Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2019, Síða 4
4 4. október 2019FRÉTTIR
Það er
staðreynd að…
Að ofhugsa hlutina veldur þunglyndi.
Flestar hákarlaárásir eiga sér stað
nálægt ströndum.
TYPEWRITER er lengsta orðið sem
er hægt að skrifa með bara einni
línu á lyklaborðinu.
Leikarinn Bill Murray hefur unnið til
47 verðlauna á ferlinum en aldrei
unnið Óskarinn.
Forsætisráðherra vor, Katrín Jak-
obsdóttir, elskaði leikarann Kevin
Bacon í uppvextinum.
Hver er
hann
n Hann er fæddur
árið 1959
n Hann er alinn upp í
Vogunum
n Hann er söngvari
hljómsveitarinnar Magic Pie
n Hann kennir börnum og ungling-
um í vanda
n Hann hefur þrisvar sinnum sung-
ið í úrslitakeppni Eurovision
SVAR: EIRÍKUR HAUKSSON
„Oft stimpluð sem hyskið í dalnum“
n Ítrekuð skemmdarverk og takmarkað eftirlit n Íbúar ósáttir
H
ópur fólks hefur síðustu
vetur neyðst til að búa í
húsbílum og hjólhýsum
á tjaldsvæðinu í Laugar-
dal vegna hás leiguverðs og
íbúðaskorts á höfuðborgarsvæð-
inu. Tjaldstæðin sem ætluð eru
til langtímaleigu eru afmörkuð og
aðskilin frá því svæði sem er ætl-
að ferðamönnum. Nýverið tók
gildi samningur um að Íþrótta-
og tómstundaráð Reykjavíkur sæi
um rekstur langtímasvæðisins en
Farfuglar ses., sem hefur undan-
farin ár annast rekstur tjaldsvæð-
isins, heldur áfram rekstri ferða-
mannasvæðisins. Við tjaldsvæðið
stendur gistiheimilið Reykjavík
City Hostel sem er á vegum Far-
fugla.
Með aðkomu ÍTR eru íbúar
á tjaldsvæðinu í Laugardal, sem
eru á samningi til langtímaleigu,
þó misbjartsýnir en vongóðir um
breytingar í hátterni og umsjón
með svæðinu. Að sögn margra
þeirra hefur ástandið lengi verið
óboðlegt og til skammar.
Eiturlyfjaneysla, skemmdar-
verk og takmarkað eftirlit
DV spjallaði við ýmsa einstak-
linga vegna málsins; þar á meðal
tvo fyrrverandi leigjendur á svæð-
inu og starfsmann á vegum Far-
fugla sem gegnir hlutverki varð-
ar og gætir þess að fólk svindli sér
ekki inn á svæðið. Eftir samtal við
þessa einstaklinga er ljóst að fólk
dvelur þarna af ólíkum ástæðum,
flestir vegna erfiðra aðstæðna á
leigumarkaði en aðrar ástæður
voru einnig nefndar. Allir íbúar á
tjaldsvæðinu höfðu rafmagn til að
kynda upp hjá sér en virðast allir
vera sammála um að slæmt að-
gengi á salernið sé vandamál og
almenn umgengni, bæði ungs
fólks og ferðamanna.
Umræddir einstaklingar kusu
allir að halda nafnleynd, vegna
ólgu á milli leigutaka og forsvars-
manna Farfugla, en vörðurinn
fullyrðir að reglulega komi upp
mál vegna neytenda eiturlyfja og
skemmdarverka á svæðinu. Vörð-
urinn er á vakt til klukkan 23.30 og
því er ekkert eftirlit með svæðinu
eftir þann tíma og fram til næsta
morguns. Það sama gildir um
þjónustuhúsið á tjaldsvæðinu,
en þar er aðgengi að matsal og
hjartastuðtæki, svo dæmi sé tekið.
