Fréttablaðið - 12.11.2016, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 12.11.2016, Blaðsíða 30
Það má vel vera að það sé verið að skipta út einni valda-auð-stétt fyrir aðra í Washington með þessum kosningum. Ríkir karlar undir forystu Trumps sem taka við af smartari elítu undir forsæti Obama og sem Hilary Clinton tilheyrir. Ein helsta ástæðan fyrir að auðmaður- inn Trump sigraði Wall-Street-fjár- magnaða Clinton er að hann náði til stéttanna sem hafa verið skildar eftir og sem Demókratar, aðrir en Bernie Sanders, Elizabeth Warren og þeirra áhangendur, voru blindir á. Trump hlustaði á þessar stéttir og gerði ekki grín að fólki á matarmiðum og atvinnuleysisbótum meðan hann hæddist að fötluðum, útlendingum og konum og braut allar reglur „polit- ical correctness“. Frá upphafi Reagan-tímabilsins um 1980 hafa hinir ríku orðið ríkari meðan miðstéttin og einkum lægri miðstétt hefur holast að innan, lent í skuldum og eignamissi. Þarna er heil kynslóð sem liggur að stórum hluta óbætt hjá garði. Ekki bætti úr þegar bankarnir voru borgaðir út eftir bankahrunið sem jók enn á mis- skiptinguna og mokaði peningum í eitt prósent þeirra ríkustu. Demó- kratar í Bandaríkjunum leiddu þær aðgerðir og flokkur þeirra molnar núna eins og Blair-sinnaðir félags- hyggjuflokkar víða á Vesturlöndum. Vinstri stefna Obama og Clinton fólst að drjúgum hluta í sjálfsagðri og nauðsynlegri baráttu minnihluta- hópa. En vinstrið náði ekki lengra en það og skildi hópa út undan. Ekki síst hvíta karla sem búa við atvinnuóör- yggi og aukna fátækt vegna þróunar upplýsingatækni, útvistunar starfa til Asíu og stækkunar gigg-hagkerfisins með tilkomu innflytjenda. Þetta eru hópar karlar sem eiga ekki lengur sjens á að lifa ameríska drauminn og finnst þeir vera án málsvara, útskúf- aðir og niðurlægðir, líka vegna femín- isma vegna þess að þeir hafa stundum dregist menntunarlega og stöðulega aftur úr konum. Það á eftir að fara inn í sögubækurnar að Clinton kall- aði þessa hópa „reiðra hvítra karla“ „deplorables“, hina aumkunarverðu. Þeir slá nú til baka og láta pólitíkina í Washington sem hlustaði ekki á þá heyra það. Sú staðreynd að yfir 40 prósent kvenna kusu Trump er til marks um að stór hluti kvenna stóð frekar með sinni stétt en sínu kyni í þessum kosningum. 53 prósent hvítra kvenna sem kusu Trump birtir einnig kynþáttavíddina í þessum kosning- um, en Trump naut lítils fylgis meðal blökkumanna. Það þarf meira en loforð Demó- krata um skattahækkanir á þá ríku til að ná til hinna gleymdu stétta. Og Trump talar inn í það tómarúm með loforðum um atvinnuskapandi aðgerðir og endurbætur á fúnum innviðum samfélagsins. Nú er að sjá hvort miljarðamæringurinn og bis- nesskallinn Trump snúi auðmagni aftur til hinna gleymdu stétta. Eða hvort hann fellur í gryfju spillingar- pólitíkurinnar. Verst væri ef hann leiðist út í fasíska vitleysu. Lærdómurinn sem við getum hins vegar dregið af þessum kosningaúr- slitum er að hlusta, að hlusta á allar raddir án þess að dæma þær úr leik of snemma. Samtalið verður að hefjast þar, á hlustun. Ég fagna kjöri Trumps. Hlýnun jarðar er langdregin og þreyt-andi aðferð við að tortíma veröldinni, loksins er kominn fram maður sem vill bara drífa þetta hel- víti af með kjarnorkusprengjum. Og þótt hann geri það ekki er stefna hans í loftslagsmálum í það minnsta almennileg helstefna og ætti að stytta þetta langdregna kvalræði. Kjör Trumps merkir það sama og Brexit. Hvað kemur viðskiptamall fjármálalífsins almenningi við? Hver er stefna Evrópusambandsins í lofts- lagsmálum? Loðmullulegt hálfkák sem sambandið meinar ekkert með, enda gerir það tollasamninga svo flytja megi matvæli sem lengst með flugvélum. Ekki að almenningur hafi áhyggjur af loftslagsmálum en hann er leiður á hálfvelgju, leiður á hræsni stjórnmálanna, leiður á hjali sem dylur þversagnir sínar með helgi- slepju, drullumallar í tungumálinu í stað þess að orða veruleikann. Menntamenn orna sér nú við frasa um hvað almenningur sé heimskur að kjósa ekki það sama og þeir. Þannig klofning má sjá á öllum sviðum. Menntastéttirnar eiga enga samleið með almenningi, sem er ekki svo skyni skroppinn að sjá það ekki, og forherðist, ótrúlegt nokk, við hverja vandlætingargusu. Fjármálakerfið er lokaður heimur sem kemur fólkinu ekkert við. Hinir ríku verða ríkari og hinir fátæku fátækari svo bilið er orðið ævintýralegt – gjáin í hug- myndaheiminum er engu minni. Demókratísku öflin hafa misst tengslin við veruleikann en tengst fjármálaöflunum. Í huga þeirra er „alþýða“ bara óhlutbundin innistæða í tékkahefti stjórnmálafrasanna, ekki raunverulegt