Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Qupperneq 26
Allt fyrir bílinn 19. september 2019KYNNINGARBLAÐ
Bílalökkun Kópsson ehf:
Gott orðspor er besta auglýsing sem völ er á
Réttingaverkstæðið og
bílamálunarþjónustan Bílalökkun
Kópsson þjónustar flestöll
tryggingafélög landsins með bíla
sem hafa lent í tjóni eða óhöppum.
„Auðvitað bjóðum við líka upp
á þjónustu okkar fyrir almenna
viðskiptavini og fyrirtæki. Þá bjóðum
við upp á réttingar, bílamálun,
rúðuskipti, rúðuviðgerðir og sérsmíði.
Þar fyrir utan þjónustum við mikið til
bílaleigur og bílaumboðin, þar með
taldar umboðsbifreiðar Brimborgar.
Einnig höfum við þjónustað TESLA
bifreiðar í tjónaviðgerðum og
almennum CLAIM viðgerðum með
leyfi TESLA framleiðandans
síðan 2013," segir Brynjar Smári
Þorgeirsson.
Gott orðspor og afspurn
„Það hefur alltaf verið mjög mikið
að gera hjá okkur nánast frá upphafi
og engin lognmolla. Fyrirtækið var
stofnað í ársbyrjun 1973 og hefur
ætíð verið í Kópavogi. Það segir
líka sitt að fyrirtækið er enn rekið
á sömu kennitölu og í upphafi.
Fastakúnnahópurinn er orðinn
gríðarlega stór og tryggur enda
leggjum við ávallt upp með að gera
viðskiptavininn ánægðan, sama
hversu smátt eða stórt verkið er.
Gott orðspor og afspurn er jú besta
auglýsingin sem völ er á,“ segir Brynjar.
Allt sem þér gæti dottið í hug!
„Við bjóðum upp á sérsmíði eða
„custom“ vinnu fyrir fólk hvað varðar
breytingar á bifreiðum og tækjum.
Þá bjóðum við upp á lökkun til að
breyta lit, almennar breytingar á
útliti bíla, erum með spoiler kit, dekk
og felgur. Þá erum við með gott
úrval af hvers kyns bílatengdum
vörum sem og varahlutum. Allt
sem þér gæti dottið í hug, það
framkvæmum við!“ Bílalökkun
Kópsson er með bílaleigu fyrir
viðskiptavini á staðnum ef þörf er á
slíku meðan á viðgerð og breytingum
stendur. Einnig er fyrirtækið með
frítt tjónamat fyrir viðskiptavini.
Einn nýjasti réttingarbekkur landsins
„Fyrir réttingar þá höfum við yfir
að búa einum nýjasta tölvustýrða
Car-O-Liner réttingarbekk lands-
ins, sem gerir alla vinnu öruggari
og þægilegri. Þá leggjum við mikla
áherslu á gæði varahluta sem eru
nánast undantekningarlaust keypt-
ir upprunalegir frá framleiðanda
hverrar bifreiðar fyrir sig. Við vinnum
þá eftir skilvirku gæðakerfi og fyrir-
mælum framleiðanda hverju sinni.“
„Við bjóðum upp á mössun og
lakkhreinsun bifreiða, ásamt hinum
ýmsu lakkvörnum og höfum gert slíkt
í áratugi. Gott almennt viðhald er
auðvitað besta verðmætavarslan
fyrir fólk sem annt er um bifreið sína.
En stundum þarf bíllinn smá aukaást
og þá er tilvalið að koma t.d. með
hann í mössun til okkar. Það skerpir á
litnum og gefur flottan glans. Einnig
bjóðum við upp á mótorþvott og
erum við sérstaklega útbúnir til slíks
gufuþvotts,“ segir Brynjar.
Bílalökkun Kópsson er staðsett
að Smiðjuvegi 68, Gul gata, 200
Kópavogi.
Nánari upplýsingar má nálgast á
Facebook: Bílalökkun Kópsson ehf
Sími: 586-8484
Netpóstur: bilalokkun@
bilalokkun.is
Instagram: Kópsson