Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 62
62 FÓKUS 13. september 2019 YFIRHEYRSLAN Sigrún Ásta Jörgensen Hvar líður þér best? Heima með fjölskyldu minni. Alltaf nóg af kósí stundum þar, þau eru líka allt mitt. Hvað óttastu mest? Að missa einhvern náinn mér. Hvert er þitt mesta afrek? Að vinna við það sem ég elska, starfið dregur mig stöðugt lengra út fyrir þægindarammann og fyrir það er ég þakklát. Líka það að ég er andlega og líkamlega hress manneskja, það er ekki sjálfgefið. Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér? Það var með erlendum viðskiptavini og það má segja að ein gellan hafi verið með mikla skapgerðarbresti. Þetta er alveg skrautleg saga, en ég vil helst ekki tala opinberlega um verkefni mín því maður gerir það ekki í þessum bransa. Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Ekki sjá eftir neinu, lifðu lífinu til fulls. Hvernig væri bjórinn Sigrún Ásta? Unicornlove. Pale Ale Besta ráð sem þú hefur fengið? „Þú getur ekki haldið áfram ef þú ert alltaf með augun í baksýnisspeglin- um, þá endarðu bara með að klessa á.“ Amma mín gaf mér þetta góða ráð. Hvert er leiðinlegasta húsverkið Tjaaaaa, líklega að skúra, góð hreyfing en sjúklega leiðinleg. Mér finnst mjög næs að taka til því ég vil alltaf hafa hreint í kringum mig, svo að flest er frekar skemmtilegt nema að skúra, það er það eina sem ég er alltaf að fresta. Besta bíómynd allra tíma? Pulp Fiction og Blow, ég dýrka þessar myndir. Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir? Ég væri mikið til í að vera góður leikari, að horfa á góða leikara að gera sitt er magnað. Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið? Ein af þeim stærstu var þegar ég fór ein til Balí og dvaldi þar í þrjár vikur, ég flutti líka ein til Bandaríkjanna þegar ég var sautján ára og bjó þar í tvö ár. Tuttugu og þriggja flutti ég líka ein til Noregs og bjó þar í nokkra mánuði. Þetta var allt áhætta en gaf mér mikinn þroska til baka. Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér? „Þetta reddast“. Mér finnst þetta vera rosalega íslenskt eitthvað. Mjög pirrandi. Hvaða geturðu sjaldnast staðist eða ert góð í að réttlæta að veita þér? Klárlega smjördeigshorn, ég elska smjördeigshorn og gæti borðað smjördeigshorn með öllu!! Ég fékk meira að segja vatn í munninn núna bara við að hugsa um smjördeigshorn. Hvað er á döfinni hjá þér? Það eru nokkur skemmtileg verkefni með flottum og skemmtilegum fyrirtækjum framundan, bæði hérlendis og erlendis. Ég elska vinnuna mína og er snarspennt fyrir næstu mánuðum. Sigrún Ásta Jörgensen starfar sem stílisti, förðunarfræðingur og búningahönnuður sem hún segir bæði krefjandi og skemmtilega vinnu. Við fengum Sigrúnu Ástu í yfirheyrslu helgarinnar. Íris Hauksdóttir iris@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.