Fréttablaðið - 10.10.2015, Blaðsíða 90
Kynning − auglýsing 10. október 2015 LAUGArDAGUr10 Jólahlaðborð
Boðið verður upp á stórskemmtilegt og óvenjulegt jólahlað
borð í Hernámssetrinu að Hlöðum á Hvalfjarðarströnd fyrir
jólin. Þar verður boðið upp á villt jólahlaðborð í bland við leik
ritið sívinsæla, Þjónn í súpunni, en leikarar sýningarinnar eru
jafnframt þjónar kvöldsins. „Það er svo sannarlega hægt að lofa
öðruvísi jólahlaðborði hér í Hernámssetrinu og ekki skemma
ljúffengar veitingar fyrir,“ segir Kjartan Guðjónsson, einn fjög
urra leikara sýningarinnar sem fer með hlutverk yfirþjónsins.
„Þetta er mikið samspil gesta og okkar leikaranna þannig að
það má búast við skemmtilegu kvöldi og óvæntum uppákom
um. Gestir okkar verða þó aldrei settir í óþægilega aðstöðu.“
Þjónn í súpunni var sýnt í Iðnó 1998 við frábærar undirtekt
ir og síðar á Akureyri á Friðriki V árið 2009. Hernámssetrið er
ekki langt frá borginni í sveitasælu Hvalfjarðar. „Þetta er mjög
skemmtilegur staður að heimsækja og Hvalfjörður á líka stór
merkilega sögu frá hernámsárunum sem gaman er að kynna
sér.“
Boðið verður upp á úrval spennandi forrétta á borð við heit
reyktan lax, saltfisk og síld, grafna önd og villibráðarkæfu auk
fleiri rétta. Meðal aðalrétta má nefna hamborgarhrygg, hrein
dýrabollur, jólaskinku og furugrillað lambalæri. Að sjálfsögðu
verður boðið upp á gómsæta eftirrétti. Verð á mann er 10.900
kr. og er fordrykkur í boði hússins.
Borðpantanir eru í síma 433 8877 og á netfanginu hladir@
warandpeace.is. Allar nánari upplýsingar má finna á www.war
andpeace.is.
Villt jólahlaðborð og
Þjónn í súpunni
Það er hægt að útfæra endalausar hugmyndir að réttum þegar kemur að jóla
hlaðborði í heimahúsi. Hér eru
nokkrar hugmyndir. Síðan má
auðvitað alltaf bæta við eftir
smekk hvers og eins.
Kalkúnasalat á ristuðu brauði
Þetta góða salat hentar vel á jóla
hlaðborðið og það er einfalt að
gera. Notað er snittubrauð með
salatinu.
200 g eldað kalkúnakjöt
½ bolli sýrður rjómi
1 msk. majónes
½ msk. gróft sinnep
Klettasalat, skorið smátt
Salt og nýmalaður pipar
Safi og rifinn börkur af ½ appelsínu
16 sneiðar af snittubrauði
Olía og hvítlaukur
Skerið kalkúnakjötið smátt. Bland-
ið saman rjóma, majónesi, sinnepi
og klettasalati. Bragðbætið með salti
og pipar. Hrærið kjötið saman við og
bætið síðan appelsínusafa og rifn-
um berki út í.
Látið standa í ísskáp í nokkrar
klukkustundir fyrir notkun.
Hitið olíu á pönnu og steikið
brauðsneiðar í olíunni. Leggið þær á
bökunarpappír og nuddið þær með
hvítlauksrifi.
Setjið góða matskeið af salati á
hverja brauðsneið. Puntið með rifn-
um appelsínuberki. Ef þú átt ekki
kalkúnakjöt má nota kjúkling í
þennan rétt.
Sinnepssíld
Það er mjög gott að hafa síld sem
nokkurs konar forrétt á borðinu.
Best er að hafa rúgbrauð með
henni.
6 síldarflök (marineruð)
4 msk. súrsuð gúrka
1 laukur, smátt skorinn
4 eggjarauður
1 msk. sykur
2 msk. hvítvínsedik
2 msk. gróft sinnep
2 ½ dl sojasósa
3 msk. ferskt dill
Ef síldin er sölt er hún aðeins skoluð
undir rennandi vatni og síðan þerruð.
