Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 18
18 13. september 2019FRÉTTIR
Á
internetinu þrífst samfé-
lag eitraðrar karlmennsku,
gegnsýrt af kvenfyrirlitn-
ingu og ofbeldisfullum
öfgaskoðunum. Þeir sem tilheyra
samfélaginu kalla sig „incels“, sem
er samsetning á ensku orðunum
„involuntary“ og „celibate“, eða
þeir sem eru skírlífir þvert gegn
sínum vilja, hinir kynsveltu. Upp-
haflega var incels-samfélagið
nokkurs konar stuðningshópur á
vefsíðunni Reddit, þar sem ein-
mana einstaklingar deildu sorg-
um sínum og leituðu stuðnings
og þjáningasystkina, en í dag er
um að ræða samfélag karlmanna
sem telja sig hlunnfarna af kon-
um, að samneyti fallegra kvenna
séu mannréttindi og finnst mörg-
um þeir þurfa að hefna sín á kon-
um fyrir stöðuga höfnun. Undan-
farin ár hefur incel-samfélagið
orðið meira áberandi í umfjöll-
uninni eftir að meðlimir þess
tóku upp á því að fremja voðaverk
í nafni kynsveltis, einmanaleika
og kvenhaturs.
Hlutgerving kvenna
Innan incel-samfélagsins er hlut-
gerving kvenna nánast algjör. Þeir
vilja að konur séu undirgefnar og
auðmjúkar gagnvart yfirburðum
karlmannsins, tilbúnar að þjóna
honum í einu og öllu og alltaf til-
búnar í kynlíf. Þeir vilja konur
sem eru óspjallaðar og tala um að
verðgildi kvenna rýrni hlutfalls-
lega í samræmi við þann fjölda
karlmanna sem þær hafa sofið
hjá. Incel-menn telja sig upp til
hópa óaðlaðandi, óframfærna og
jafnvel ófríða. Þeir hafna því þó
að þeir eigi, sökum þessa, að slá
af kröfum sínum um útlit þeirra
kvenna sem þeir eltast við. Þeir
vilja ekki konur sem þeir segja
venjulegar eða Beckys, heldur fal-
legar, ljóshærðar fyrirsætur sem
þeir kalla Staceys. Þeir gefa kon-
um gjarnan einkunn á bilinu 0–10
og vilja flestir ekkert koma nálægt
konu sem fær undir sjö í einkunn.
Þeir vísa einnig frekar til kvenna
sem kvenkynsins (e. females) en
slík orðanotkun ópersónu- og
hlutgerir konur enn frekar.
Á fimmta tug látnir
Undanfarin fimm ár hafa með-
limir samfélagsins í auknum mæli
snúið sér að ofbeldisbrotum til að
hefna sín á konum. Frægastar eru
árásir sem með réttu mætti kalla
hryðjuverk, en einnig hefur hluti
samfélagsins dásamað nauðganir
og kynferðisbrot, það sé toppur-
inn á valdi karlmannsins yfir kon-
unni.
Frægasta árásin átti sér stað
þann 23. maí, 2014, þegar mað-
ur að nafni Elliot Rodger banaði
sex og slasaði fjórtán í skotárás
á háskólasvæði Kaliforníu-há-
skóla í Santa Barbara. Elliot var
þungvopnaður og hafði ætlað sér
að ráðast inn á heimavist stúlkna
og skjóta allar konur sem hann
sæi. Honum tókst þó ekki að
komast inn í bygginguna og hóf
þá skothríð á gangandi vegfar-
endur. Rodger skilgreindi sig sig
sem incel og skildi eftir sig 137
blaðsíðna stefnuyfirlýsingu og
nokkurn fjölda YouTube-mynd-
banda þar sem hann talar um
kynsveltið sem konur hafa neytt
hann í með stöðugum höfnun-
um, og að tími hefndarinnar sé
runninni upp. Eftir skotárásina
framdi Elliot sjálfsvíg og varð í
kjölfarið tekinn í dýrlingatölu í
incel-samfélaginu og veitti öðr-
um incel-hryðjuverkamönnum
innblástur með sínum voðaverk-
um.