Einn af fyrrverandi leigutökun-
um fyrrnefndu stendur í málaferl-
um við Farfugla og að sögn hans
hefur það lengi tíðkast að fólk
svindli sér inn á svæðið eftir mið-
nætti og komi sér burt næsta
morgun áður en næsti vörður
kemur á vakt, til að forðast næt-
urgjald.
Annar heimildarmaður,
sem kallar sig Grétar, segir
það furðulegt að ekki sé búið
að girða af tjaldsvæðið fyrir fólk
í búsetu, í ljósi þess að ekkert eft-
irlit sé þegar utanaðkomandi ung-
menni valda skemmdum á
svæðinu, tjaldvögnum eða
hjólhýsum. Slíkt kemur
ítrekað fyrir og segir Grét-
ar að helst þyrfti að girða af
svæðið þar sem Farfugl-
ar bera ekki ábyrgð á
tjóninu. Grétar vill
einnig meina að skortur á eftirliti
leiði til þess að margir ferðamenn
þverbrjóti skráða reglu um að það
þurfi að vera að lágmarki fjögurra
metra bil á milli tækja, meðal
annars vegna brunavarna. Þetta
hefur verið tilkynnt til Eldvarnar-
eftirlitsins en ekkert verið gert í
því, sem Grétar segir varða við lög.
Ekki bjóðandi verstu óvinum
Annar heimildarmaður sem rætt
var við, sem kallar sig Róbert,
segir umgengni ferðamanna og
utanaðkomandi á tjaldsvæðinu
vera ógeðfellda og salernisað-
stöðu sérstaklega ekki bjóðandi
verstu óvinum, að Farfuglar sinni
takmörkuðum þrifum. Þetta segir
hann vera sérlega óþægilegt fyrir
barnafólk í langtímaleigu, ekki
síst þegar kaldur veturinn geng-
ur í garð.
„Ekki bætir úr skák að það sé
enginn hiti eða einangrun í sal-
ernishúsunum. Maður verður
fárveikur af því að gera þarfir sína
á morgnana um hávetur og það
ætti ekki að vera svo dýrt að koma
fyrir plexígleri eða einhverjum
fjanda til að gera þetta boðlegra,“
segir Róbert. „Allan ársins hring
er svæðið morandi í ferðafólki og
er ómögulega hægt að skilja hvert
peningarnir fara. Þeir fara ekki í
þrifnað, utanumhald eða starfs-
fólk.“
Þá segir Róbert að leigutakar
hafi ítrekað haft samband við
Heilbrigðiseftirlitið en ekkert hef-
ur bólað á svörum. „Það þýðir ekki
annað en að ganga í sandölum
um þetta svæði. Ef þú slysast til
að ganga berfættur
um klósett- eða
sturtusvæðið
ertu einfald-
lega kominn í
þá hættu að fá
fótasvepp, eins
og kom fyr-
ir einn sem bjó
með okkur,“
segir hann.
„Um-
gengni
ferða-
manna er
ekkert skárri
heldur og það hefur margoft
komið fyrir að fólk sé ríðandi
þarna á klósettunum. Þetta er
allt opið og eftir miðnætti vaktar
þetta enginn.“
Leigutökum bannað að versla
við gistiheimilið
Í samningi leigutaka á langtíma-
svæðum kemur fram að ekki
skuli bera erindi eða ábendingar
upp við starfsfólk Farfugla. Grétar
segir málið hins vegar snúnara og
mega umræddir leigutakar ekki
njóta aðgengis á veitingasvæði
eða kaffihúsi gistiheimilisins yfir-
höfuð. Þeim er neitað afgreiðslu.
Leiguverð á langtímasvæðum
er 43 þúsund krónur á mánuði
en við bætast 15 þúsund krón-
ur ef maki fylgir með. Innifalið
í þessu verði er notkun á plássi,
rafmagni, salernis- og þvotta-
aðstöðu. Hins vegar kostar hver
notkun á þvottavél og þurrkara –
hvort um sig – 700 krónur hvert
skiptið.
