Fréttablaðið - 10.01.2008, Page 42
10. JANÚAR 2008 FIMMTUDAGUR
Margir hafa gaman af að bæta
kunnáttu sína í matargerð.
Tómstundaskólinn í Mosfells-
bæ býður upp á spennandi
námskeið fyrir þá á næstunni.
Á einu þeirra mun Mahesh
Aron Kale elda og baka ind-
verskt.
„Indverskur matur er góður og
ódýr. Þess vegna er sniðugt að
kunna að búa hann til,“ segir
Mahesh á ágætri íslensku. Hann
ætlar að leiða fólk í leyndardóma
indverskrar matargerðar í eld-
húsi Lágafellsskóla í Mosfellsbæ.
Kveðst hann hafa leiðbeint þar
áður og líka í Ármúlaskóla. „Ég
kenni fólki það sem er auðvelt að
gera. Til dæmis hvernig á að baka
indverskt steikt brauð sem er oft
borið fram í giftingarveisl-
um. Líka að elda kjúklinga-
rétti, svínarétti og alls konar
rétti. Svo sýni ég hvernig á að
búa til jógúrt. Indverjar nota
mjög mikið jógúrt og búa það til
sjálfir. Það er eitt af því sem ég
kenni enda er jógúrt svo
dýrt í búðum hér.“
Það sem einkum
einkennir ind-
verska matar-
gerð er hin
ilmandi
krydd.
Skyldi
Mahesh
fá þau send frá sínu heimalandi?
„Nei, nú fæst allt á Íslandi,“ segir
hann brosandi. „Einkum í Sæl-
kerabúðinni. Hún er á Suðurlands-
brautinni og var nýlega að færa
sig þar milli húsa. Þegar ég elda
sjálfur heima nota ég ferskt krydd
sem ég rækta. Á námskeiðunum
fræði ég fólk um krydd og hvernig
best sé að blanda það.“
Mahesh Aron kom fyrst til
Íslands árið 1983. Tíu árum seinna
flutti hann til Bandaríkjanna og
svo hingað aftur árið 2001. Hann
starfar núna sem strætóbílstjóri
og kveðst aldrei hafa rekið mat-
sölustað. „Ég var að hjálpa konu
sem var að byrja með veitinga-
húsið Austur-Indíafélagið. Líka
konu sem var að byrja með ind-
verskt matsöluhús við Laugaveg-
inn sem hét Taj Mahal. En ég hef
aldrei hugsað um að stofna sjálfur
matsöluhús enda er ég ekki lærð-
ur. Ég geri þetta bara af áhuga og
finn að fólki líkar það sem ég elda.
Ég bý ekki til sterkan mat fyrir Ís-
lendinga. Reyni bara að gera mat
sem þeim finnst góður.“ - gun
Kenni það sem
er auðvelt
Mahesh Aron Kale ætlar að fræða fólk um töfra indverskrar matargerðar í eldhúsi
Lágafellsskóla. Námskeiðið er á vegum Tómstundaskólans í Mosfellsbæ.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM