Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2019, Qupperneq 45
FÓKUS 454. október 2019
Söngkonan Britney Spears bar
heldur óhefðbundinn höfuð-
búnað þegar hún gekk að eiga
æskuvin sinn, Jason Alexander
– nefnilega derhúfu. Vinirnir
tóku hvatvísa ákvörðun í
janúar árið 2004 og giftu sig
í litlu, hvítu kapellunni í Las
Vegas. 55 klukkustundum síð-
ar sótti Britney hins vegar um
ógildingu sökum þess að hún
skildi ekki fyllilega hvað hún
var að gera þegar hún sam-
þykkti hjónaband.
Samband leikarans Nicolas Cage og Eriku Koike er með þeim
skrautlegri. Þau sáust fyrst saman á Púertó Ríkó í apríl árið 2018 og
gengu í það heilaga 23. mars sama ár í Las Vegas. Aðeins fjórum
dögum síðar sótti leikarinn um ógildingu og sagðist hafa verið of
fullur til að kvænast. Þá fauk í Eriku sem sagðist í samtali við Daily
Mail vera mjög sár því leikarinn hefði „smánað“ hana opinberlega.
Tónlistarkonan Michelle Phillips lék í kvikmyndinni The Last
Movie í leikstjórn leikarans Dennis Hopper. Eftir að tökum lauk
á myndinni gengu þau Michelle og Dennis í það heilaga, nánar
tiltekið þann 31. október árið 1970. Átta dögum síðar var ballið
búið, en Dennis var í mikilli neyslu á þessum tíma og alræmdur
fyrir ófarir í kvennamálum.
Guns N’ Roses-söngvarinn Axl Rose kvæntist Erin Everly þann
28. apríl árið 1990, en Erin er hvað þekktust fyrir að veita Axl inn-
blástur til að semja lagið Sweet Child o’ Mine. Sagan segir að Axl
hafi farið á skeljarnar klukkan fjögur um nótt og sagt: „Ég drep mig
ef þú kvænist mér ekki.“ Þau giftu sig í Las Vegas og fjórum vikum
seinna sótti rokkarinn um skilnað. Axl og Erin byrjuðu hins vegar
aftur saman en ári síðar var hjónabandið ógilt vegna grafalvarlegra
ásakana Erin um heimilisofbeldi.
Það var sannkallað drauma-
brúðkaup þegar leikkonan og
tónlistarmaðurinn giftu sig
á Bandarísku Jómfrúaeyjum
í maí árið 2005. Ástarloginn
slokknaði þó fljótt, nánar
tiltekið eftir fjóra mánuði.
Seinna meir lýsti Renée hjóna-
bandinu sem „mjög dap-
urlegri reynslu.“
Shannen og Ashley ákváðu
að láta pússa sig saman
eftir aðeins tveggja vikna
samband árið 1993. Þau
komu vinum og fjölskyldu
í opna skjöldu þegar þau
giftu sig í bakgarði við
heimili leikkonunnar. Fimm
mánuðum síðar var gaman-
ið búið og þau skildu.
Jennifer giftist dansara sínum
þann 29. september árið 2001.
Jennifer tjaldaði öllu til enda
var hún nýbúin að græða á
tá og fingri eftir útgáfu lags-
ins Love Don’t Cost a Thing.
Hún klæddist brúðarkjól frá
Valentino og lét skreyta með
tíu þúsund rósum. Allt þetta
dugði ekki til og entist hjóna-
bandið aðeins í átta mánuði.
Jennifer og Chris staðfestu
skilnað sinn í júní árið 2002.
Sambandi Liams og Miley mætti helst lýsa sem „haltu mér,
slepptu mér“, en þau deituðu við og við síðan þau kynntust árið
2009. Þann 23. desember í fyrra giftu þau sig við litla athöfn.
Miley klæddist kjól frá hönnuðinum Vivianne Westwood og kost-
aði dressið ríflega milljón. Þann 10. ágúst síðastliðinn gaf Miley
út yfirlýsingu þar sem hún staðfesti sambandsslitin, en grunur
vaknaði um að þau væru hætt saman eftir að söngkonan deildi
myndum af sér án giftingarhringsins. Þetta kom Liam í opna
skjöldu og vissi hann ekkert um skilnaðinn fyrr en hann sá yfir-
lýsinguna á samfélagsmiðlum. Aðeins nokkrum klukkustundum
eftir að yfirlýsingin kom út, fóru myndir af Miley og nýju kærustu
hennar, Kaitlynn Carter, í birtingu. Þær er nú hættar saman.
Hryssingsleg hjónabönd
n Brúðkaup stjarnanna eru oft ríkmannleg en vara sum ansi stutt n Hér eru þau allra stystu
Axl Rose og Erin Everly 26 dagar
Liam Hemsworth og Miley Cyrus 8 mánuðir
Britney Spears og
Jason Alexander
55 klukkutímar
Jennifer Lopez og Cris
Judd 8 mánuðir
Nicolas Cage og Erika Koike 4 dagar
Dennis Hopper og Michelle Phillips 8 dagar
Renée Zellweger og
Kenny Chesney
4 mánuðir
Shannen Doherty
og Ashley Hamilton
5 mánuðir