Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Síða 62
62 FÓKUS 13. september 2019
YFIRHEYRSLAN
Sigrún Ásta
Jörgensen
Hvar líður þér best?
Heima með fjölskyldu minni. Alltaf nóg af kósí stundum þar, þau eru líka
allt mitt.
Hvað óttastu mest?
Að missa einhvern náinn mér.
Hvert er þitt mesta afrek?
Að vinna við það sem ég elska, starfið dregur mig stöðugt lengra út fyrir
þægindarammann og fyrir það er ég þakklát. Líka það að ég er andlega
og líkamlega hress manneskja, það er ekki sjálfgefið.
Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér?
Það var með erlendum viðskiptavini og það má segja að ein gellan hafi
verið með mikla skapgerðarbresti. Þetta er alveg skrautleg saga, en ég
vil helst ekki tala opinberlega um verkefni mín því maður gerir það ekki í
þessum bransa.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni?
Ekki sjá eftir neinu, lifðu lífinu til fulls.
Hvernig væri bjórinn Sigrún Ásta?
Unicornlove. Pale Ale
Besta ráð sem þú hefur fengið?
„Þú getur ekki haldið áfram ef þú ert alltaf með augun í baksýnisspeglin-
um, þá endarðu bara með að klessa á.“
Amma mín gaf mér þetta góða ráð.
Hvert er leiðinlegasta húsverkið
Tjaaaaa, líklega að skúra, góð hreyfing en sjúklega leiðinleg. Mér finnst
mjög næs að taka til því ég vil alltaf hafa hreint í kringum mig, svo að
flest er frekar skemmtilegt nema að skúra, það er það eina sem ég er
alltaf að fresta.
Besta bíómynd allra tíma?
Pulp Fiction og Blow, ég dýrka þessar myndir.
Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir?
Ég væri mikið til í að vera góður leikari, að horfa á góða leikara að
gera sitt er magnað.
Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið?
Ein af þeim stærstu var þegar ég fór ein til Balí og dvaldi þar
í þrjár vikur, ég flutti líka ein til Bandaríkjanna þegar ég var
sautján ára og bjó þar í tvö ár. Tuttugu og þriggja flutti ég líka
ein til Noregs og bjó þar í nokkra mánuði. Þetta var allt áhætta
en gaf mér mikinn þroska til baka.
Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á
þér?
„Þetta reddast“. Mér finnst þetta vera rosalega íslenskt
eitthvað. Mjög pirrandi.
Hvaða geturðu sjaldnast staðist eða ert
góð í að réttlæta að veita þér?
Klárlega smjördeigshorn, ég elska smjördeigshorn og
gæti borðað smjördeigshorn með öllu!! Ég fékk meira
að segja vatn í munninn núna bara við að hugsa um
smjördeigshorn.
Hvað er á döfinni hjá þér?
Það eru nokkur skemmtileg verkefni með
flottum og skemmtilegum fyrirtækjum
framundan, bæði hérlendis og erlendis. Ég
elska vinnuna mína og er snarspennt fyrir
næstu mánuðum.
Sigrún Ásta Jörgensen starfar sem stílisti,
förðunarfræðingur og búningahönnuður sem hún
segir bæði krefjandi og skemmtilega vinnu. Við
fengum Sigrúnu Ástu í yfirheyrslu helgarinnar.
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is