Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 2
2 13. september 2019FRÉTTIR
V
iktor Andersen er kunn-
ugur mörgum Íslending-
um en hann hefur verið
mjög opinskár varðandi
þær fegrunaraðgerðir sem hann
hefur gengist undir. Hann ræddi
um fegrunaraðgerðir ásamt Öldu
Coco í Föstudagsþættinum Fókus
í mars á þessu ári. Viktor opnaði
sig í Instagram Story í vikunni
um ljót skilaboð sem hann fær
varðandi útlit sitt. Hann sagði
skilaboðin koma frá öðrum
samkynhneigðum karlmönn-
um. „Hommar … mestu „haters
ever“,“ skrifaði hann.
„Ég fæ svona skilaboð nær
einungis frá öðrum hommum.
Ég fæ eiginlega aldrei svona
athugasemdir frá öðrum hópum.
Það sem ég póstaði í Instagram
Story í gær er eitthvað sem ég
er að upplifa nær daglega inni á
Grindr, sem er stefnumótasíða
homma,“ segir Viktor í samtali við
DV.
„Þá er ég að fá skilaboð, nær
oftast frá nafnlausu fólki með
myndalausa prófíla, sem eru að
setja út á útlit mitt því ég er búinn
að gangast undir nokkrar fegr-
unaraðgerðir,“ segir Viktor.
Það er ekki einungis á Grindr
sem Viktor segist upplifa nei-
kvætt viðmót frá öðrum samkyn-
hneigðum karlmönnum.
„Eins og ég sagði í gær, þá
finnst mér hommar algjörir
„haters“ en ég er auðvitað ekki
að alhæfa. Ég hef líka fengið já-
kvæð skilaboð frá mörgum. En
það hafa aðrir samkynhneigðir
karlmenn sagt við mig að þeir séu
að upplifa það sama og ég og eiga
ekki marga vini innan þessa sam-
félags. Það er stór ástæða fyrir því
að ég get talið samkynhneigða
vini mína á fingrum mér,“ segir
Viktor.
„Ég hef aldrei einhvern veginn
upplifað mig sem hluta af þessu
samfélagi, ef svo að orði má kom-
ast, ég veit svo sem ekki af hvaða
ástæðu það er. En þetta „hate“
sem ég er að fá er aðallega út af
útliti mínu. Ég er auðvitað ekki
að segja að ég sé fullkominn, en
ég gef öllum séns og reyni eftir
fremsta megni að koma fram við
aðra eins og ég vil láta koma fram
við mig.“
Hvað viltu segja við þá sem
hafa álit á því hvernig þú lítur út?
„Ég ætla bara að halda áfram
að vera samkvæmur sjálfum mér
og ber höfuðið hátt á þeirri leið
sem mig langar að fara og geri
það sem ég vil. Skítt með alla
aðra,“ segir Viktor.
„Ég veit bara ekki af hverju
sumir gefa sér þetta skotleyfi og
eru að koma með einhver óþarfa
komment. Maður gerir þetta fyrir
sig. Mér finnst ótrúlega fyndið að
fólki finnist það vera knúið til að
segja eitthvað. Það er ekki eins og
þetta sé að hafa bein áhrif á þau
eða einhverja aðra. Myndu þeir
segja eitthvað ef þeir mættu mér
úti á götu í stað þess að vera á bak
við nafnlausan prófíl á Grindr?“
Viktor fær mestmegnis skila-
boð á Grindr, en hann segir fólk
finna aðrar leiðir til að tjá sig um
útlit hans.
„Vinir mínir hafa fengið skila-
boð, frá samkynhneigðum að-
allega, á Instagram um af hverju
ég er að þessu og ef þeir séu vin-
ir mínir þá ættu þeir að segja mér
að hætta þessu. Sem betur fer
á ég bestu vini í heimi sem taka
mér eins og ég er og leyfa mér að
vera eins og ég er og svara þeim
fyrir mig.“
Þrátt fyrir að fá neikvæð skila-
boð nánast daglega lætur Viktor
það ekki á sig fá.
„Ég hef þurft að þola ýmisleg
komment í gegnum tíðina og það
þarf meira en þetta til að koma
mér úr jafnvægi,“ segir hann.
„Maður þarf bara að svara
fyrir sig fullum hálsi og þá oftast
þaggar maður niður í öðrum. Það
þýðir ekkert annað. Maður verð-
ur að berjast.“ n
mikilvægar stundir þar sem Katrín Jakobsdóttir valdi blátt
Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra
hefur verið á ferð og
flugi síðan hún tók við
embætti, enda mæðir
mikið á forsætisráð-
herra. Blátt virðist vera
hennar helsti litur á
mikilvægum stundum,
en sá litur táknar trygg-
lyndi og er talinn vera
sá besti til að ná sínu
fram á erfiðum fund-
um. Þá er blár einnig
talinn róandi litur.
