Fréttablaðið - 12.11.2016, Blaðsíða 42
Hópsnapp-
ið Íslendingar
í útlöndum (is-
lendingaruti á
Snapchat) nýtur
töluverðra vin-
sælda en þar
skiptast Íslend-
ingar, sem eru
búsettir erlend-
is, á að sýna
áhugasömum
fylgjendum brot
úr lífi sínu er-
lendis.
Upphafsmaður þess er Edda Ósk
Ólafsdóttir sem hefur búið í Kan-
ada síðan 2009. Sjálf var hún búin
að fylgjast með hópsnappinu Ís-
lensk vefhönnun um tíma þar sem
fyrirtæki í vefbransanum skiptust
á að snappa um ýmislegt sem teng-
ist vefhönnun. Edda Ósk er meðlim-
ur í Facebook-hópnum Íslendingar
í útlöndum og einn daginn á leið til
vinnu datt henni í hug að það gæti
verið gaman ef meðlimir hópsins
myndu skiptast á að sýna frá þeim
borgum þar sem þeir búa.
„Ég deildi hug-
myndinni og fékk
strax mjög góðar
undir tektir meðal
meðlima hóps-
ins.“
Fyrirkomu-
lagið er einfalt
að hennar sögn.
„Þeir sem vilja
taka þátt skrá nafn
og staðsetningu í sérstakt Excel-
skjal. Hver fær snappið í þrjá daga
og sýnir frá lífi sínu í borginni eða
þar sem viðkomandi býr.“
Viðfangsefni hvers og eins er
misjafnt að sögn Eddu. „Sumir ein-
blína mest á daglegt líf, sýna frá
skóla eða vinnu og þeim stöðum sem
heimsóttir eru reglulega. Aðrir sýna
meira frá ólíkum stöðum í borginni
og gera sér jafnvel ferð til að sýna
eitthvað sérstakt. Svo er hægt að
spyrja viðkomandi snappara ýmissa
spurninga. Þannig hafa þeir margir
fengið spurningar um hvernig sé að
búa á viðkomandi stað, hvort flókið
sé að flytja þangað, hvernig háttað
sé með nám og störf og fleira.“
Íslendingar eru vÍða
Snappið byrjaði í vor og spurðist
hratt út meðal meðlima Facebook-
hópsins og fjölda annarra reyndar
líka. „Strax frá byrjun voru nokk-
ur hundruð manns að fylgjast með
en áhorfendafjöldinn hefur rúmlega
tvöfaldast síðan. Í dag eru snöppin
að fá um 2.000 áhorf.“
Hún segir mjög gaman að fá inn-
sýn í líf annarra Íslendinga sem búa
erlendis, hvort sem það er í Evrópu
eða á meira framandi stöðum eins
og Asíu eða Afríku. „Við höfum
verið með snappara úti um allan
heim því Íslendingar leynast víða.
Sem dæmi má nefna Kína, Mós-
ambík, Ungverjaland, Japan, Kan-
ada, Níkaragva, Singapúr, Möltu og
hinar ýmsu borgir í Bandaríkjunum
og Evrópu.“
Og færri komast að en vilja að
sögn Eddu. „Það hefur verið full-
bókað frá byrjun og alveg fram í
miðjan janúar á næsta ári. Það lítur
út fyrir áhugaverða dagskrá á næst-
unni þar sem fólk er búið að skrá sig
frá Suður-Afríku, Óman, Tansaníu
og Taílandi.“
Hægt er að fylgjast með á Snap-
chat undir islendingaruti.
Nokkrir snapparar sem tóku þátt:
Karen ÓsK KristÍnardÓttir,
nanjing Í KÍna
Það er svo margt fallegt að sjá í
Nanjing þar sem við búum. Ég og
Eyþór, maðurinn minn, þurftum
að velja á milli staða til að fara á og
völdum þá sem heilluðu okkur upp
úr skónum þegar við skoðuðum þá
sjálf fyrst. Þannig fórum við á vin-
sæla túristastaði sem innihéldu t.d.
hof, fjallgöngu, siglingu, ljósadýrð í
miðborginni og góðan mat svo eitt-
hvað sé nefnt. Áhugasamir geta
fylgt okkur á snapchat (karenoskk
og eythor90bjo).
KristÍn ÞorvaldsdÓttir,
Managua Í nÍKaragva
Þar sem enga vinnu er að fá hér
og landið langt í burtu ákvað ég að
sýna meira frá mínu persónulega
lífi. Ég var hins vegar frekar slöpp
á fyrsta degi þannig að ég var bara
heima og kynnti sjálfa mig, sýndi
húsið og nærumhverfið og sagði
sögur frá Níkaragva. Daginn eftir
tók ég rúnt um hverfið mitt sem
er frekar fínt en þetta eru mínir
heimahagar. Á lokadeginum fór ég
smá landsbyggðarrúnt vegna vinn-
unnar norður í land.
dagný sylvÍa sævarsdÓttir,
sønderborg Í danMörKu
Ég vildi hafa snappið óhefðbund-
ið og skemmtilegt. Því fékk ég vin-
konu mína, Ágústu Ásbjörnsdóttur,
í lið með mér. Við klæddum okkur
upp í ýmis dulargervi, sýndum
Sønder borg frá sjúkrahúsþakinu
sem er kolólöglegt, gerðum grín að
ást Íslendinga á H&M og stunduðum
sjóræningja- og hafmeyjusjósund.
Þetta krafðist ekki mikils undirbún-
ings en talsverðs tíma þar sem við
eyddum næstum heilli helgi í þetta
sprell. Ég reyndi að flétta líf okkar
inn í þetta, t.d. atvinnu, heimilis-
hagi, afþreyingu og sögu bæjarins.
Þannig fórum við á
vinsæla túrista-
staði sem innihéldu t.d.
hof, fjallgöngu, siglingu,
ljósadýrð í miðborginni
og góðan mat.
Karen Ósk Kristínardóttir
Dagný Sylvía er í Danmörku.Karen Ósk og Eyþór eru í Kína. Kristín Þorvaldsdóttir er í Níkaragva.
Ferðast uM heiMinn Með sÍMa
Íslendingar búsettir um allan heim hafa undanfarna mánuði sýnt frá lífi sínu á hópsnappinu Íslendingar í útlöndum. Færri
komast að en vilja en á næstunni verður m.a. sýnt frá lífi Íslendinga í Suður-Afríku, Óman, Tansaníu og Taílandi.
Þar sem enga
vinnu er að fá hér
og landið langt í burtu
ákvað ég að sýna meira
frá mínu persónulega lífi.
Kristín Þorvaldsdóttir
Ég vildi hafa
snappið óhefð-
bundið. Því fékk ég vin-
konu mína, Ágústu
Ásbjörnsdóttur í lið með
mér.
Dagný Sylvía Sævarsdóttir
Edda Ósk fékk
hugmyndina góðu.
1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r6 F ó L k ∙ k y n n i n G A r b L A ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G A r b L A ð ∙ h e L G i n