Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 28
Allt fyrir bílinn 19. september 2019KYNNINGARBLAÐ GÆÐASPRAUTUN OG GÆÐARÉTTINGAR – Faglegar og umhverfisvænar endurbætur á tjónabílum Fyrirtækið Gæðasprautun og Gæðaréttingar sérhæfir sig í þjón-ustu við eigendur tjónabíla og sér til að eigendurnir fái bílana jafn góða til baka eftir viðgerð. Gæðasprautun og Gæðaréttingar er með samstarfssamn- inga við tryggingafélögin og er traustur áfangastaður fyrir þá ökumenn sem lenda í tjóni og vilja fá bílinn sinn til baka úr tjónaviðgerð á stuttum tíma. „Ég er með marga ánægða viðskipta- vini sem koma aftur og aftur en við þjónustum bílaleigurnar mikið. Stærstu bílaleigurnar leita mikið til okkar,“ segir Ricardas Navickas, eigandi fyrirtækisins, en hann er frá Litháen. Ricardas hef- ur búið hér á landi síðan árið 2006 og vegnað afar vel enda fagmaður fram í fingurgóma. Gæðasprautun og Gæðaréttingar flutti nýlega í stærra húsnæði á sama stað og segir Ricardas að það dugi samt ekki til, enda eftirspurnin eftir þjón- ustunni mikil. Fimm manns starfa hjá Gæðasprautun og Gæðaréttingum við tjónaskoðun, réttingar og bílasprautun. Gæðasprautun og Gæðaréttingar býður upp á mjög umhverfisvænar réttingar því ef lakk er ekki skemmt í beyglunni þá geta þeir lagfært skemmdina án þess að nota lakk með því að beita svokölluðum smáréttingum. Þar með á engin litabjögun sér stað því það er sami liturinn áfram á tjónaða svæðinu og bíllinn jafn góður og áður. Þessu er náð fram með sérstakri tækni og góðum tækjabúnaði. „Þetta geta ekki allir gert en við erum með mörg sérhæfð verkfæri til að fást við þessar beyglur og ná þessu fram,“ segir Ricardas sem viðurkennir að tjóna- vinnan sé mjög erfið og krefjist mikils af þeim sem við hana fást. „Við vinnum okkar vinnu af metnaði og ástríðu,“ segir Ricardas. Biðtími eftir bíl sem þarf að sprauta eða lakka er oft 2–3 dagar. Gæða- sprautun og Gæðaréttingar skilar hins vegar bíl úr viðgerð samdægurs. Þannig sparast bæði mikill tími og kostnaður fyrir bíleiganda. Gæðasprautun og Gæðaréttingar er fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem lagar beyglur á þaki bílsins með litlum tilkostn- aði. Ricardas segir það mjög algengt að komið sé með bíla til viðgerðar þar sem staðið hefur verið á bílþakinu þannig að sér á bílnum á eftir. Slík viðgerð hef- ur falið í sér að skipt er um þakið með ærnum tilkostnaði, Gæðasprautun og Gæðaréttingar hins vegar lagar slíkar skemmdir án þess að skipta um þak- ið eða lakka. Kostnaðurinn er því mun minni en ella. „Stundum komum við á staðinn og réttum beyglur hjá bíleigandanum, til dæmis hjá bílaumboðum og bílaleigum og þessa þjónustu kann fólk mjög vel að meta. Við höfum oft komið á staðinn eftir að viðskiptavinur bílaleigu hefur lent í tjóni og gert við beyglur á hálftíma eða klukkutíma og allir eru alsælir, málið er leyst,“ segir Ricardas. Einnig má bæta við að öll efni sem Gæðasprautun og Gæðaréttingar notar við viðgerðirnar eru umhverfisvæn. Gæðasprautun og Gæðaréttingar er í Súðarvogi 38, Reykjavík. Símanúmer er 557-1515, einnig má senda skilaboð í gegnum Facebook: Gaedasprautun. Fyrir Eftir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.