Þann 7. desember, 2017,
hóf William Atchison skotárás
í menntaskóla í Nýju-Mexíkó.
Tveir féllu auk Williams sem
fyrir fór sér í kjölfarið. William
hafði gengið undir dulnefninu
Elliot Rodger á samfélagsmiðl-
um, þar sem hann lofsöng hinn
æðsta herramann (e. supreme
gentle man) Elliot Rodger.
Þann 14. febrúar, 2018, féllu
sautján og jafn margir særðust í
skotárás í menntaskóla í Flórída.
Gerandinn, Nikolas Cruz, hafði
skrifað á samfélagsmiðla „Elliot
Rodger mun ekki gleymast.“
Hinn 23. apríl, 2018, ók Alek
Minassian sendiferðabíl á gang-
andi vegfarendur í Toronto í
Kanada. Þar létu 10 manns lífið
og 16 slösuðust. Alek var 25 ára
gamall háskólanemi. Hann var
með hreinan sakaferil og þeir
sem þekktu til hans lýstu honum
sem hlédrægum og meinlausum.
Hann var á einhverfurófinu sem
olli honum félagslegum erfiðleik-
um. Fyrir árásina hafði hann birt
færslu á Facebook þar sem hann
hyllti áðurnefndan Elliot Rod-
ger og tilkynnti að bylting kyns-
veltra karmanna væri hafin. Rétt-
að verður yfir Alek á næsta ári.
Árið 2018, þann 2. nóvember,
myrti Scott Beierle tvær konur og
særði fimm, áður en hann fyrirfór
sér í jógastúdíói í Flórída. Hann
hafði áður verið handtekinn fyrir
að áreita konur kynferðislega
og hafði birt myndbönd á sér á
YouTube þar sem hann viðhafði
hatursfulla orðræðu um konur.
Hann var reiður yfir að eiga ekki
kærustu og vísaði í myndböndum
til Elliot Rodger.
Í janúar á þessu ári var
Christopher Clearing handtek-
inn eftir að hann hafði lýst yfir
áformum sínum um skotárás.
Vildi hann verða næsti incel-
fjöldamorðinginn og bana eins
mörgum konum og hann mögu-
lega gæti. Christopher sagðist
aldrei hafa átt kærustu og aldrei
stundað kynlíf og þótt hann hafi
ekki sagt það beint þá er almennt
talið að hann hafi skilgreint sig
sem hluta af incel-samfélaginu.
Síðastliðinn þjóðhátíðardag
Íslendinga, 17. júní, hóf Bryan
Isaac Clyde skothríð í Texas.
Enginn lét þó lífið því lögreglu-
menn skutu Bryan til bana áður
en hann náði að valda manntjóni.
Bryan hafði deilt myndum á sam-
félagsmiðlum sem greindu frá
incel-hugmyndafræðinni. Hann
var einnig öfgasinnaður hægri-
maður. Eftir árásina þótti rétt að
hermenn á herstöð í nágrenninu
fengju fræðslu um incel-samfé-
lagið þar sem um „raunverulega
ógn við almenning og herinn
væri að ræða.“
Athvarf nauðgunar- og barn-
aníðshugmyndafræði fær
athvarf á Íslandi
Í nóvember á síðasta ári var
spjallsíðu incel-manna úthýst af
léni sínu í Svartfjallalandi fyrir
að hvetja til ofbeldis og haturs-
orðræðu. Vefsvæðið fékk þá nýtt
heimili á Íslandi og vefslóð með Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
Hættulegt samfélag kynsveltra karlmanna
n Hættulegt samfélag eitraðrar karlmennsku n Yfir fjörtíu látnir í hatursárásum kynsveltra n Vilja lögleiða nauðgun og upphefja barnaníð
Erla Dóra
erladora@dv.is
Elliot Rodger varð eins konar
guð meðal incel-manna
Færslan sem Minassian birti á
Facebook fyrir árásina í Toronto
Catfishman notar grímu þegar
hann kemur til fundar við konur