnvel þótt hann sé ekki viss um
að hann vilji það. Þorsteinn á
erfitt með mannleg samskipti og
þarf að læra að gefa eftir í kring
um þá sem hann umgengst dag
lega. Þorsteinn er kjarkaður en
verður að kunna að lúffa til að
halda áfram að vaxa. n
R
agnheiður Guðfinna
Guðnadóttir, ráðgjafi í
vinnusálfræði og fyrrver
andi fegurðardrottning, og
Reynir Grétarsson, stofnandi og
eigandi Creditinfo Group, opin
beruðu samband sitt á samfélags
miðlum í vikunni, en þau hafa
verið saman um nokkurt skeið.
DV ákvað því að lesa í stjörnu
merki parsins og athuga hvernig
þau eiga saman.
Reynir er steingeit en Ragn
heiður Guðfinna er vatnsberi.
Þegar þessi tvö merki koma
saman þá draga þau fram það já
kvæða í fari hvort annars. Stein
geitin er varkár og afar skynsöm á
meðan vatnsberinn er mikil hug
sjónamanneskja. Á yfirborðinu
virðast Reynir og Ragnheiður
Guðfinna vera algjörar andstæð
ur en þeirra samband er sterkt.
Þau fóru hægt í sakirnar til að
byrja með, enda tekur steingeitin
ekki annað í mál, og hafa nýtt
síðustu mánuði í að kynnast al
mennilega.
Bæði steingeit og vatnsberi
hafa skoðanir á öllu og stund
um virðist sem þessi tvö merki
geti ekki miðlað málum. Það er
hins vegar ekki rétt og þarf mað
ur einungis að vita hvernig á að
nálgast merkin á þeirra forsend
um. Steingeitin þrífst á skipulagi
og hugsar allt til enda. Steingeitin
getur orðið pirruð á sveimhug
anum vatnsberanum en á móti
kemur að vatnsberinn kynnir fyrir
steingeitinni nýjan og spennandi
heim. Að sama skapi skilur vatns
berinn oft ekki skipulagsáráttu
steingeitarinnar en kann að meta
öryggið sem fylgir merkinu.
Í raun snýst þetta í grunninn
um málamiðlanir, eins og í hverju
öðru sambandi, en hjá steingeit
og vatns
bera þarf
miklar
málamiðl
anir svo bæði
merki geti blómstrað. Bæði
Reynir og Ragnheiður Guðfinna
eru metnaðargjörn og kæmi
ekki á óvart þótt þau myndu taka
höndum saman í öðru en ástinni
á næstunni – nefnilega einhverju
viðskiptatengdu. Það er allavega
alltaf líf og fjör á þessu heimili, en
þó hæfilega skipulagt. n