Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 22
Allt fyrir bílinn 19. september 2019KYNNINGARBLAÐ Bílasmiðurinn: Hágæðavörur á sanngjörnu verði Fyrirtækið Bílasmiðurinn var stofnað árið 1980 af Leifi Þor-leifssyni bifreiðasmíðameist- ara og verður 40 ára á næsta ári. Fyrstu árin var fyrirtækið í Lágmúla 7 en fluttist í eigið húsnæði á Bílds- höfða 16 nokkrum árum síðar þegar Ártúnshöfðinn var að byggjast upp sem nýtt iðnaðarhverfi. „Verslunar- rekstur í íslensku landslagi í kringum 1980, í óðaverðbólgu og höftum, var enginn hægðarleikur og má með sanni segja að vel hafi þurft að halda utan um reksturinn á þeim tíma,“ segir Páll Þór Leifsson einn af eigendum Bílasmiðsins hf. Í dag er reksturinn í öruggum höndum barna Leifs. Aðalstarfsemi fyrirtækisins er verslun og þjónusta með vörur tengdar atvinnubifreiðum og tækjum, ásamt iðnvörum fyrir alls kyns smíði til lands og sjávar. Afar fjöl- breytt vöruúrval er að finna í verslun- inni og þar sem aðalstarfsemi þess fer fram. Fyrirtækið leggur mikinn metn- að og áherslu á hágæðavöru og að veita fyrirtaks þjónustu og ráðgjöf. Eitt af meginmarkmiðum er að geta boðið vörur sem ekki fást víða annars staðar á sanngjörnu verði sem er oft lægra en á sömu eða sambærilegri vöru erlendis. Mikil áhersla er að versla við evrópsk framleiðslufyrirtæki og birgja til að tryggja góð og hagstæð kjör fyrir viðskiptavini. Þá hefur Bílasmiðurinn hf. söluumboð fyrir allmörg heims- þekkt vörumerki í greininni. Engin þörf á að skafa bílrúðurnar Fyrirtækið rekur einnig þjónustu- verkstæði fyrir þýsku WEBASTO miðstöðvarnar sem eru alþekktar hér á landi fyrir áreiðanleika. Miðstöðv- arnar frá WEBASTO hafa sparað bíl- sköfurnar og hlýjað mörgum landan- um á köldum vetrarmorgnum þegar hrímið leggst á bílrúðurnar. RECARO bílstólar fyrir öryggið Annað heimsþekkt vörumerki er RECARO sem er einn stærsti fram- leiðandi í heimi á stólum fyrir farar- tæki, allt frá keppnisstólum upp í sérútbúin sæti fyrir atvinnubílstjóra, ásamt barnabílastólum sem hafa verðir afar vinsælir og hlotið fjölda verðlauna fyrir hönnun og öryggi. Gífurlegt úrval Bílasmiðurinn er einnig með landsins mesta úrval af ýmiss konar þéttilist- um ásamt einangrunarvörum fyrir bifreiðar og báta. Einnig er úrval af bílaperum, og gaspumpum. Að auki fæst úrval varúðar- og vinnuljósa fyrir atvinnu- og vinnuvélar ásamt fylgihlutum svo og brettum fyrir kerr- ur og vörubíla. Ekki má gleyma úrvali af vörum fyrir báta og húsvagna t.d. ísskápa og miðstöðvar o.s.frv. Nýtt í Bílasmiðnum Nýjasta varan í versluninni er heimahleðslustöðvar frá WEBASTO: WEBASTO Pure. Um er að ræða glæsi- lega hönnun sem er framleidd í Þýska- landi samkvæmt stöðlum bílafram- leiðanda. Gæða vara á góðu verði. Bílasmiðurinn hf. er staðsett að Bíldshöfða 16, Reykjavík. Nánari upplýsingar má finna á bilasmidurinn.is Sími: 567-2330 Vefpóstur: bilasmidurinn@bilasmidurinn.is Fylgstu með á Facebook: Bílasmiður Yfirstígðu óttann og komdu á námskeið hjá Stílvopninu inn hf. og Recaro Ísland Twitter: Bílasmiðurinn hf Myndir: Eyþór Árnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.