Já, forseti
Katrín mætti í bláu pilsi
þegar hún sótti Bessa-
staði heim í nóvember
árið 2011 og freistaði
þess að fá stjórnarmynd-
unarumboð frá herra
Guðna Th. Jóhannessyni,
forseta Íslands. Það gekk
svona líka vel og spurn-
ing hvort blái liturinn hafi
spilað þar inn í.
Umdeildur gestur
Þótt tíminn væri naumur
og örlögin drægju þau
ekki beint saman þá
náði Katrín að funda
með Mike Pence, vara-
forseta Bandaríkjanna,
þegar hann stoppaði
stutt, en eftirminnilega,
við, á Íslandi fyrir stuttu.
Katrín klæddist klass-
ískum og klæðilegum
bláum kjól við tilefnið.
Sami kjóll
Blái kjóllinn sló
greinilega í gegn hjá
Angelu Merkel því
Katrín klæddist honum
aftur í síðustu viku
þegar Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir tók
formlega við embætti
dómsmálaráðherra á
Bessastöðum.
Kósí með kanslar-
anum
Angela Merkel, kanslari
Þýskalands, sótti Ísland
heim fyrir stuttu. Katrín
lóðsaði hana um eins og
henni einni er lagið, en
þegar komið var að því að
ræða málin í ráðherra-
bústaðnum var Katrín í
fallega bláum kjól. Ræddu
stjórnmálastöllurnar
meðal annars um
loftslagsmál, stöðu
stjórnmálanna í Evrópu,
þróun efnahagsmála og
jafnréttismál.
Aftur sami kjóll
Á miðvikudagskvöldið var
síðan komið að stefnu-
ræðu forsætisráðherra og
viti menn – Katrín valdi
aftur sama fagurbláa
kjólinn og hún klæddist
þegar hún hitti Angelu
Merkel og þegar Áslaug
Arna tók við embætti.
Lukkukjóll?
Á þessum degi,
13. september
Bandaríkjamaðurinn Henry H.
Bliss fæddist 13. júní, 1830, og
dó þann 14. september, 1899.
Bliss höndlaði með lóðir og
byggingar í New York-borg, en
í sjálfu sér segir fátt af viðskipt-
um hans á því sviði. Bliss nýtur
aftur á móti þess vafasama
heiðurs að hafa verið fyrsti
einstaklingurinn í Bandaríkj-
unum sem missti lífið vegna
bílslyss, sem átti sér stað
daginn áður.
Þann 13. september, 1999, var
settur upp skjöldur til minn-
ingar um þennan atburð, á
þeim stað sem slysið varð. Á
skildinum segir: „Hér á mótum
West 74. Street og Central
Park West steig Henry H. Bliss
af sporvagni og beint í veg
fyrir leigubifreið, að kvöldi 13.
september, 1899, og lá meðvit-
undarlaus eftir. Þegar hr. Bliss,
sem var fasteignahöndlari,
lést af áverkum sínum næsta
morgun, varð hann fyrsta
fórnar lamb bílslyss á vestur-
hveli jarðar.“
Viðstödd athöfnina var
barnabarnabarn Henrys
H. Bliss. Hún lagði rósir á
staðinn þar sem ekið var á
langalangafa hennar.Þess má
geta að bílstjóri leigubílsins,
Arthur Smith, var handtekinn
og kærður fyrir manndráp en
síðan sýknaður enda deginum
ljósara að ekki var um viljaverk
að ræða. Farþeginn í bílnum
var dr. David Edison, sonur
fyrrverandi borgarstjóra New
York, Franklins Edison.
Í öðrum fréttum af Bliss má
minnast á að réttað var yfir
stjúpdóttur hans, Mary Alice
Livingston, en hún var ákærð
fyrir að hafa myrt móður sína,
fyrrverandi eiginkonu Bliss.
Mary Alice var sýknuð.
Síðustu orðin
„Á morgun verð ég ekki
lengur hér.“
– Læknirinn, stjörnuspekingurinn
og „sjáandinn“ Nostradamus
(1503–1566)
HATURSFULLIR HOMMAR
n Viktor fær ljót skilaboð um útlit sitt nær daglega
n Flest þeirra koma frá samkynhneigðum karlmönnum
Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
MYND: INSTAGRAM @VIKTOR.ANDERSEN
Instagram Story færslan
sem Viktor vísar í. Skjáskot/
Instagram @viktor.andersen