fólk sem býr við raunverulegar aðstæður. Þegar svo er komið þýðir ekkert fyrir neinn að upphefja sig á kostnað almenn- ings. Hin blákalda staðreynd er sú að bandarískur almenningur vissi nákvæmlega hvernig Trump er en kaus hann bara samt. Fyrst heilagt hjónaband fjármagnsafla og stjórn- mála var það eina sem var í boði var eins gott að hjónaleysin kæmu fram í einum og sama manninum, eins gott að fá almennilegt glapræði. Trump kemur beint úr raunveru- leikasjónvarpi. Hann er performer, hann er uppákoma, sýning, inni- haldslaust skemmtiatriði. Hann er óviðeigandi stormur úr tebolla bandarískra stjórnmála. Hann gengur fram með ósvífni og yfirgengilegu bulli, í andstöðu við sífrandi póli- tískan rétttrúnað. Sjálfumgleði hans og hroki eru án dularklæða. Allt sem sagt er gegn honum verður honum að meðbyr. Hann lýgur blákalt, ekki með undirferli, dregur ekki dul á hatur sitt og heift, múslimafóbíu, kvenhatur, rasisma – það er í sjálfu sér nóg fyrir einn kjósanda að vilja fá að vera pínu- lítið ánægður með menningarlega arfleifð sína án þess að vera sakaður um svívirðu. Fólk kaus óðagot og uppnám í stað seigfljótandi siglingar að feigðarósi. Þetta á að vera meinholl áminn- ing. Heimurinn er á eins kolrangri siglingu og hugsast getur. Það ber að fagna hverju skeri sem steytt er harkalega á. Lái mér galskapinn hver sem vill. Ég er lafhræddur, hjarta mitt skelfur í myrkrinu. Áfram, Trump! Sú skýring að ómenntaðir og fátækir sveitalubbar hafi kosið Trump í bunkum en hugsandi, menntað og vel gefið fólk hafi kosið Clinton, heldur tæpast vatni. Það má meðal annars sjá með því að skoða tölur um fylgi þeirra tveggja í mis- munandi hópum. Það var til dæmis heill hellingur af hvítum menntuð- um konum sem kaus Trump,“ segir Hafrún, sem skyggnist inn í hugarfar Trumps og hvernig hann náði kjöri. „Skýringarnar á því af hverju þetta fór eins og það fór eru líklega flóknar og margvíslegar. Ein getur verið sú að Trump spilaði inn á tilfinningar sem hafa að öllu jöfnu sterk áhrif á hegðun. Trump spilaði inn á ótta og reiði. Ótta við ákveðna hópa eins og múslima og Mexíkóa og reiði út í einhver fjarlæg og spillt stjórnvöld. Auðvelt er að gera Hillary Clinton að andliti þessara stjórnvalda. Þegar fólk er óttaslegið er það líklegt til þess að gera ýmislegt til að koma í veg fyrir að það sem það óttast verði að veruleika. Ætli það sé ekki þannig að óttaslegið fólk sé líklegra en glatt fólk til að mæta á kjörstað. Fullt af fólki óttaðist að Trump myndi bera sigur úr býtum en allar skoðana- kannanir sögðu þó að það væri harla ólíklegt að það myndi gerast. Mögu- lega hafa því fréttir af skoðanakönn- unum dregið úr ótta, og því dregið úr hvötum þeirra sem óttuðust Trump til að mæta á kjörstað. Það að Trump hafi alið á ótta og reiði eru þó tæpast einu skýringarnar. Mögulega er kyn- þáttahatur og kvenfyrirlitning meiri í Bandaríkjunum en við héldum og svo eru eflaust einhverjar skýringar á þessu sem við höfum enn ekki komið auga á. Allavega þá er gósen- tíð í vændum hjá rannsakendum, t.d. félagssálfræðingum sem munu leit- ast við að skýra hvað í ósköpunum gerðist. Það verður ekki alveg ein- falt því mannlegt atferli er oft flókið fyrirbæri. Sigríður Þorgeirsdóttir prófessor í heimspeki Hafrún Kristjánsdóttir sálfræðingur Hermann Stefánsson rithöfundur Hvað er í kollinum á Trump og hvað er í kolli banda- rískra kjósenda? Sérfræðingar og listamenn rýna í kosningaúrslitin og nýjan forseta Bandaríkjanna. Rýnt í Trump Trump spilaði inn á Tilfinningar sem hafa að öllu jöfnu sTerk áhrif á hegðun. inn á óTTa og reiði. Hafrún Kristjánsdóttir Trump hlusTaði á þessar sTéTTir og gerði ekki grín að fólki á maTarmiðum og aTvinnuleysis- bóTum meðan hann hæddisT að föTl- uðum, úTlendingum og konum og brauT allar reglur „poliT- ical correcTness“. Sigríður Þorgeirsdóttir kviTTar upp á kyn- ferðislegT ofbeldi og mismunun sem maður vonaðasT Til að heyrði sögunni Til. Styrmir Sigurðsson hann er performer, hann er uppákoma, sýning, innihalds- lausT skemmTiaTriði. hann er óviðeigandi sTormur úr Tebolla bandarískra sTjórnmála. Hermann Stefánsson með óheflaðri fram- komu og einföldum skilaboðum TóksT Trump að höfða Til þessara hópa; hann Talaði um óTTa þeirra og brosTnar vænTingar á þeirra eigin Tungumáli. Jón Gunnar Bernburg Trump er einföld sjónvarpsfígúra – ógeðsleg og haT- ursfull vissulega, en samT fígúra – og bandaríkin eru dægurmenningar- samfélag. Kött Grá Pjé Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is 1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r30 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.