Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 34
Allt fyrir bílinn 19. september 2019KYNNINGARBLAÐ Ert þú búin/nn að verja bílinn fyrir veturinn? Saltið á götunum, sífelldar frosthörkur og þíða sem og grjótkast eru hvimleiðir fylgi- fiskar íslenska vetrarins og eiga það allir sameiginlegt að fara illa með bílalakkið. Sérstaklega er saltið alger erkióvinur lakksins. Það er því gullin þumalputtaregla að setja varnarhúð á lakkið áður en veturinn skellur á í öllu sínu veldi. Það er hægt með því að bóna bílinn vel og vandlega eða skella á hann keramikhúð. Massabón flutti nýlega í glæsilegt húsnæði að Auðbrekku í Kópavogi. Massabón er alhliða bónverkstæði sem býður upp á fjölbreytta þjónustu í bílaþrifum og viðhaldi á bílalakki. „Hægt er að velja á milli þrif- og bónpakka hjá okkur sem gefa góða vörn gegn saltinu og skítnum sem fylgir íslenskum vetri. Fyrir vikið verður einnig töluvert auðveldara að skola af bílnum. Óhreinindin hreinlega renna af honum. Með reglulegu viðhaldi og bóni á lakki viðheldur þú einnig verð- gildi nýs bíls. Þú kemur með bílinn til okkar og við ráðleggjum um það sem þarf að gera. Í sumum tilfellum er nóg að þrífa og bóna, í öðrum mælum við með mössun ef lakkið er illa farið. Keramikhúðunin er svo toppurinn þegar kemur að því að verja lakkið, en sú meðferð dugir í allt að tvö ár,“ segir Hallur Sigurðsson. Pakki 1. Alþrif. Dugir í um 3 mánuði. Hefðbundinn þrif- og bónpakki þar sem bíllinn er tjöru- og sápuþveg- inn með ullarsvampi. Hægt er að bæta við leirun gegn vægu gjaldi. Við leirun losnarðu 100% við öll óhreinindi sem hafa sest fyrir í litlum rispum í lakkinu. Eftir þurrkun er bor- ið efni á allt plast til ná fram dýpri lit. Þá eru rúður þvegnar. Næst er bíllinn bónaður með CarPro bóni og dekkgljái borinn á öll dekk. Að lokum er innrétting ryksuguð, þurrkað af öllu og mottur þrifnar. Bónið veitir góða lakkvörn í allt að þrjá mánuði. Pakki 2. Keramikhúðun. Dugir í allt að 2 ár. Fyrir þá sem vilja aukavörn og lengri endingu mælum við með ker- amikhúðun. Í þessum pakka fylgir allt það sama og í pakka 1. Bíllinn er einnig leiraður. Svo er keramik- húð borin á sem dugir í allt að tvö ár. Þessi pakki er nokkuð dýrari en hefðbundni pakkinn en dugir líka þeim mun lengur. Hér er búið að massa hálfa hurðina. Það sést ótrúlegur munur. „Einnig tek ég að mér að massa bíla. Með mössun er hægt að fjarlægja grunnar rispur og jafnvel nokkuð stórar, en auðvitað ekki þær sem ná niður fyrir málningarlagið. Bíllinn verður í kjölfarið rennisléttur og alveg eins og nýr.“ „Við erum með úrval af fyrsta flokks bóni og hreinsiefnum fyrir bílinn og getum ráðlagt viðskipta- vinum okkar um notkun þeirra.“ Hægt er að kaupa Cquartz keramik- húð hjá Massabóni. Cquartz UK 3.0 er harðasta keramíkhúðin sem fæst á markaðnum í dag. Cquartz UK er harðara en hefðbundin glæra á bíl og eykur því þol bílsins gegn risp- um og hrindir hann betur frá sér óhreinindum t.d. tjöru og salti. Efnið er unnið úr kísildíoxíði (SIO2) (70% af innihaldi Cquartz) og er þetta fyrsta varan á markaðnum sem inniheldur svona mikið magn af hreinu SIO2. Efnið er auðvelt í notkun og í raun ekkert erfiðara að bera það á heldur en að bóna bíl með hefðbundnu bóni, en nauðsynlegt er að vera með aðgang að bílakjallara eða þurru rými þegar efnið er borið á. Hydro2 Lite er stórsniðugt bón sem myndar vatnshrindandi húð á lakk og aðra fleti og gefur fallegan gljáa. Efnið er afar einfalt í notkun og þarf ekki að gera meira en að úða bóninu yfir bílinn og skola af. Þá ertu búinn að bóna bílinn. Efnið er öruggt til notkunar á alla fleti bílsins. Lakk, gler, plast og felgur. IronX frá CarPro er öflugt hreinsiefni til notkunar á öll farar- tæki, bæði felgur og lakk, og var þróað sem lausn til að fjarlægja óhreinindi af bílum umfram það sem hefðbundinn þvottur eða leir getur gert. Lausnin skiptir um lit þegar hún kemst í snertingu við járneindir á lakkinu og verður þá rauð/fjólublá á litinn. Öruggt að nota á ál, króm, plast og lakk. Massabón er umboðsaðili fyrir CarPro bílavörurnar og selur vörur sínar í vefversluninni massabon.is sem og á verkstæði sínu í Auðbrekku 25–27, Kópavogi. Fylgstu með á Facebook: Massabón Instagram: Massabon2 Snapchat: Massabón
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.