Fréttablaðið - 12.11.2016, Blaðsíða 102
Meðan ég tóri þá vakna ég glöð ef ég get eitthvað farið að gera. Það er mitt líf og tilvera,“ segir
myndlistarkonan Sigrún Guðjóns-
dóttir – Rúna. Hún verður níræð
eftir nokkra daga og málar enn
daglega – mest á morgnana. Mál-
þing um líf hennar og starf verður
í Gerðubergi í dag og hefst klukkan
13. Að því loknu, eða klukkan 16,
verður svo opnuð sýning þar á verk-
um hennar sem eru öll frá síðustu
árum, flest frá 2015 og 16. Glóðvolg!
Við Rúna höfum tyllt okkur í
sófa við sýningarsalinn til að skrafa
saman. Hún kveðst búa sjálfstætt
en í góðri nábúð því Þorgrímur
sonur hennar sé í sama húsi. „Ég er
í gömlu vinnustofunni okkar Gests,
lét bara innrétta hana sem íbúð og
hef vinnuborðið mitt þar, þetta er
opið rými.“ Hér er hún að tala um
Gest Þorgrímsson, eiginmann sinn
sem lést árið 2003. Hann var lista-
maður líka.
Rúna er Hafnfirðingur þó um
tíma hafi þau Gestur búið við Laug-
arásveginn í Reykjavík. „Ég átti mín
uppvaxtarár í Hafnarfirði, pabbi var
skólastjóri barnaskólans við Lækinn
og ég var kölluð Rúna skóló. Það var
öllu snúið upp í óið á tímabili. Þegar
strætó kom þá þótti það svo sniðugt!“
Hún kveðst þakka honum Eiríki,
vini sínum, Smith að hún hafi farið
að ástunda listina. „Við Eiríkur
vorum bekkjarfélagar og hann
nennti ekkert voðalega mikið að
eiga við skólafögin, hann bara
teiknaði – sat og teiknaði og við
skólasystkinin litum gríðarlega upp
til hans, hann var strax svo flinkur
og afkastamikill. Pabbi fór að kaupa
handa honum liti og þá gat hann
ekki skilið mig útundan því ég var
alltaf teiknandi líka.“
Það eru akrýllitir sem Sigrún
notar núna og svolítið pastel eða
þurrkrít með og hún málar allt á
handgerðan pappír. „Hann gefur
myndunum svo mikið líf,“ útskýrir
hún. „Þegar við Gestur komum
heim frá námi í Kaupmannahöfn þá
settum við á fót leirkerasmiðju. Ég
sakna alltaf leirsins og þaðan held
ég að dálæti mitt á þessum grófa
pappír sé kominn, það gerir efnis-
kenndin.“
Rúna notar óspart málmliti með
öðrum, gull og silfur. „Það eru svona
þrjú ár síðan ég byrjaði á því,“ segir
hún og kveðst enn vera í tilrauna-
mennsku. „Ég get ekki sest niður og
málað í dag alveg eins og ég málaði
í gær,“ segir hún kankvís. „Einhver
hreyfing verður að vera, annars gæti
ég sleppt þessu.“
Þau Rúna og Gestur kynntust í
Myndlista- og handíðaskólanum
og fóru saman út til Kaupmanna-
hafnar 1946 til að læra meira. „Ég
var komin með kennararéttindi 18
ára og vann mér inn fyrir náminu
með kennslu.“
Rúna ber aldurinn vel. „Maður
má þakka fyrir að hafa kollinn í lagi
og heilsuna yfirleitt. Á meðan getur
maður notið lífsins,“ segir hún og
hvetur alla til að lesa sem mest. „Að
lesa góðar skáldsögur og ljóð veitir
svo mikla gleði og opnar sýn inn í
svo margt. Augun mín eru reyndar
orðin dálítið léleg en þó ég sjái ekki
allt get ég bara í eyðurnar!“
Vakna glöð ef ég get eitthvað farið að gera
Það er reisn yfir listakonunni Rúnu þar sem hún gengur um sal Gerðubergs og lítur yfir verkin sem
sýning verður opnuð á í dag. Fyrst er þar málþing um ævi hennar og störf undir yfirskriftinni Línudans.
„Ég var kölluð Rúna skóló,“ segir skólastjóradóttirin Rúna. FRÉttablaðið/Vilhelm
myndirnar eru allar málaðar á handgerðan, japanskan pappír.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
ÉG Get ekki sest
niðuR oG máLað í daG
aLveG eins oG ÉG máLaði í GæR.
