Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 47
SAKAMÁL 4713. september 2019 MÆÐGURNAR OG MARY n Undarlegur ástarþríhyrningur n Mary hvatti ástmann sinn til að kvænast annarri konu Á rið 1866 fæddist á Englandi stúlkubarn sem síðar var skírt Mary Eleanor, ættar- nafnið var Wheeler. Lítið er vitað um bernsku hennar en leiddar hafa verið að því líkur að faðir hennar hafi verið Thomas nokkur Wheeler sem var sakfelld- ur fyrir morð á manni að nafni Edward Anstee og síðar hengd- ur. Einhver áhöld virðast vera um sannleiksgildi þeirra vangaveltna. Ástarþríhyrningur Að sögn tók Mary Eleanor upp eftirnafnið Pearcey eftir að hún og trésmiður að nafni John Charles Pearcey rugluðu saman reytum. Fjöllyndi Mary fór ekki vel í tré- smiðinn og þau slitu samvistir að hans frumkvæði. Síðar tók Mary saman við húsgagnaflutningamann, Frank Hogg. Þá var annað uppi á ten- ingnum því Hogg var ekki við eina fjölina felldur og átti þegar þar var komið sögu í það minnsta eina ástkonu, Phoebe Styles. Þessi þríhyrningur hefur verið hálfundarlegur. Phoebe varð barnshafandi og Hogg kvæntist henni að áeggjan Mary og hjón- in settust að í Kentish Town í London. Phoebe Styles fæddi síðan stúlkubarn sem skírt var í Phoebe í höfuð móður sinnar. Leið nú tíminn og segir fátt af hjónabandi eða heimilislífi í ranni Hogg-fjölskyldunnar eða þætti Mary Eleanor í því. Öskur og óhljóð Þann 24. október, árið 1890, dró til tíðinda. Mary Eleanor bauð Phoebe í heimsókn. Phoebe þáði boðið og kom heim til Mary og hafði Phoebe yngri með sér. Hvað þeim fór á milli er ekki vitað, en hitt er vitað að nágrannar Mary heyrðu öskur og hljóð sem bentu til átaka um klukkan fjögur síð- degis þennan dag. Ekkert var aðhafst vegna þessa, fólk sinnti sínu og kvöld tók við af degi. Að kvöldi þessa dags fannst kvenmannslík á ruslahaugum í Hampstead norður af Kentish Town. Höfuðkúpan var mölbrot- in og höfuðið hafði nánast ver- ið skilið frá líkamanum. Í um 1,6 kílómetra fjarlægð fannst yfirgef- inn, svartur barnavagn og voru voðirnar í honum alblóðugar. Lík eins og hálfs árs barns fannst í Finchley, norður af Hampstead, og ljóst að það hafði verið kæft til bana. Blóðug híbýli Kennsl voru borin á líkin og ljóst að um Phoebe eldri og yngri var að ræða. Eftirgrennslan lögreglu leiddi í ljós að sést hafði til Mary Eleanor á götum í þessum hluta London, eftir að húma tók að kvöldi. Hafði Mary ýtt á undan sér barnavagni Phoebe. Framkvæmd var húsleit í híbýlum Mary og þar var blóð uppi um veggi og blóðslettur í lofti. Fann lögreglan blóðugt pils og svuntu og ýmsa aðra hluti blóðuga, þar á meðal skörung og kjötskurðarhníf. Aðspurð hvað hefði gengið á sagði Mary að hún „ætti í vand- ræðum með mýs og væri að reyna að drepa þær.“ Að sögn eins sem kom að rannsókninni þá söngl- aði Mary „Drepa mýs, drepa mýs, drepa mýs!“, þegar hún var spurð sömu spurningar á seinni stigum málsins. Hvað sem því líður þá var Mary Eleanor kærð fyrir morð. Hún hélt ávallt fram sakleysi sínu, en var sakfelld og síðan hengd þann 23. desember árið 1890. Vaxmynd af Mary Þess má geta að málið vakti heil- mikla athygli fjölmiðla þess tíma. Vaxmyndasafn Madame Tussauds lét gera vaxmynd af Mary Eleanor sem var til sýn- is í hryllingsdeild safnsins. Vax- myndasafnið keypti barnavagn Phoebe og ýmsa muni úr eldhúsi Mary. n „Þá sönglaði Mary „Drepa mýs, drepa mýs, drepa mýs!“ Mary Eleanor Pearcey Náði ekki háum aldri.Vaxmynd af Mary Madame Tussauds-safnið fékk mikinn áhuga á málinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.