Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 27
Allt fyrir bílinn 19. september 2019 KYNNINGARBLAÐ Brynjólfur Grétarsson hefur verið í sápuiðnaðinum í 30 ár og hefur reynt ýmislegt. „Við hjá Sám höfum alltaf haft það að leiðarljósi að hafa vöruna og sömuleiðis þjónustuna fyrsta flokks. Í mínum huga er viðskiptavinurinn alltaf númer eitt!“ segir Brynjólfur. Sámur sápugerð er gamalgróið fyrirtæki á sápumarkaðinum og framleiðir gæða hreinsiefni sem henta fyrirtækjum, heimilum, bílum, matvælaiðnaði og öðrum iðnaði. Nú er tími til kominn að yfirfara bílana og gera þá tilbúna fyrir haustið og komandi vetur. Sámur er með réttu efnin fyrir þig og bílinn þinn. Túrbó Sámur 2296 Túrbó Sámur 2296 hefur verið á markaðinum hér á landi í yfir 30 ár og allan þann tíma notið gífurlegra vinsælda. Túrbó Sámur hreinsar bæði tjöru og sápuþvær ásamt því að skilja eftir sig smá bónhúð. Við rétta notkun gefur efnið hámarks árangur. Best er að hafa bílinn blautan þegar efnið er borið/úðað á. Svo skal bursta með þvottakústi/ svampi til að ná af föstum óhreinindum. Mjög mikilvægt er að er að byrja neðst þegar efnið er þvegið af bílnum þar sem mestu óhreinindin eru alla jafna neðst á bílnum. Ef byrjað er efst þá skolarðu burt öllu hreinsiefninu áður en það fær að virka. Notið alltaf kalt vatn því heitt vatn getur skemmt lakkið. Resol Resol er mjög öflugur tjöruheinsir án sápu sem hentar mjög vel á erfiðustu tjörublettina. Oft myndast mikil og erfið tjara á t.d. flutningabílum sem erfitt er að ná af og þá kemur Resol sterkur inn. Flest sambærileg efni má ekki setja á blautan bílinn þar sem efnið verður hvítt og hættir að virka vel. Einnig eru þessi efni þekkt fyrir mikla og sterka lykt. En með notkun Resol frá Sámi eru þessi vandamál úr sögunni. Resol má fara á blautan bíl og af honum er mjög lítil lykt. Extra hreinsiúði Extra Hreinsiúði er mjög gott og öflugt alhliða hreinsiefni á fleti sem þola vatn. Úðinn leysir auðveldlega bletti á flestum gerðum áklæða og teppa. Hann vinnur einnig vel á ýmsum gerðum af tússi. Hann virkar enn fremur vel á fitu á t.d. eldavélum, bakarofnum, brenndri fitu í pottum og fleira. Svo virkar hann vel á flísar og fúgur. Gott er að úða á baðkar/sturtubotn og fara síðan með svamprispu yfir. Einnig nýtist hann við þrif á salernum. Extra Hreinsiúði fæst í N1 og Verkfæralagernum Smáratorgi. Sámur Sterki 1303 er nýtt og mjög öflugt alkalískt hreinsiefni til að þrífa erfið óhreinindi á gólfum og veggjum. Einnig er efnið mjög gott til þrífa í bátum og skipum. Nánari upplýsingar má nálgast á samur.is Sími: 517-9303 og 892-9303 Vefpóstur: binni@samur.is Fylgstu með á Facebook: Sámur Sápugerð Sámur sápugerð: Hreinlega ómissandi í bílaþrifin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.