Fréttablaðið - 10.10.2015, Blaðsíða 42
Árni Ólafur
Jónsson
kokkur og bústjóri Hins
blómlega bús
Ferðu á jólahlaðborð á
hverju ári?
Nei, ég fer kannski á
nokkurra ára fresti.
Hleður þú á disk-
inn eða ferðu marg-
ar ferðir? Margar ferð
ir, ég vil bragða
hvern og einn
rétt fyrir sig
í stað þess
að blanda
þeim
saman í
einn hrauk.
Af hverju
færðu þér mest? For
réttum og villibráð.
Borðar þú yfir þig? Ég
reyni að borða ekki yfir
mig en ég held að mér
hafi aldrei tekist það,
þetta virðist vera bölv
un hlaðborðanna.
Hvað á helst að forð-
ast á jólahlaðborði?
Að f lýta sér um of.
Það er best að taka
sér góðan tíma, fá sér
lítið í einu, fara marg
ar ferðir, borða
hægt og njóta þess
að snæða í
góðra vina
hópi.
Besta
jólahlað-
borð sem þú
manst eftir?
Hlaðborð
ið á Snaps
jólin 2013, eftir
langar og strangar tökur
fyrir aðra þáttaröðina
af Hinu blómlega búi.
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
upplýsingafulltrúi Símans
Ferðu á jólahlaðborð á
hverju ári? Já, svo gott sem.
Nánast undantekningar
laust er það tengt vinnu
eða einhvers konar hópa
starfi. Fór í fyrra með
bekkjarfélögum úr MBA
náminu. Mjög hefðbund
inn jólamatur, mun meira
stuð.
Hleður þú á diskinn eða
ferðu margar ferðir? Ég
fer margar og geri jafnan
grín að hinum sem koma
að borðinu með hlaðinn
diskinn. Um leið svekki ég
mig á því að hafa ekki sett
meira og vera rétt á leið í
röðina aftur.
Af hverju færðu þér
mest? Forréttir eru í miklu
uppáhaldi. Reyktur lax og
grafið fuglakjöt. Elska líka
sjávarréttapaté og ekki
klikka eftirréttirnir. Ris
alamande er best þegar vel
tekst til og crème brûlée.
Borðar þú yfir þig? Ég er
svona meira í að stýra því
að bóndinn geri það ekki!
Hvað á helst að forðast á
jólahlaðborði? Aðalréttina í
mínu tilfelli. Þeir taka pláss
frá frábærum forréttum.
Besta jólahlaðborð sem
þú manst eftir? Fór á eftir
minnilegt jólahlaðborð í
Perlunni fyrir fimm árum.
Staðurinn bauð óhefð
bundna rétti, sem komu
mjög á óvart, voru snilld
og frábært að hringsnú
ast um borgina um leið og
þjónarnir snerust í kring
um vinnufélagana, mig og
manninn.“
Guðjón Davíð
Karlsson
Gói, leikari
Ferðu á jólahlaðborð
á hverju ári? Nei ég
geri það ekki. En hef
farið oft. Það er alltaf
skemmtileg stemning.
Hleður þú á diskinn
eða ferðu margar ferð-
ir? Þetta er alltaf eins
hjá mér. Ég hugsa löngu
áður hvað ég ætla að
vera agaður og passa
mig að troða ekki á
diskana. Það gengur
yfirleitt vel til að byrja
með en svo missi ég
mig oftast á einhverj
um tímapunkti.
Af hverju færðu þér
mest? Úffff, þessi er
erfið. Ég elska síld. Ég
er líka patémaður. En
umfram allt elska ég
kjöt. Ég elska hlaðborð
sem er með gott nauta
kjöt, wellington. Það er
alveg málið.
Borðar þú yfir þig?
JÁ.
Hvað á helst að forð-
ast á jólahlaðborði? Að
borða of hratt! Alls ekki
blanda saman, taka
þetta skipulega! Njóta!
Fá sér smáa skammta
og fara frekar oftar.
Besta jólahlað-
borð sem þú manst
eftir? Mér finnst lang
skemmtilegast að fara
í heimatilbúin jóla
hlaðborð þar sem allir
koma með eitthvað
á borðið. Huggulegt,
heimilislegt og hátíð
legt!
