Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 19
13. september 2019 FRÉTTIR 19
aðrir útsölustaðir
Epal - Laugavegi 70
EPAL - Harpa
Airport fashion - Leifsstöð
Reykjavik Raincoats
LAUGAVEGUR 62, 101 RVK
www.reykjavikraincoats.com
Sími: 5711177 - info@reykjavikraincoats.com
Hættulegt samfélag kynsveltra karlmanna
n Hættulegt samfélag eitraðrar karlmennsku n Yfir fjörtíu látnir í hatursárásum kynsveltra n Vilja lögleiða nauðgun og upphefja barnaníð
I
ncel-samfélagið hefur þróað með sér sinn eig-
in orðaforða. Orðin eru of mörg til að gera grein
fyrir í einni blaðagrein en hér má finna nokk-
ur þekkt dæmi af incel-orðum ásamt skýring-
um sem gefa vissa innsýn í brenglaða heimssýn
þessara manna.
Chad og Stacey – Chad vísar til myndarlegra og fram-
bærilegra karlmanna og Stacey vísar til myndar-
legra kvenna. Incels vilja allir sænga hjá konum
sem teljast vera Stacey, en geta það ekki því Chad-
-menn sitja einir að þeim.
Becky – Venjuleg kona. Incels hafa ekki áhuga á
Becky-týpum þar sem þær eru ekki nægilega að-
laðandi.
Landhvalur (e. landwhale) – Kona í yfirþyngd.
Forystumenn (e. alphas) – Karlmenn sem eru
myndarlegir, sjálfsöruggir og fá að sofa hjá
myndarlegum konum.
Rísa (e. ascend) – Þeir incel-menn sem eignast kær-
ustu eða sofa hjá eru taldir hafa risið upp á annað
plan og eru ekki lengur incel.
Reipa (e. rope) – Þeir incel-menn sem hafa fallið
fyrir eigin hendi eru sagðir hafa reipað sig.
Eins og ER (e. going ER) – Incel-menn sem eru yfir-
komnir af reiði tala um að gera eins og ER; þ.e. að
fylgja í spor Elliot Rodger.
Svartapillan (e. blackpill) – Þegar menn opna augun
fyrir incel-hugmyndafræðinni er talað um að þeir
hafi þegið svörtu pilluna.
Kvenkyn (e. foid) – Incel-menn vísa til kvenna sem
kvenkyns en með þessari orðræðu er trú þeirra á
algjörum yfirráðum karlmannsins yfir konunni, og
hlutgerving kvenna undirstrikuð.
Fangelsisbeita (e. jail bait) – Barnungar stúlkur.
Incel-menn girnast margir unglingsstúlkur sem
ekki eru lögráða, því þeir trúa því að þær séu
hreinni og óspilltari. Auk þess séu þær í blóma lífs-
ins en ekki orðnar gamlar og útriðnar.
Roastbeef-sköp (e. rostie) – Þetta vísar til kvenna
sem hafa verið virkar kynferðislega um eitthvert
skeið. Incel-menn trúa því að við aukna notkun
verði ytri skapbarmar kvenna lengri og svipi því til
roastbeef.
Bestun ( e. maxxing) – Incel-menn geta lagt stund á
bestun til að reyna að höfða frekar til kvenna. Út-
litsbestun felst í því að reyna að bæta útlitið, svo
sem með því að auka hreyfingu eða fara í lýtaað-
gerð. Stöðubestun felst í því að vinna sér inn meiri
peninga eða auka völd/áhrif sín. Þetta byggir á
þeirri hugmyndafræði að konur laðist að útliti,
peningum og völdum.
Viðskeytið -cel er einnig notað í fleiri orðum en
bara incels. Feitir meðlimir samfélagsins eru til
að mynda fitucels, þeir sem vilja lögleiða nauðg-
un eru nauðgunarcels, þeir sem koma frá Indlandi
eru karrícels og svona mætti áfram telja. Algengt
er að incel-menn velji eitt atriði sem þeir trúa að
valdi vandræðum þeirra í ástamálum og bæti við-
skeytinu þar fyrir aftan.
endinguna .is þó svo að síðan sjálf
hafi í raun verið vistuð í Þýska-
landi. Sú síða var almennt spjall-
svæði incel-samfélagsins, sem óx
út frá upphaflega spjallsvæðinu
á Reddit. Aðrar sérhæfðari incel-
síður voru í kjölfarið færðar til Ís-
lands. Þær síður eru öllu meira
ógnvekjandi en almenna svæðið,
en þar er um að ræða incel-sam-
félag þar sem finna má karlmenn
sem girnast stúlkur undir lög-
aldri, á annarri síðu koma saman
incel-menn sem trúa því að konur
þrái fátt heitar en að vera nauðg-
að. Á þessum sérhæfðu síðum má
sjá ógnvekjandi hugmyndafræði
þar sem beinlínis er hvatt til kyn-
ferðisofbeldis og barnaníðs. Til
dæmis er nefnd ein af skilgrein-
ingunum á barnaníðs-incels: „Ef
þú girnist vinkonur dóttur þinnar,
eða dóttur þína sjálfa.“ Þessar sér-
hæfðu síður eru enn opnar og enn
með .is-endinguna, en almenna
spjallsvæðið færði sig í vor yfir til
Kólumbíu og fékk endinguna .co.
