Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 26
Allt fyrir bílinn 19. september 2019KYNNINGARBLAÐ Bílalökkun Kópsson ehf: Gott orðspor er besta auglýsing sem völ er á Réttingaverkstæðið og bílamálunarþjónustan Bílalökkun Kópsson þjónustar flestöll tryggingafélög landsins með bíla sem hafa lent í tjóni eða óhöppum. „Auðvitað bjóðum við líka upp á þjónustu okkar fyrir almenna viðskiptavini og fyrirtæki. Þá bjóðum við upp á réttingar, bílamálun, rúðuskipti, rúðuviðgerðir og sérsmíði. Þar fyrir utan þjónustum við mikið til bílaleigur og bílaumboðin, þar með taldar umboðsbifreiðar Brimborgar. Einnig höfum við þjónustað TESLA bifreiðar í tjónaviðgerðum og almennum CLAIM viðgerðum með leyfi TESLA framleiðandans síðan 2013," segir Brynjar Smári Þorgeirsson. Gott orðspor og afspurn „Það hefur alltaf verið mjög mikið að gera hjá okkur nánast frá upphafi og engin lognmolla. Fyrirtækið var stofnað í ársbyrjun 1973 og hefur ætíð verið í Kópavogi. Það segir líka sitt að fyrirtækið er enn rekið á sömu kennitölu og í upphafi. Fastakúnnahópurinn er orðinn gríðarlega stór og tryggur enda leggjum við ávallt upp með að gera viðskiptavininn ánægðan, sama hversu smátt eða stórt verkið er. Gott orðspor og afspurn er jú besta auglýsingin sem völ er á,“ segir Brynjar. Allt sem þér gæti dottið í hug! „Við bjóðum upp á sérsmíði eða „custom“ vinnu fyrir fólk hvað varðar breytingar á bifreiðum og tækjum. Þá bjóðum við upp á lökkun til að breyta lit, almennar breytingar á útliti bíla, erum með spoiler kit, dekk og felgur. Þá erum við með gott úrval af hvers kyns bílatengdum vörum sem og varahlutum. Allt sem þér gæti dottið í hug, það framkvæmum við!“ Bílalökkun Kópsson er með bílaleigu fyrir viðskiptavini á staðnum ef þörf er á slíku meðan á viðgerð og breytingum stendur. Einnig er fyrirtækið með frítt tjónamat fyrir viðskiptavini. Einn nýjasti réttingarbekkur landsins „Fyrir réttingar þá höfum við yfir að búa einum nýjasta tölvustýrða Car-O-Liner réttingarbekk lands- ins, sem gerir alla vinnu öruggari og þægilegri. Þá leggjum við mikla áherslu á gæði varahluta sem eru nánast undantekningarlaust keypt- ir upprunalegir frá framleiðanda hverrar bifreiðar fyrir sig. Við vinnum þá eftir skilvirku gæðakerfi og fyrir- mælum framleiðanda hverju sinni.“ „Við bjóðum upp á mössun og lakkhreinsun bifreiða, ásamt hinum ýmsu lakkvörnum og höfum gert slíkt í áratugi. Gott almennt viðhald er auðvitað besta verðmætavarslan fyrir fólk sem annt er um bifreið sína. En stundum þarf bíllinn smá aukaást og þá er tilvalið að koma t.d. með hann í mössun til okkar. Það skerpir á litnum og gefur flottan glans. Einnig bjóðum við upp á mótorþvott og erum við sérstaklega útbúnir til slíks gufuþvotts,“ segir Brynjar. Bílalökkun Kópsson er staðsett að Smiðjuvegi 68, Gul gata, 200 Kópavogi. Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook: Bílalökkun Kópsson ehf Sími: 586-8484 Netpóstur: bilalokkun@ bilalokkun.is Instagram: Kópsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.