Leikhús
Who’s the Daddy!
HHHHH
Tjarnarbíó
handrit: Pörupiltar
leikarar: Sólveig Guðmundsdóttir,
Alexía Björg Jóhannesdóttir og María
Pálsdóttir
Undanfarin ár hafa Pörupiltarnir
staðið að kynfræðslufyrirlestrum í
Borgarleikhúsinu og eru núna komn-
ir aftur á stjá með sýninguna Who’s
the Daddy! í Tjarnarbíói, frumsýnd
fyrir um viku síðan. Þær Sólveig Guð-
mundsdóttir, Alexía Björg Jóhannes-
dóttir og María Pálsdóttir koma þar
fram sem sín hliðarsjálf: Dóri Maack,
Nonni Bö og Hemmi Gunn, reyndar
ekki sjónvarpsmaðurinn frægi.
Drag er gífurlega fjölbreytt form
með flókna sögu, reglurnar eru fáar
og frelsið til tilrauna er mikið. En stór
hluti klæðaskipta sem sviðslistaform
er að gagnrýna samfélagið, þá sér-
staklega gagnkynhneigða karllæga
regluverkið sem myndar undirstöðu
þess. Drag er í eðli sínu rammpólitískt
og svolítið hættulegt. Fólk klæðir sig
bókstaflega í einkennisbúning gagn-
stæða og yfirleitt gagnkynhneigða
kynsins til að sýna fram á hversu súrr-
ealísk veröldin getur verið og hún er
ansi súr um þessar mundir.
Sólveig er hæfileikarík leikkona og
umbreyting hennar í Dóra Maack er
sjón að sjá. Taktarnir, talsmátinn og
líkamsbeitingin eru vel útfærð en
undir niðri er sáralítið innihald. Hún
ber sýninguna á baki sér með nokkr-
um innskotum frá Alexíu og Maríu,
sem klæðast sínum persónum sömu-
leiðis ágætlega en engin dýpt er á
bak við þeirra framsetningu heldur.
Þetta eru skrípamyndir fremur en vel
útfært drag.
Enginn er skrifaður fyrir leik-
stjórninni né umgjörð sýningar-
innar almennt s.s. ljósum, hljóði né
búningum. Sviðsmyndin er nánast
engin fyrir utan skrifborð með far-
tölvu og stórum skjá aftast á svið-
inu sem er notuð fyrir PowerPoint
sýningu Dóra. Who’s the Daddy! er
auglýst sem uppistand en er í raun
fyrirlestur með leikrænu yfirbragði
og útkoman er einhvers konar bragð-
laus stílsamsuða.
Hugmyndum er hent fram og
nokkrir góðir brandarar hitta í mark,
þá sérstaklega sumar glærurnar í
PowerPoint sýningu Dóra sem eru
útbíaðar í stafsetningarvillum og
skondnum ranghugmyndum um
uppeldi og tilhugalífið. Vandamálið
er að þessar karlkyns staðalímyndir
eru hvorki hættulegar, áhugverðar
eða jafnvel þekkjanlegar úr íslensku
samfélagi heldur frekar einhvers
konar gríntilbúningur sem er ágætur
til síns brúks í stuttum atriðum en
ekki efni í heila sýningu.
Dragsýningar eiga að ögra, vekja
áhorfendur til umhugsunar um sam-
félagið og láta þá skellihlæja á sama
tíma. Who’s the Daddy! dubbar sig
upp sem dragsýning en nær aldrei
að sýna rétt andlit formsins né vera
nægilega vel úthugsuð til að hitta í
mark. Sigríður Jónsdóttir
NiðursTaða: Hvorki fugl né fiskur,
fyrirlestur né dragsýning.
Pörupiltar á villigötum
daGskRá máLÞinGsins
um Rúnu
Vigdís Finnbogadóttir setur
málþingið klukkan 13 í dag. Svo
verður fjallað um hina ýmsu
þætti á listferli Rúnu. Guðný
magnúsdóttir talar um leirlistina,
Kristín Ragna Gunnarsdóttir
um myndskreytingar, Valgerður
bergsdóttir um störf Rúnu að fé-
lagsmálum og aðalsteinn ingólfs-
son um málaralistina.
málverkasýningin verður
opnuð klukkan 16. hún mun
standa til 5. febrúar 2017.
1 2 . N ó v e m b e r 2 0 1 6 L a u G a r D a G u r54 m e N N i N G ∙ F r É T T a b L a ð i ð
menning