Það sem Kólumbía og Ísland virð-
ast eiga sameiginlegt í þessum
efnum er hversu auðvelt það er
að kaupa og skrá lén.
Heimildamynd BBC dregur upp
ógnvekjandi mynd
Nýlega gaf sjónvarpsstöðin
BBC út heimildamyndina Inni
í leyndu samfélagi incelsins,
sem vakið hefur mikla athygli. Í
myndinni er rætt við þrjá einstak-
linga sem skilgreina sig eða hafa
skilgreint sig sem incel. Einn
þeirra, Catfish man, leggur stund
á það að sigla undir fölsku flaggi
á stefnumótasíðum þar sem
hann platar konur til að mæta á
stefnumót. Þegar þær svo mæta,
og halda að þær séu að fara að
hitta myndarlegan karlmann
stekkur Catfishman fram, vopn-
aður myndbandsupptökuvél, og
hefur þær að háði og spotti. Spyr
hann þær: „Hélstu virkilega að
karlkyns fyrirsæta myndi falla fyr-
ir þér? Þú ert feit og ljót, af hverju
komstu hingað að hitta fyrirsætu.“
Síðan deilir hann myndböndun-
um á netinu. Í heimildamyndinni
segir hann að með þessu móti sé
hann að hefna sín á konum fyrir
að hafa hafnað honum í gegnum
tíðina. Catfishman, eða Michael
Rabadan, hefur komist ítrekað í
kast við lögin fyrir brot gegn nálg-
unarbanni, heimilisofbeldi, og
fyrir að hrella konur á netinu.
„Ég er ekki að drepa þær,“ segir
hann í myndinni. „Ég er bara að
svipta hulinni af því hverjar þær
í raun og veru eru.“ Hann greinir
jafnframt frá því að hann frói sér
stundum yfir myndböndunum
sem hann tekur og að ef konur
hefðu ekki lagt Elliot Rodger í ein-
elti þá hefði hann aldrei framið
þessi morð. „Ef þetta kvenkyn
kemur ekki fram við karlmenn
af virðingu, þá munu þeir drepa
þær. Þannig er það bara.“
Í myndinni er einnig rætt við
sérfræðing í stafrænni menningu,
dr. Kaitlyn Regehr. Hún segir að
önnur incel-hryðjuverkaárás sé
óumflýjanleg og verði líklega
gerð innan skamms tíma. „Við lif-
um núna á tímum hatursglæpa.“
Hún segir að lögreglan ætti að líta
þessa glæpi sömu augum og aðra
hatursglæpi sem framdir eru í
nafni trúarofstækis.
Ný mynd um Jókerinn slær í
gegn meðal kynsveltra
Áhyggjur hafa vaknað um að ný
kvikmynd um erkióvin Leður-
blökumannsins, Jókerinn, muni
hvetja incel-menn til ofbeldis-
verka. Leikarinn Joaquin Pheonix
gerir Jókernum skil í myndinni
og hefur persónan hlotið samúð
áhorfenda. Myndin fjallar um leit
Jókersins að hamingjunni, sem
snýst svo upp í andhverfu sína
og fyllir hann hatri og hefnigirni.
Incel-menn tengja við þessa veg-
ferð og hafa því margir talið að
Jókerinn sjálfur sé incel-mað-
ur, og því hefur vaknað sá ótti að
incel-menn leiti í auknum mæli
í sömu aðferðir og Jókerinn til að
fá útrás fyrir gremju sína og hatur.
Ógn sem eykst
Heiminum virðist stafa sífellt
meiri ógn af incel-samfélaginu.
Samkvæmt óvísindalegri rann-
sókn sem miðillinn vox.com gerði
er mikill meirihluti incel-manna
frá Evrópu eða Norður-Ameríku
og flestir þeirra eru hvítir karl-
menn á þrítugsaldri eða yngri.
Samfélagið byrjaði sem meinlaus
vettvangur fyrir einmana, sorg-
mædda karlmenn en hefur þróast
upp í bergmálshelli kvenhaturs
og reiði. Meðlimir samfélagsins
grípa æ oftar til ofbeldis. Ísland
er talið mikið jafnréttisland þegar
litið er til stöðu karla og kvenna,
þótt vissulega eigi enn eftir að
stíga þónokkur mikilvæg skref
til algjörs jafnréttis. Incel-menn
fyrir líta þessa þróun. Inni á spjall-
svæði sínu hafa incel-menn í
umræðum um Ísland bæði lýst
yfir velþóknun á útliti íslenskra
kvenna og vanþóknun á hve sam-
félagið er femínskt. Ekki er vit-
að um þekkt dæmi um íslenska
incel-menn en þó má aldrei úti-
loka að slíkir menn finnist hér á
landi. n