Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 43
Allt fyrir bílinn 19. september 2019 KYNNINGARBLAÐ
Ljósboginn er rótgróið fyrirtæki
sem starfað hefur í rúmlega 60 ár
Ljósboginn er verslun sem sérhæfir sig í sölu alternatora og startara í allar tegundir
bíla, vinnuvéla og báta. Við leggjum
mikla áherslu á að eiga fjölbreytt-
an lager af original og eftirmark-
aðs vörum frá birgjum í Hollandi,
Þýskalandi og víðar. Einnig flytjum
við inn rafstöðvar í öllum stærðum
og eigum til á lager rafstöðvar frá
1–6kW. Síðan erum við með mikið
úrval af ljósabúnaði á kerrur og
vagna, vinnuljós og viðvörunarljós.
Aðalljós og afturljós á vörubíla og
hjólkoppar frá 15“ upp í 22.5“ fyrir
vöru- og sendibíla.
Saga fyrirtækisins
Ljósboginn var stofnaður árið 1957
af Sveini B. Ólafsyni rafvélameist-
ara. Var fyrirtækið þá staðsett
að Hverfisgötu. „Þar unnu menn
aðallega við að vinda rafmótora
og við viðgerðir á dínamóum og
störturum. Einnig var unnið við
húsaraflagnir og rafvélaviðgerðir
ásamt fleiri tilfallandi verkefnum svo
sem viðgerðir á jólaseríum og einnig
öðrum heimilisrafmagnsáhöldum.
Á þessum tíma var náttúrlega engu
hent sem einhver not voru í. Það var
reynt eftir fremsta megni að læg-
færa alla hluti,“ segir Sveinn.
Reksturinn breytist
Árið 1980 festi Ljósboginn kaup á
húsnæði að Mjölnisholti. Þar var
mun rýmra um reksturinn og var
innflutningur á efni til endurnýjun-
ar á rafmótorum, dínamóum og
störturum orðinn mun umsvifameiri.
Árið 1986 flutti Ljósboginn í Rauða-
gerði, en þá hætti Sveinn viðgerðum
á rafmótorum, alternatorum og
störturum. Hann sneri sér þá aðal-
lega að innflutningi á alternatorum
og störturum og tengdum varahlut-
um. Næstu árin þjónaði fyrirtækið
aðallega rafvélaverkstæðum og
einstaklingum.
Reksturinn í dag
Árið 2006 seldi Sveinn Ljósbog-
ann til Ársæls Friðrikssonar og
Þórarins Ásgeirssonar. Fljótlega
eftir söluna flutti Ljósboginn að
Bíldshöfða 14 í stærra húsnæði.
Nýju eigendurnir hafa unnið í því
að fjölga vöruflokkum til að geta
sinnt þörfum viðskiptavinanna
sem allra best og bjóða góðar
vörur á hagkvæmu verði.
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.ljosboginn.is
Bíldshöfða 14, 110 Reykjavík
Sími: 553-1244
Netpóstur: ljosbogin@ljosboginn.is