Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 50
50 MATUR 13. september 2019
Mastersgráða í marengs
Marengs – Hráefni:
n 4 eggjahvítur
n 1 bolli sykur
n 100–150 g kornflex (eftir smekk)
n 3 tsk. lyftiduft
Lakkrísrjómi – Hráefni:
n 400 ml rjómi
n 3–4 msk. lakkrísduft
Lakkríspopp – Hráefni:
n 3 bollar poppað popp (engar baunir)
n 2–3 msk. sætt lakkríssíróp
n 1/2 tsk. sjávarsalt
Aðferð:
Þeytið eggjahvítur þar til þær freyða.
Hellið síðan sykri saman við í einni bunu
og þeytið í 15–20 mínútur. Setjið korn
flex í aðra skál og kremjið létt með fingr
unum. Blandið lyftidufti saman við korn
flexið. Blandið þá kornflexinu varlega
saman við marengsinn með sleikju. Búið
til 2 hringi úr blöndunni á smjörpappírs
klædda ofnplötu og bakið við 150°C í
50 mínútur. Slökkvið á ofninum, opnið
hann aðeins og leyfið botnunum að
kólna inni í ofni. Þeytið rjómann aðeins,
blandið duftinu saman við og stífþeytið
svo rjómann. Smyrjið rjómanum á ann
an marengsbotninn og setjið hinn ofan
á. Blandið poppi, sírópi og sjávarsalti vel
saman og setjið ofan á kökuna.
Hráefni:
n 4 eggjahvítur
n 1 bolli sykur
n 2 tsk. lyftiduft
n 500 ml rjómi
n 2 msk. kakó
n 3 msk. flórsykur
n 4 Snickers
n 60 g dökkt súkkulaði
n 2 msk. hnetusmjör
Aðferð:
Hitið ofninn í 150°C og klæðið ofnplötur
með bökunarpappír. Þeytið eggjahvíturn
ar í 1 til 2 mínútur eða þangað til þær
freyða vel. Bætið sykrinum út í eggja
hvíturnar á meðan þið hrærið, um einni
matskeið í einu. Þeytið þessa blöndu í 15
til 20 mínútur eða þar til þið getið haldið
skálinni á hvolfi og ekki dropi lekur nið
ur. Bætið lyftiduftinu við og hrærið að
eins. Setjið um það bil eina matskeið af
blöndunni á ofnplöturnar með góðu
millibili. Þið ættuð að fá 12 til 14 kökur.
Bakið í 30 mínútur og leyfið kökunum að
kólna í ofninum í um það bil tvo klukku
tíma. Þeytið rjómann og bætið kakói og
flórsykri saman við þegar þið eruð alveg
að verða búin að þeyta rjómann.
Skellið góðri slummu af rjómanum á
marengskökurnar. Skerið Snickers stykkin
í litla bita og dreifið þeim ofan á rjómann.
Bræðið súkkulaðið og drissið því yfir mar
engsinn. Bræðið hnetusmjörið í um það
bil 30 sekúndur í örbylgjuofni og drissið
því yfir marengsinn.
M
arengstertur eru nánast skylda á
veisluborði Íslendinga. Marengs
inn hefur hins vegar reynst mörg
um þyrnir í augum því það þarf
allt að ganga upp svo hann klikki ekki. Oft
heyrir maður um marengstertur sem falla,
bakast ekki eða brenna, en af hverju verður
marengs ekki alltaf yndislega brakandi og
gómsætur? Fyrir því eru nokkrar ástæður.
Eggin eru óþæg
Þegar kemur að eggjum er langvænlegast
til árangurs að hafa þau við stofuhita. Það
er hægt að aðskilja þau á meðan þau eru
köld en leyfðu svo eggjahvítunum að hvíla
á eldhúsborðinu í hálftíma þangað til þær
ná stofuhita.
Ekkert plast, takk
Lykillinn að yndislegum marengs er að
þeyta hann í tandurhreinni skál. Og þá
meina ég TANDURHREINNI. Enginn raki,
engin olía, ekki neitt nema eggjahvítur
og sykur. Til þess að vera viss um að skál
in sé hrein er best að nota skál úr málmi
eða gleri. Fita og feiti geta nefnilega sest
að í plastskálum, svo vel að maður sér það
stundum ekki.
Eggjarauðan vill vera memm
Einn lítill dropi af eggjarauðu eyðileggur
marengsinn. Það er best að aðskilja eggja
hvíturnar ofan í minni skál og hella þeim
síðan ofan í stóru skálina sem þú þeytir
marengsinn í. Ef dropi af eggjarauðu leyn
ist með hvítunum er best að ná honum
upp úr með eyrnapinna eða smá brauð
bita. Sama hvað þú gerir, ekki nota putt
ana til að veiða hann upp úr – fita og feiti,
þið munið! Best er að nota ekki hvítuna ef
smá eggjarauða læðist með. Þá komum við
aftur að litlu skálinni. Ef þið aðskiljið bara
eitt egg í einu þurfið þið ekki að byrja upp á
nýtt ef eitt egg er óþægt.
Slakið á sykrinum
Bætið sykrinum hægt saman við eggja
hvíturnar, en samt í einni bunu. Ekki
dömpa öllum sykrinum saman við – það
getur eyðilagt marengsinn.
Þeyta, þeyta, þeyta
Þeytið eggjahvítur og sykur í 15 til 20 mín
útur og ekki svindla! Blandan á að vera það
stíf að þið getið sett skálina á hvolf án þess
að dropi leki niður.
Gefið marengsinum smá búst
Hendið 1 til 2 teskeiðum af lyftidufti í
blönduna til að hjálpa marengsinum að
lyfta sér. Hann á eftir að þakka ykkur fyr
ir þetta seinna. Einnig er hægt að setja ögn
af Cream of Tartar saman við til flýta fyrir
stífingunni.
Brenndur marengs forðast
eldinn
Það þarf að baka marengs á lágum hita
svo rakinn í blöndunni gufi smátt og smátt
upp. Ef hitinn er of hár brennur marengs
inn að utan en er eins og tyggjó að innan.
Þolinmæði er dyggð
Ekki rífa marengsinn strax úr ofninum
heldur opnið ofnhurðina aðeins og leyfið
marengsinum að kólna inni í ofninum. Þá
gufar rakinn enn betur upp og marengsinn
verður stökkur og góður.
Fullt af lakkrís
Þessi marengs er fyrir
lakkrísunnendur.
Snickers og súkkulaðirjómi
Þessi er dásamleg.
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
Kornflexmarengs
með lakkrísrjóma
og lakkríspoppi
Lítill marengs með
Snickers og
súkkulaðirjóma
Tekur á taugarnar Mörgum finnst
taugatrekkjandi að baka marengs.