Fréttablaðið - 12.11.2016, Blaðsíða 20
A-riðill
Frakkaland 2 – 1 Svíþjóð
C-riðill
San Marínó 0 – 8 Þýskaland
N-Írland 4 –0 Aserbaídsjan
Tékkland 2 –1 Noregur
E-riðill
Armenía 3 – 2 Svartfjallal.
Danmörk 4 –1 Kasakstan
Rúmenía 0 – 3 Pólland
F-riðill
England 3 – 0 Skotland
Malta 0 – 1 Slóvenía
Slóvakía 4 –0 Litháen
1 2 . n ó v E m b E r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r20 s p o r t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
króAtíA – ísLAnD mAksimir-LEikvAnGinUm, zAGrEb í DAG kL. 17.00
Henry Birgir
Gunnarsson
henry@frettabladid.is
FótboLti „Það eru blendnar tilfinn-
ingar að koma hingað. Ég fór inn í
búningsklefann áðan og þá komu
minningarnar allar til baka. Menn
voru mjög niðurlútir hér fyrir þrem-
ur árum,“ segir landsliðsfyrirliðinn
Aron Einar Gunnarsson.
Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland
spilar á Maksimir-vellinum síðan
liðið tapaði hér 2-0 í umspili um
laust sæti á HM. Það voru því miklar
tilfinningar í gangi hjá þeim sem
spiluðu þann leik er þeir komu
þangað aftur.
Var vendipunktur fyrir liðið
„Þetta eru samt ágætis minningar
því þessi leikur var ákveðinn vendi-
punktur fyrir landsliðið. Við höfum
eiginlega ekki litið til baka síðan þá.
Menn settu sér skýr markmið og
náðu þeim. Kannski var þessi leikur
smá spark í rassinn. Vonandi muna
menn eftir því þannig. Við eigum
harma að hefna en við erum samt
ekki í neinum hefndarhug. Þetta er
ný keppni og menn eru staðráðnir
í því að ná einhverju út úr þessum
leik.“
Bæði Ísland og Króatía eru með
sjö stig á toppi riðilsins og það er
því ansi mikið undir í þessum leik.
Allir að stela stigum
„Við töluðum um það fyrir þessa
undankeppni að hvert stig og hvert
mark myndi skipta máli. Þetta er
það jafn riðill. Það eru allir að stela
stigum hér og þar. Þetta verður
hörkuleikur og við verðum að vera á
tánum í 90 mínútur því þessir gæjar
kunna að refsa. Það er klárt mál og
þeir gerðu það við okkur fyrir þrem
árum. Þeir eru pottþétt til í að gera
það aftur ef þeir fá tækifæri til þess.
Við verðum að vera einbeittir og
einbeitingin þarf að vera til staðar
allan leikinn,“ segir landsliðsfyrir-
liðinn en hvað þarf að gera til þess
að pirra Króatana og brjóta þá
niður?
„Halda þeim í skefjum. Þetta
er mjög einbeitt lið. Það eru ekki
margir leikmenn í þessu liði sem
missa hausinn. Ef við náum að
stríða þeim og halda okkur stöðug-
leika í vörninni þá fara þeir vonandi
aðeins að pirrast. Það er eitthvað
sem við gætum þá nýtt okkur. Við
þurfum líka að halda boltanum vel
og þar getum við enn bætt okkur þó
að við höfum gert vel í þeirri deild
gegn Tyrkjunum.“
Barátta við Modric og Rakitic
Aron verður væntanlega í skemmti-
legri baráttu á miðjuna við þá Luka
Modric og Ivan Rakitic sem spila
með Real Madrid og Barcelona.
Aron segir að það verði gaman að
sparka aðeins í þá.
„Maður verður að láta finna fyrir
sér. Við komum til með að sýna
þeim virðingu en við munum ekki
gefa þeim nokkurn skapaðan hlut,“
segir Aron Einar en hann getur ekki
látið öskrin í króatískum áhorf-
endum espa sig upp því það verða
engir áhorfendur á leiknum.
Verður svolítið spes
„Þetta verður svolítið spes. Stundum
nýtir maður stemninguna til að
lyfta sjálfum sér upp en við verðum
að gera það á annan hátt í þessum
leik. Það verður að koma innan frá.
Menn þurfa að mótívera sjálfan
sig eins og þeir geta best. Þetta á
að vera kostur fyrir okkur því þeir
eru vanir sínum blóðheitu stuðn-
ingsmönnum. Vonandi munu þeir
sakna þeirra meira en við gerum.“
Þótt það séu óvenju mikil meiðsli
í herbúðum íslenska liðsins þá hefur
fyrirliðinn engar áhyggjur af því að
liðið nái ekki að spila sinn leik.
„Ég held við munum ráða vel við
þetta. Birkir leysti mig af á miðjunni
í síðasta leik og Elmar kom út á kant.
Það vita allir í þessum hópi til hvers
er ætlast af þeim. Þó að menn spili
nýjar stöður þá höfum við farið svo
vel yfir taktíkina að menn vita hvað
á að gera. Við tæklum þetta vonandi
auðveldlega.“
Þessir gæjar kunna að refsa
Margir leikmenn íslenska landsliðsins fá í dag tækifæri til að hefna fyrir tapið á Maksimir-leikvanginum
fyrir þremur árum í umspili um sæti á HM. Einn af þeim er landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson.