Blandið saman eggjarauðum, sykri,
ediki og sinnepi í skál og hrærið vel
saman. Bætið olíu saman við hægt og
rólega og hrærið stöðugt á meðan.
Þegar sósan er orðin að majónesi er
gúrkunum bætt saman við, lauknum
og dilli. Bragðbætið með salti og pipar.
Skerið síldina í litla bita og bætið út í sós-
una. Geymið í ísskáp.
Jólaskinka er góð
Einfalt er að sjóða
hamborgarhrygg
eða jólaskinku,
láta hana kólna og
raða henni fallega
á bakka. Með
læti gæti til dæmis
verið kartöflusalat
og soðið grænmeti.
Kartöflusalat
8 stórar, soðnar kartöflur
4 smátt skornir vorlaukar
2 msk. súrsaðar gúrkur, smátt
skornar
1 msk. vökvi af sultuðum gúrkum
1 box sýrður rjómi
4 msk. majónes
1 msk. sojasósa
½ tsk. tabasco-sósa
½ tsk. salt
¼ tsk. pipar
Skrælið kartöflurnar og skerið þær í
bita. Blandið öllu saman sem á að fara
í dressinguna. Bragðbætið með salti og
pipar.
Hrærið kartöflurnar út í sósuna og
geymið í ísskáp í nokkra klukkutíma
fyrir notkun. Fallegt er að skreyta salat-
ið með niðurskorinni, ferskri steinselju.
Appelsínusoðnar gulrætur
Það er hægt að hafa alls kyns
soðið grænmeti á jóla
hlaðborðinu, til
dæmis appelsínu
soðnar gulrætur.
Þær passa mjög
vel með svína
kjöti.
10 gulrætur
8 dl appelsínusafi
Rifinn börkur af
¼ appelsínu
1 stjörnuanís
4 negulnaglar
1 tsk. rifin engiferrót
50 g smjör
2 msk. steinselja
Skrælið gulræturnar og helmingið þær
á lengdina. Setjið í pott með appelsínu-
safa, rifnum berki, stjörnuanís, negul
og engifer. Eftir smásuðu eru gulræt-
urnar teknar upp úr og lagðar til hlið-
ar. Sigtið soðið. Hitið aftur upp og látið
sjóða smástund þar til lögurinn hefur
minnkað um helming. Hrærið þá smjör
saman við. Því næst er steinseljan sett
saman við og loks gulræturnar aftur.
Berið fram.
Einfalt og þægilegt
jólahlaðborð heima
Það getur verið mjög skemmtilegt að bjóða gestum í lítið jólahlaðborð heima í
desember. Ýmislegt er hægt að elda og hafa tilbúið þegar gesti ber að garði.
kalt svínakjöt hentar vel á jólahlaðborðið.
Gulrætur í
appelsínulegi
Sinn er siður í hverju landi en jólahlaðborð af einhverju tagi
eru algeng og ómissandi hluti af aðventunni á Norðurlöndun
um. Þeir sem hafa dvalist þar í lengri eða skemmri tíma eiga
erfitt með að komast í gegnum jólin án þess að fá sænska síld
eða danska purusteik svo dæmi séu nefnd. Þá getur verið gott
að vita af því að Norræna félagið í Reykjavík heldur norræna
jólagleði í húsakynnum félagsins að Óðinsgötu 7 þann 4. des
ember frá 18 til 21. Á boðstólum verða ýmsir hefð bundnir
jólaréttir frá Norðurlöndum og létt norræn skemmtidagskrá
með góðum leynigestum, en félagsmenn í Norræna félaginu
eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Þá má geta þess að veit
ingastaðurinn Aalto Bistro í Norræna húsinu verður með
skandinavíska jóladiska en þeir vöktu lukku í fyrra. Þá var
hægt að fá hreindýrabollur, síld og ýmislegt tilheyrandi góð
gæti.
Norrænir jólaréttir
hjá Norræna félaginu