Slegist um plássið
Áður en Íþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkurborgar tók við svæðinu
stóð til að loka fyrir langtímaleigu í
kringum síðasta vetur. Samkomu-
lag náðist við rekstraraðila tjald-
svæðisins um að langtímastæðin
yrðu opin til 15. maí þegar rekstur
fyrir ferðamenn hefst og sumar-
gjaldskrá og hefðbundnar reglur
um leigutíma taka gildi.
„Það átti að hrekja okkur út
af svæðinu, en við högguðumst
ekki. Þetta endaði með stríði og
miklum leiðindum við forsvars-
menn Farfugla, sem á endanum
sáu að við ætluðum ekki neitt.
Á endanum fengum við endur-
nýjun á samningi yfir veturna en
margir sem eru þarna enn hafa
samt engan stað til að sækja á
sumrin. Þau eiga að koma sér
burt svo ferðamennirnir geti séð
hvað Ísland er æðislegt. Forsvars-
menn Farfugla líta niður til fólks-
ins sem leigir þarna, það er oft
stimplað sem „hyskið í Daln-
um“,“ segir Róbert.
Hann segir að forsvars-
menn Farfugla geri lítið í
eigin valdi til að betrumbæta
ímynd fólks sem býr í tjaldvögn-
um og hjólhýsum. „Það er eins
og þau vilji gera okkur að hyskinu
með öllu aðgerðarleysinu. Þeirra
hugarfar hefur einfaldlega verið:
„Ef þér líkar þetta ekki, geturðu
farið eitthvert annað,“ sem er ekki
í boði fyrir suma. Hvað eigum við
að gera?“
Ekki náðist samband við
Þorstein Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóra Farfugla, við
vinnslu greinarinnar.
Breytt hugarfar borgarinnar
Í fyrrasumar var haldinn auka-
fundur í borgarráði, en þar voru
meðal annars gerðar tillögur til að
lækka gjöld á langtímaleigu hjól-
hýsa í Laugardalnum. Enn frem-
ur var rætt um að koma upp nýju
neyðarskýli fyrir haustið. Eyþór
Arnalds, borgarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins, hefur lengi vonast til
þess að breytingar verði gerðar
í málefnum þessa hóps og segir
niðurstöður fundarins hafa verið
jákvæðar. Í samtali við DV segir
Eyþór málið enn vera í vinnslu,
en að á dagskrá sé að virða þess-
ar kröfur fólks með betri salernis-
aðstöðu svo dæmi sé tekið,
og sé þetta ákveðið neyðarúr-
ræði. „Tjaldsvæðið í Laugardaln-
um er ákveðin birtingarmynd
húsnæðis vandans,“ segir hann.
„Borgin hefur verið að taka
þetta meira alvarlega. Fram að
síðustu kosningum var eins og
þetta kæmi borginni lítið við en
niðurstaðan núna er sú að lang-
tímaleigan fái að halda áfram og
verði gjaldið ekki hækkað.“
Að sögn Eyþórs hefur
húsnæðis vandi fólks aukist tölu-
vert frá árum áður og virkilega
þurfi að betrumbæta aðstæður í
Laugardalnum á allan veg.
„Borgin tók ekki á þessum
málum áður, en þeir flokkar sem
hafa verið í minnihluta undan-
farið telja þetta ástand vera mikið
forgangsmál. Okkur þykir mikil-
vægt að leigutakar, sem hafa ekki
önnur úrræði, fái að vera þarna
allan ársins hring. Það hefur
smám saman verið að breytast
hjá borginni að ekki hafa þetta
svæði eingöngu fyrir túristana.“ n
Að sögn núverandi og fyrrverandi leigutaka eru
þrif salernissvæðis afar takmörkuð og illa unnin.
„Ef þú slysast til að ganga berfættur um
klósett- eða sturtusvæðið ertu einfaldlega
kominn í þá hættu að fá fótasvepp.“
Að sögn Róberts kemur
oft fyrir að fólk skilji eftir
„glaðning“ í sameiginlegri
sturtuaðstöðu svæðisins.
Eyþór Laxdal Arnalds.