Æft í grenjandi rigningu Strákarnir okkar mættu til Zagreb í Króatíu í gær og æfðu síðdegis á Maksimir-leikvanginum. Á þeim velli missti Ísland af tækifærinu til að komast
í úrslitakeppni HM 2014 í Brasilíu. Okkar menn geta hefnt þeirra ófara og tekið forystu í I-riðli undankeppni HM 2018 í dag. FRéttABlAðIð/EPA
Laugardagur
09.00 Nedbank Challenge Golfstöð
15.50 F1: tímataka, Brasilía Sport 4
16.20 Keflavík - Grindavík Sport 5
17.00 tyrkland - Kósóvó Sport
17.00 Austurríki - Írland Sport 3
17.00 Georgía - Moldavía Bravó
18.00 OHl Classic Golfstöðin
19.45 Úkraína - Finnland Sport
19.45 Spánn - Makedónía Sport 3
19.45 Wales - Serbía Sport 2
21.45 HM Markasyrpa Sport 2
03.00 UFC: Alvarez/McGregor Sport
Domino’s-deild kvenna
15.30 Njarðvík - Snæfell Njarðvík
16.30 Keflavík - Grindavík Keflavík
16.30 Skallagr. - Stjarnan Borgarnes
17.00 Valur - Haukar Valshöllin
Olís-deild kvenna
13.30 ÍBV - Valur Vestmannae.
13.30 Stjarnan - Fram Mýrin
16.00 Haukar - Fylkir Ásvellir
Haukar - ÍR 93-82
Stigahæstir: Sherrod Wright 31/10 frák./6
stoðs./7 stolnir, Haukur Óskarsson 22,
Kristján Leifur Sverrisson 12, Finnur Atli
Magnússon 11, Emil Barja 7/9 frákö./7
stoðs. - Matthew Hunter 24/8 frák./5
stoðs., Sveinbjörn Claessen 20, Sæþór Krist-
jánsson 13, Hákon Örn Hjálmarsson 12
Þór Þorl. - Stjarnan 77-94
Stigahæstir: Tobin Carberry 22/11 frák.,
Maciej Stanislav Baginski 14, Halldór Garðar
Hermannsson 14, Emil Karel Einarsson
7 - Hlynur Elías Bæringsson 24/10 frák./5
stoðs., Arnþór Freyr Guðmundsson 20,
Justin Shouse 17/6 stoðs., Tómas Heiðar
Tómasson 16, Devon Andre Austin 11/7
fráköst. Þórsliðið var 28-12 yfir eftir fyrsta
leikhlutann en Stjörnunmenn keyrðu yfir
Þórsara í síðustu þremur leikhlutunum.
Efri
Stjarnan 12
KR 10
Grindavík 8
Tindastóll 8
Þór Þorl. 8
Keflavík 6
Neðri
Haukar 4
ÍR 4
Njarðvík 4
Skallagrímur 4
Þór Ak. 4
Snæfell 0
Nýjast
Domino’s-deild karla
Sunnudagur
09.00 Nedbank Challenge Golfstöð
12.30 Fed Cup í tennis Sport 2
15.30 Formúla 1 í Brasilíu Sport
17.00 lúxemborg - Holland Sport 3
17.00 Búlgaría - H-Rússland Sport 5
17.00 Sviss - Færeyjar Sport 4
18.00 OHl Classic Golfstöðin
19.45 Belgía - Eistland Sport 2
19.45 Portúgal - lettland Sport
19.45 Grikkland - Bosnía Sport 3
21.45 NFl: Steelers-Cowboys Sport 4
21.45 HM Markasyrpa Sport
Olís-deild karla
16.00 Afturelding - Haukar Varmá
16.00 Grótta - Akureyri Seltjarnarn.
Olís-deild kvenna
16.00 Selfoss - Grótta Selfoss
Feluleikur með Modric
Ante Cacic, landsliðsþjálfari Kró-
atíu, neitaði að staðfesta á blaða-
mannafundi í gær að Luka Modric,
miðjumaður Real Madrid, myndi
verða í byrjunarliði Króata í kvöld.
Króatískir blaðamenn segja að það
sé pottþétt að Modric byrji leikinn
og hlæja að þessum feluleik lands-
liðsþjálfarans.
Miðjumaður Barcelona, Ivan
Rak itic, verður klárlega í byrjunar-
liðinu og hann fór fögrum orðum
um íslenska liðið á blaðamanna-
fundi á Maksimir-vellinum í gær.
„Þetta verður erfitt og við
þurfum að eiga okkar besta leik.
Liðsheildin er helsti styrkleiki
íslenska liðsins. Íslenska liðið er
mjög vel skipulagt og leikmenn
þess agaðir. Það verður erfitt að
brjóta þá niður,“ sagði Rakitic og
bætti við að króatíska liðið hefði
legið yfir íslenska liðinu síðustu
daga.
„Við vitum allt um íslenska liðið.
Þekkjum leik þess fullkomlega og
þurfum að nýta okkur veikleikana í
leik liðsins.“
Vonandi munu þeir
sakna þeirra meira
en við gerum.
Aron Einar Gunnarsson
Sport