Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 46
46 13. september 2019
Þ
riðjudaginn 10. nóvember,
2009, Yosvanis Valle, 34
ára Bandaríkjamaður af
kúbversku bergi brot-
inn, tekinn af lífi með banvænni
sprautu í Texas.
Valle hafði verið leiðtogi
suðuramerísks gengis og senni-
lega ekki mjög vandaður pappír.
Valle var sakfelldur vegna aðild-
ar sinnar að ránmorði árið 1999 í
Houston. Fórnarlambið sem um
ræddi var af sama sauðahúsi og
Valle. Sá hét Jose „Yogi“ Junco og
var 28 ára og þekktur fíkniefna-
sali af þeim sem hrærðust í þeim
kreðsum.
Menn á myrku kvöldi
Að kvöldi 6. júní, 1999, fór Valle
við fjórða mann að heimili Junco.
Fjórmenningarnir höfðu hist
áður og lagt á ráðin um að ræna
Junco. Valle stjórnaði aðgerðum
og úthlutaði verkefnum til félaga
sinna.
Klukkan ellefu komu þeir
að húsi Junco. Innan dyra voru
Junco og kærasta hans. Það var
einmitt kærasta Junco sem heyrði
hunda gelta fyrir utan og þegar
hún leit út um gluggan sá hún
nokkra menn þar á stjákli.
Hún gerði ráð fyrir að þeir
vildu kaupa eiturlyf og Junco fór
út til móts við mennina.
Slæm viðskipti
Junco var ekki lengi utandyra og
óhætt að segja að slæm viðskipti
væru í uppsiglingu. Þegar hann
kom inn hélt hann höndunum
fyrir ofan höfuð og sagði kærustu
sinni að horfa ekki á fjórmenn-
ingana og einn þeirra setti dulu
yfir andlit hennar.
Kærastan gat ekkert séð, en
hún heyrði mennina þrátta við
Junco um fé og fíkniefni. Síðan
heyrði hún átta eða níu skamm-
byssuskot. Valle og kumpánar
hans létu greipar sópa um íbúð-
ina og höfðu upp úr krafsinu
kökudós fulla af peningum og
dópi auk einhverra ljósmynda
sem voru í blautlegri kantinum.
Einnig höfðu þeir á brott með sér
tvo riffla.
Ánægður með sinn þátt
Að sögn var Valle í skýjunum
með sinn þátt í „viðskiptunum“
og þegar félagarnir komu heim
í íbúð hans gumaði hann af því
að hafa tæmt skammbyssuna í
Junco.
En kærustu Junco var ekki alls
varnað og tókst að þekkja einn
fjórmenninganna í gögnum lög-
reglunnar og koma henni þannig
á sporið.
Þegar Valle heyrði að einn fé-
laga hans hefði verið handtek-
inn var honum skemmt og sagði
það hverjum sem vildi heyra að
það hefði verið hann sjálfur „sem
skaut Junco.“
Próf í hugrekki
Valle hefði sennilega betur sýnt
samverkamönnum sínum meiri
tryggð, því eitt helsta vitni ákæru-
valdsins síðar var sá sem ók bíln-
um áður nefnt kvöld, Jose Aren-
azaz. Réttað var yfir Arenazaz
sérstaklega og hann fékk lífstíðar-
dóm.
Síðar kom í ljós að aðförin
gegn Junco hafði verið hugs-
uð sem eins konar prófraun fyrir
einn fjórmenninganna, Kenneth
Isaac Estrada. Estrada átti að sýna
og sanna að hann hefði hugrekki
til að skjóta Junco. Rannsókn
leiddi í ljós að Estrada hafði skot-
ið Junco einu sinni.
Viðbót á syndaregistur
Áður en Valle var handtekinn
fyrir morðið á Junco hafði honum
tekist að bæta á syndaregistur sitt.
Tveimur mánuðum eftir að hann
skaut Junco til bana sendi hann, í
félagi við aðra, þrjá menn inn í ei-
lífðina í gengjatengdum skotbar-
daga.
Fingraför Valle fundust í bíl
sem tengst hafði þeirri skothríð
og var hann handtekinn í kjölfar-
ið.
Síðar harðneitaði Valle að hafa
banað Junco en talaði fyrir dauf-
um eyrum. Eftir að hafa tapað
áfrýjun var ljóst að dauðadómur
var staðreynd.
Iðrun á efsta degi
Þar sem Valle beið örlaga sinna
í dauðaklefanum talaði hann til
þeirra sem myndu verða vitni
að síðustu andartökum hans.
Þeirra á meðal voru ættingjar
eins þeirra sem Valle hafði skotið
í gengjaskothríðinni áðurnefndu,
Gregory Garcia.
„Ég kenni sjálfum mér um. Ég
skelli skuldinni ekki á nokkurn
annan. Ég veit af hverju ég greiði
þetta gjald. Ég iðrast af öllu mínu
hjarta,“ sagði Valle.
Hann bætti síðan við: „Ég vildi
aldrei bana ættingjum ykkar. Ég
neyddist til þess. Ég var í glæpa-
gengi.“ n
HUGREKKISPRÓF Í HOUSTON
n Eiturlyfjasalinn Junco var skotinn til bana n Um ránmorð var að ræða, en fleira bjó undir
„Ég vildi
aldrei
bana ættingj-
um ykkar. Ég
neyddist til
þess. Ég var í
glæpagengi.
Yosvanis Valle Fór fyrir
glæpagengi í Texas.
Fékk dauðadóm Valle mætti
örlögum sínum án láta.
SAKAMÁL