Fréttablaðið - 12.11.2016, Síða 4
STRÍÐIÐ MIKLA 1914–1918
Íslendingar og heimsstyrjöldin fyrri
540
LJÓSMYNDIR
LYKILL
að
nútímanum
480
BLAÐSÍÐUR
í stóru broti
Þ E G A R S I Ð M E N N I N G I N F Ó R F J A N D A N S T I L
„Þetta er afrek ... bætir miklu við
fyrir okkur sem lásum fyrri útgáfuna
... Óvenju vel unnin bók.“
ÓÐINN JÓNSSON
NÁTTÚRA Aflýsa hefur þurft norður-
ljósaferðum fyrir nokkur hundruð
manns á dag vegna óhagstæðs
veðurs undanfarna daga, að því er
Þórir Garðarsson, framkvæmda-
stjóri sölu- og markaðssviðs Iceland
Excursions – Gray Line, greinir frá.
Fyrirtækið selur sjálft norðurljósa-
ferðir og þjónar auk þess mörgum
innlendum ferðaskrifstofum.
Þórir segir viðskiptavinina hafa
góðan skilning á því að veðrið á
Íslandi geti breyst. „Við leggjum
áherslu á að við séum að selja leitina
að norðurljósum. Ekkert sé öruggt í
þessum efnum, bæði vegna veðra-
breytinga og vegna þess að virkni
norðurljósanna er mjög mismun-
andi.“
Að sögn Þóris búa viðskiptavinir
yfir meiri þekkingu á þessu en áður.
„Aukinni þekkingu fylgir þolin-
mæði,“ tekur hann fram og bætir
við að leiðsögumennirnir búi núna
yfir gríðarlegri þekkingu á því sem
er að gerast í himinhvolfunum og
miðli henni til viðskiptavina.
Fjöldi viðskiptavina sem Gray
Line ekur í norðurljósaferðir er að
jafnaði 200 til 300 á dag. „Þegar við
fórum að selja leitina að norður-
ljósum fyrir 15 árum voru viðskipta-
vinirnir 20 til 30 á dag. Þá bárust
fleiri athugasemdir vegna óánægju
en nú. Menn höfðu minni þekkingu
á því sem þeir voru að kaupa þá,“
segir Þórir.
Ef norðurljósaferð er aflýst fá við-
skiptavinir endurgreitt. Sjáist ekki
norðurljós í skoðunarferð geta við-
skiptavinir farið í skoðunaferð án
endurgjalds innan tveggja ára. „Við
höfum farið með 1.600 manns á
einu kvöldi þegar ekki hefur verið
hægt að fara í nokkra daga eða þegar
ekki hafa sést ljós,“ greinir Þórir frá.
Björn Reynisson, sölustjóri hjá
Saga Travel, sem selur norðurljósa-
ferðir bæði fyrir sunnan og norðan,
segir skilyrði fyrir norðurljósa-
ferðir hafa verið góð fyrir norðan að
undanförnu. „Það hafa nokkrir tugir
verið í þessum ferðum á hverjum
degi.“
Björn greinir frá að nokkrir við-
skipavinir hafi komið sérstaklega
norður í norðurljósaferðir vegna
slæmra veðurskilyrða fyrir sunnan.
ibs@frettabladid.is
Hafa aflýst norðurljósaferðum
fyrir hundruð á hverjum degi
Slæm veðurskilyrði sunnanlands hafa valdið því að daglega hafa 200 til 300 ferðamenn misst af norður-
ljósaferðum að undanförnu. Viðskiptavinirnir fá endurgreitt vegna ferða sem ekki eru farnar. Nokkrir
ferðamenn hafa gert sér ferð norður þar sem skilyrði til skoðunar á norðurljósum hafa verið betri.
Þegar veðurskilyrði eru góð fara hundruð ferðamanna í norðurljósaferðir á
hverjum degi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Skilyrði til skoðunar
um helgina
l Fyrri hluta kvöldsins í kvöld eru
horfur á því að norðurljós sjáist
nokkuð góðar víðast hvar á öllu
Norðurlandi og Austurlandi,
að sögn Óla Þórs Árnasonar,
veðurfræðings hjá Veðurstofu
Íslands.
l Eftir miðnætti verður skýjað á
öllu landinu.
l Frekar skýjað verður á vestur
helmingi landsins á sunnudags
kvöld en mjög bjart og fallegt
austanlands.
l Veðurspá helgarinnar er
vindasöm og einnig verður víða
talsverð rigning. Hiti 5 til 10 stig.
TöluR vikuNNAR 06.11. 2016 Til 12.11. 2016
3,6
kílómetrar var tilraunahola á
Reykjanesi orðin fyrir nokkru –
og var hin dýpsta á Íslandi.
32%
drengja horfa á klám nær dag
lega, samkvæmt nýrri rannsókn.
10,3%
er áætlað að jólaverslun aukist um
miðað við í fyrra.
5.000 manns
með kennsluréttindi vinna
við önnur störf en kennslu hér á landi.
70.000 tonn
af makríl og síld bárust til
hafnar í Neskaupstað á vertíðinni.
0,5%
atvinnuleysi
mælist þessa
dagana á Höfn í
Hornafirði.
201
einstaklingur
sótti um hæli á
Íslandi í október;
169 voru frá
Evrópu.
2,9%
nýrra bíla sem
keyptir hafa verið
á árinu eru tengil
tvinnbílar – 1%
hreinir rafbílar.
Ólöf Guðný Geirsdóttir
dósent í næringar-
fræði við HÍ
sagði rannsókn
sem gerð var
2015 og 2016
hafa sýnt að
tveir af hverjum
þremur inni-
liggjandi öldruðum á
Landakotsspítala væru vannærðir
eða sýndu þess glögg merki að
svo væri. Aldraðir sem búa heima
fá senda eina máltíð á dag sem
væri 30 til 40 prósent þeirrar orku
sem þeir þyrftu yfir daginn. Ólöf
segir að annars staðar í heiminum
myndi þetta flokkast undir svelti.
Gunnar I. Birgisson
bæjarstjóri í Fjallabyggð
afþakkaði 600
þúsund króna
launahækkun.
Bæjarstjóra-
launin taka
mið af þing-
fararkaupinu sem
samkvæmt
ákvörðun kjararáðs hækkar um
44 prósent. Gunnar sagði launa-
hækkunina vera út úr kortinu.
Úrskurðurinn væri vægast sagt
sérkennilegur.
Skúli Helgason
formaður skóla- og frístundaráðs
sagði næstum 5.000
manns um allt
land, sem væru
með kennslu-
réttindi, hafa
leitað í önnur
störf. Ráðist hafi
verið í átak til að
gera störf grunnskólakennara og
leikskólakennara eftirsóknar-
verðari og líka starfsmanna á
frístundaheimilum.
Þrjú í fréttum
Svelti,
kauphækkun og
kennaraskortur
Da2 (gur)x
18+
Við höfum farið með 1.600 manns á
einu kvöldi þegar ekki hefur verið
hægt að fara í nokkra daga eða þegar ekki
hafa sést ljós.
Þórir Garðarsson, framkvæmdastjóri sölu og markaðssviðs
Iceland Excursions – Gray Line
E2 (lí)x = B5
1 2 . N ó v e m b e R 2 0 1 6 l A u G A R D A G u R4 f R é T T i R ∙ f R é T T A b l A ð i ð