Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Side 46
46 13. september 2019 Þ riðjudaginn 10. nóvember, 2009, Yosvanis Valle, 34 ára Bandaríkjamaður af kúbversku bergi brot- inn, tekinn af lífi með banvænni sprautu í Texas. Valle hafði verið leiðtogi suðuramerísks gengis og senni- lega ekki mjög vandaður pappír. Valle var sakfelldur vegna aðild- ar sinnar að ránmorði árið 1999 í Houston. Fórnarlambið sem um ræddi var af sama sauðahúsi og Valle. Sá hét Jose „Yogi“ Junco og var 28 ára og þekktur fíkniefna- sali af þeim sem hrærðust í þeim kreðsum. Menn á myrku kvöldi Að kvöldi 6. júní, 1999, fór Valle við fjórða mann að heimili Junco. Fjórmenningarnir höfðu hist áður og lagt á ráðin um að ræna Junco. Valle stjórnaði aðgerðum og úthlutaði verkefnum til félaga sinna. Klukkan ellefu komu þeir að húsi Junco. Innan dyra voru Junco og kærasta hans. Það var einmitt kærasta Junco sem heyrði hunda gelta fyrir utan og þegar hún leit út um gluggan sá hún nokkra menn þar á stjákli. Hún gerði ráð fyrir að þeir vildu kaupa eiturlyf og Junco fór út til móts við mennina. Slæm viðskipti Junco var ekki lengi utandyra og óhætt að segja að slæm viðskipti væru í uppsiglingu. Þegar hann kom inn hélt hann höndunum fyrir ofan höfuð og sagði kærustu sinni að horfa ekki á fjórmenn- ingana og einn þeirra setti dulu yfir andlit hennar. Kærastan gat ekkert séð, en hún heyrði mennina þrátta við Junco um fé og fíkniefni. Síðan heyrði hún átta eða níu skamm- byssuskot. Valle og kumpánar hans létu greipar sópa um íbúð- ina og höfðu upp úr krafsinu kökudós fulla af peningum og dópi auk einhverra ljósmynda sem voru í blautlegri kantinum. Einnig höfðu þeir á brott með sér tvo riffla. Ánægður með sinn þátt Að sögn var Valle í skýjunum með sinn þátt í „viðskiptunum“ og þegar félagarnir komu heim í íbúð hans gumaði hann af því að hafa tæmt skammbyssuna í Junco. En kærustu Junco var ekki alls varnað og tókst að þekkja einn fjórmenninganna í gögnum lög- reglunnar og koma henni þannig á sporið. Þegar Valle heyrði að einn fé- laga hans hefði verið handtek- inn var honum skemmt og sagði það hverjum sem vildi heyra að það hefði verið hann sjálfur „sem skaut Junco.“ Próf í hugrekki Valle hefði sennilega betur sýnt samverkamönnum sínum meiri tryggð, því eitt helsta vitni ákæru- valdsins síðar var sá sem ók bíln- um áður nefnt kvöld, Jose Aren- azaz. Réttað var yfir Arenazaz sérstaklega og hann fékk lífstíðar- dóm. Síðar kom í ljós að aðförin gegn Junco hafði verið hugs- uð sem eins konar prófraun fyrir einn fjórmenninganna, Kenneth Isaac Estrada. Estrada átti að sýna og sanna að hann hefði hugrekki til að skjóta Junco. Rannsókn leiddi í ljós að Estrada hafði skot- ið Junco einu sinni. Viðbót á syndaregistur Áður en Valle var handtekinn fyrir morðið á Junco hafði honum tekist að bæta á syndaregistur sitt. Tveimur mánuðum eftir að hann skaut Junco til bana sendi hann, í félagi við aðra, þrjá menn inn í ei- lífðina í gengjatengdum skotbar- daga. Fingraför Valle fundust í bíl sem tengst hafði þeirri skothríð og var hann handtekinn í kjölfar- ið. Síðar harðneitaði Valle að hafa banað Junco en talaði fyrir dauf- um eyrum. Eftir að hafa tapað áfrýjun var ljóst að dauðadómur var staðreynd. Iðrun á efsta degi Þar sem Valle beið örlaga sinna í dauðaklefanum talaði hann til þeirra sem myndu verða vitni að síðustu andartökum hans. Þeirra á meðal voru ættingjar eins þeirra sem Valle hafði skotið í gengjaskothríðinni áðurnefndu, Gregory Garcia. „Ég kenni sjálfum mér um. Ég skelli skuldinni ekki á nokkurn annan. Ég veit af hverju ég greiði þetta gjald. Ég iðrast af öllu mínu hjarta,“ sagði Valle. Hann bætti síðan við: „Ég vildi aldrei bana ættingjum ykkar. Ég neyddist til þess. Ég var í glæpa- gengi.“ n HUGREKKISPRÓF Í HOUSTON n Eiturlyfjasalinn Junco var skotinn til bana n Um ránmorð var að ræða, en fleira bjó undir „Ég vildi aldrei bana ættingj- um ykkar. Ég neyddist til þess. Ég var í glæpagengi. Yosvanis Valle Fór fyrir glæpagengi í Texas. Fékk dauðadóm Valle mætti örlögum sínum án láta. SAKAMÁL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.