Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2019, Blaðsíða 46
46 FÓKUS 4. október 2019
YFIRHEYRSLAN
Davíð Örn
Hákonarson
Davíð Örn Hákonarson matreiðslumaður hefur
starfað í Danmörku og París undanfarin áratug.
Hann lifir fyrir starfið, hráefnin og lífstílinn sem
fylgir með en hann segir það að skapa, þroskast og
læra nýja hluti skipta mestu máli í lífinu. Davíð Örn
er í yfirheyrslu helgarinnar.
Hvar líður þér best?
Í náttúrunni eða innan um dýr eða í djúsí
kombói af hvoru tveggja! En ef ég ætti
að nefna staði þar sem mér líður best þá
fer það algjörlega eftir því hvaða andi er
í mér. Í eldhúsi með hníf í hönd eða uppi í
sumarbústað í Bláskógabyggð, á báðum
stöðum er ég „heima“.
Hvað óttastu mest?
Hlýnun jarðar og hversu hægt við erum að
aðlaga okkur þessari ógn. Ég er óttast um
að við séum ekki nógu hrædd við þetta
og að við vöknum fyrst þegar það er orðið
of seint.
Einnig hræðist ég að missa edrúmennsk-
una mína, hún er mér nokkuð mikilvæg.
Hvert er þitt mesta afrek?
Ætli það sé ekki edrúmennskan og það að
geta horfst í augu við sjálfan mig og alla
mína galla og unnið markvisst í þeim. Verð
að aga mig svo ég geti laga’ mig!!
Hundurinn minn er líka enn á lífi, sem er
í raun afrek út af fyrir sig eftir nokkrar
aðgerðir, bílslys og fleira. Hann lætur hafa
svolítið fyrir sér stubburinn, en hann er við
hestaheilsu í dag.
Furðulegasta starf sem þú
hefur tekið að þér?
Vá, þessi er erfið. Ég hef í raun alltaf unnið
í eldhúsi eða á veitingastað en ég hef
tekið að mér furðuleg verkefni. Ég stóð
einu sinni fyrir smáréttaveislu fyrir 200
manna opnunarpartí á safni í Danmörku.
Byggingin sem var hálfkláruð var grafin að
stóru leyti niður í jörðina og án rennandi
vatns og hita. Rafmagnsleiðslur voru á
vægast sagt mjög óheppilegum stöðum
og það var ekki þak á helmingnum af
byggingunni. Og ekki nóg með það því það
rigndi, í október.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni?
Það eru svo margir sem koma til greina.
Þeir hljóma allir mikið meira „cool“ á
ensku.
„The guide to get fucked and unfucked
real quick“, „Well that escalated quickly“,
„Cocaine, butter and organic vegetables.
A tragicomedy“ eða lauflétta, barnvæna
útgáfan „A cook and his dog“.
Hvernig væri bjórinn Davíð
Örn?
Bitur til að byrja með en því meira sem
þú drekkur fær hann sæta tóna af sítrus
og kamillu. Ég get verið svolítið „bitter -
sweet“ á köflum.
Besta ráð sem þú hefur feng-
ið?
Þau eru þrjú. Það fyrsta kemur frá pabba
mínum og hljómar nokkurn veginn svona:
„Ef þú vil að hlutirnir séu gerðir rétt þá
gerir þú þá sjálfur“. Annað kemur frá
móðir minni, hún sagði mér að vera aldrei
sjálfselskur í samböndum og muna alltaf
að sjá vel um maka minn. Það þriðja gerði
bandaríski grínistinn Will Rogers frægt:
„Common sense ain’t common“, það hefur
verið rótfast í mér frá unglingsárum.
Hvert er leiðinlegasta hús-
verkið?
Það er í raun ekkert leiðinlegt húsverk, það
verður alltaf það sem þú gerir úr því! Mér
finnst ekkert leiðinlegt að þrífa, en stund-
um þarf ég að peppa mig svolítið í gang.
Mér finnst gott setja Billie Holiday á fóninn
og negla í mig fjórföldum espressó ef ég er
ekki í gírnum.
Besta bíómynd allra tíma?
Það er nánast ómögulegt að svara
þessari spurningu. Ég get nefnt þrjár sem
höfðu mikil áhrif á mig: Irréversible,
frönsk mynd leikstýrt af Gaspar Noé,
Antichrist eftir Lars Von Trier og
Intouchables, frönsku útgáfuna, ekki
Hollywood. Ég er einnig mikill Tar-
antino- og Guy Ritchie-aðdáandi.
Einnig American Phsyco, Scarface,
Silence of the Lambs, Gladiator,
Boondock Saints og ég get haldið
endalaust áfram.
Hvaða hæfileika
myndir þú vilja búa
yfir?
Þolinmæði, er það ekki
hæfileiki? Það eða setja
saman Ikea-húsgögn. En
það er bein tenging frá því
og þolinmæði.
Hver er mesta
áhætta sem þú
hefur tekið?
Þær eru orðnar nokkuð
margar. Stundaði það af mikilli
innlifun í mörg ár að taka mikla
áhættu. En slapp lifandi frá því öllu.
Þetta er kannski mjög „heimspekilegt“ en
ég myndi segja að það að lifa væri ákveðin
áhætta, þar sem maður veit aldrei hvað er
handan við hornið.
Hvaða frasi eða orð fer mest í
taugarnar á þér?
„Live, love, laugh“ er eitthvað sem hver
einasta fruma í líkamanum á mér getur
ekki.
Öll yfirdrifin „inspirational quotes“ með-
fylgjandi ýktum „selfies“ á Instragram er
eitthvað sem veldur mér velgju.
Hvaða getur þú sjaldnast
staðist eða ert góður í að rétt-
læta að veita þér?
Kleinuhringir er mín „guilty pleasure“. Ef ég
dett í „donuts“ þá borða ég sex og drekk
lítra af kókómjólk með. Ég er mjög veikur
einstaklingur þegar það kemur að því. Ég
er líka brjálaður í kökur og súkkulaðikakan
hennar mömmu er á toppnum. Þegar hún
er bökuð borða ég helminginn og hinir í
boðinu geta deilt á milli sín restinni.
Hvað er á döfinni hjá þér?
Ég ætla að heimsækja gamlar slóðir í
Kaupmannahöfn í lok mánaðarins og svo
er það bara vinnan. Annars er ég með fullt
af öðrum hugmyndum sem mig langar
gífurlega mikið að hrinda í framkvæmd
sem fyrst, og ég ætla að reyna að búa mér
til tíma til að koma því í gang.
Verð að aga mig svo
ég geti laga' mig!!
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is
M
Y
N
D
E
Y
Þ
Ó
R
Á
R
N
A
S
O
N