Best að fara margar ferðir
Jólahlaðborð eru fastur liður í lífi margra. Hætturnar við hlaðborðin eru nokkrar enda ekki óvanalegt að hneppa þurfi frá nokkrum
buxnatölum að lokinni máltíð. Hér segja nokkrar valinkunnar manneskjur frá því hvernig þær haga sér á jólahlaðborðum.
Sigríður Arnardóttir
Sirrý, fjölmiðlakona
Ferðu á jólahlaðborð á hverju
ári? Já, en ég fékk þó fyrir nokkr
um árum leiða á þessum venju
legu hlaðborðum sem verða allt
af til þess að maður borðar of
mikið. Svo kynntist ég jólahlað
borðunum hjá Marentzu Poul
sen á Kaffi Flóru. Það er alveg sér
á báti. Þar færðu fullt af pínulitl
um og skemmtilegum réttum
sem eru bornir á hvert borð fyrir
sig. Stemningin í Kaffi Flóru um
jólin er dálítið eins og að koma
til Kaupmannahafnar í jólaferð.
Þar er allur gróður skreyttur jóla
ljósum og logandi kyndlar standa
víða. Þessir litlu réttir eru líka mun
girnilegri en yfirfullt hlaðborð.
Hvað á helst að forðast á jóla-
hlaðborði? Allan jólabjór. Ég tími
ekki að fylla magann af bjór því
hann er bara brauð í fljótandi
formi. Því sleppi ég honum alveg
og fæ mér heldur rauðvín.
Hvað finnst þér best? Ég er
meira fyrir forréttina en eftirrétt
ina. Ég tek lax og villibráð fram yfir
dísæta deserta en þó vil ég gjarnan
enda á einum sætum bita.
Besta hlaðborðið? Jólahlaðborð
Marentzu, ekki síst út af stemn
ingunni.
Hulda Geirsdóttir
útvarpskona á RÁS 2
Ferðu á jólahlaðborð á hverju ári?
Já, ég hef yfirleitt farið á jólahlað
borð á hverju ári. Hér í eina tíð fór
maður á mörg, en undanfarin ár
finnst mér fínt að fara bara á eitt.
Hleður þú á diskinn eða ferðu
margar ferðir? Ég fer frekar nokkr
ar ferðir – en diskurinn getur alveg
orðið hlaðinn í einhverjum þeirra!
;)
Af hverju færðu þér mest?
Ég fæ mér yfirleitt mest af aðalrétt
um, eins og kalkún og öðru slíku
fíneríi sem maður fær sjaldan.
Borða ekki síld til dæmis og er yfir
leitt minna í forréttunum, en reyni
samt að smakka eitthvað nýtt í
hvert skipti.
Borðar þú yfir þig? Já, ég held
að maður verði að viðurkenna að
yfirleitt borðar maður of mikið á
jólahlaðborði þó að ég hafi ekki
enn lent í því að velta út!
Hvað á helst að forðast á jóla-
hlaðborði? Ég forðast saltan mat
svo sem hangikjöt og hamborgar
hrygg, ef ég smakka það þá er það
bara pínku ponsu biti. Svo er gott
að muna að fá sér frekar lítið af
öllu svo maður geti smakkað sem
flest, það er jú tilgangurinn með
hlaðborði.
Jólahlaðborð í sveitakyrrð
Allar nánari upplýsingar á www.hoteleldhestar.is
Eldhestar, Vellir, 816 Ölfus
Netfang info@eldhestar.is Sími 480 4800
Við bjóðum okkar sígilda jólahlaðborð síðustu tvær
helgarnar í nóvember og tvær fyrstu helgarnar í desember
– nú er rétti tíminn til að panta!
Jólahlaðborðið 2015 er á 7.900 kr.
Einstakt tilboð!
Matur og gisting á 12.500 kr. á mann.
Innifalið er jólahlaðborð, gisting í 2ja manna herbergi
ásamt morgunverðarhlaðborði.
Hvernig væri að stíga út úr annríki jólaundirbúningsins og njóta margrómaða jólahlaðborðsins á
Hótel Eldhestum sem býður einstaka upplifun í hlýlegu umhverfi?
Kynning − auglýsing 10. oKtÓber 2015 LAUGArDAGUr6 Jólahlaðborð