Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Síða 34
Allt fyrir bílinn 19. september 2019KYNNINGARBLAÐ
Ert þú búin/nn að verja
bílinn fyrir veturinn?
Saltið á götunum, sífelldar frosthörkur og þíða sem og grjótkast eru hvimleiðir fylgi-
fiskar íslenska vetrarins og eiga það
allir sameiginlegt að fara illa með
bílalakkið. Sérstaklega er saltið alger
erkióvinur lakksins. Það er því gullin
þumalputtaregla að setja varnarhúð
á lakkið áður en veturinn skellur á í
öllu sínu veldi. Það er hægt með því
að bóna bílinn vel og vandlega eða
skella á hann keramikhúð.
Massabón flutti nýlega í glæsilegt
húsnæði að Auðbrekku í Kópavogi.
Massabón er alhliða bónverkstæði
sem býður upp á fjölbreytta þjónustu
í bílaþrifum og viðhaldi á bílalakki.
„Hægt er að velja á milli þrif- og
bónpakka hjá okkur sem gefa góða
vörn gegn saltinu og skítnum sem
fylgir íslenskum vetri. Fyrir vikið verður
einnig töluvert auðveldara að skola af
bílnum. Óhreinindin hreinlega renna
af honum. Með reglulegu viðhaldi og
bóni á lakki viðheldur þú einnig verð-
gildi nýs bíls. Þú kemur með bílinn til
okkar og við ráðleggjum um það sem
þarf að gera. Í sumum tilfellum er nóg
að þrífa og bóna, í öðrum mælum
við með mössun ef lakkið er illa farið.
Keramikhúðunin er svo toppurinn
þegar kemur að því að verja lakkið, en
sú meðferð dugir í allt að tvö ár,“ segir
Hallur Sigurðsson.
Pakki 1. Alþrif. Dugir í um 3 mánuði.
Hefðbundinn þrif- og bónpakki þar
sem bíllinn er tjöru- og sápuþveg-
inn með ullarsvampi. Hægt er að
bæta við leirun gegn vægu gjaldi.
Við leirun losnarðu 100% við öll
óhreinindi sem hafa sest fyrir í litlum
rispum í lakkinu. Eftir þurrkun er bor-
ið efni á allt plast til ná fram dýpri
lit. Þá eru rúður þvegnar. Næst er
bíllinn bónaður með CarPro bóni og
dekkgljái borinn á öll dekk. Að lokum
er innrétting ryksuguð, þurrkað af
öllu og mottur þrifnar. Bónið veitir
góða lakkvörn í allt að þrjá mánuði.
Pakki 2. Keramikhúðun. Dugir í
allt að 2 ár.
Fyrir þá sem vilja aukavörn og
lengri endingu mælum við með ker-
amikhúðun. Í þessum pakka fylgir
allt það sama og í pakka 1. Bíllinn
er einnig leiraður. Svo er keramik-
húð borin á sem dugir í allt að tvö
ár. Þessi pakki er nokkuð dýrari en
hefðbundni pakkinn en dugir líka
þeim mun lengur.
Hér er búið að massa hálfa
hurðina. Það sést ótrúlegur munur.
„Einnig tek ég að mér að massa
bíla. Með mössun er hægt að
fjarlægja grunnar rispur og jafnvel
nokkuð stórar, en auðvitað ekki þær
sem ná niður fyrir málningarlagið.
Bíllinn verður í kjölfarið rennisléttur
og alveg eins og nýr.“
„Við erum með úrval af fyrsta
flokks bóni og hreinsiefnum fyrir
bílinn og getum ráðlagt viðskipta-
vinum okkar um notkun þeirra.“
Hægt er að kaupa Cquartz keramik-
húð hjá Massabóni. Cquartz UK 3.0 er
harðasta keramíkhúðin sem fæst
á markaðnum í dag. Cquartz UK er
harðara en hefðbundin glæra á bíl
og eykur því þol bílsins gegn risp-
um og hrindir hann betur frá sér
óhreinindum t.d. tjöru og salti. Efnið
er unnið úr kísildíoxíði (SIO2) (70% af
innihaldi Cquartz) og er þetta fyrsta
varan á markaðnum sem inniheldur
svona mikið magn af hreinu SIO2.
Efnið er auðvelt í notkun og í raun
ekkert erfiðara að bera það á heldur
en að bóna bíl með hefðbundnu
bóni, en nauðsynlegt er að vera með
aðgang að bílakjallara eða þurru
rými þegar efnið er borið á.
Hydro2 Lite er stórsniðugt bón
sem myndar vatnshrindandi húð á
lakk og aðra fleti og gefur fallegan
gljáa. Efnið er afar einfalt í notkun og
þarf ekki að gera meira en að úða
bóninu yfir bílinn og skola af. Þá ertu
búinn að bóna bílinn. Efnið er öruggt
til notkunar á alla fleti bílsins. Lakk,
gler, plast og felgur.
IronX frá CarPro er öflugt
hreinsiefni til notkunar á öll farar-
tæki, bæði felgur og lakk, og var
þróað sem lausn til að fjarlægja
óhreinindi af bílum umfram það
sem hefðbundinn þvottur eða leir
getur gert. Lausnin skiptir um lit
þegar hún kemst í snertingu við
járneindir á lakkinu og verður þá
rauð/fjólublá á litinn. Öruggt að
nota á ál, króm, plast og lakk.
Massabón er umboðsaðili fyrir
CarPro bílavörurnar og selur vörur
sínar í vefversluninni massabon.is
sem og á verkstæði sínu í
Auðbrekku 25–27, Kópavogi.
Fylgstu með á Facebook:
Massabón
Instagram: Massabon2
Snapchat: Massabón