Fréttablaðið - 12.11.2016, Blaðsíða 86
Eddie Alvarez og Conor McGregor hafa verið eins og hundur og köttur þegar þeir
mætast og það verður líklega engin breyting á því í búrinu.
Írska
peningavélin
Conor
McGregor
Aðfaranótt sunnudagsins
munu Conor McGreg or
og Eddie Alvarez eigast
við í aðalbardaga kvölds-
ins í sögulegri viðureign
en þetta bardagakvöld er
það fyrsta sem UFC-sam-
tökin halda í New York-
ríki. Einnig gæti Írinn
kjaftfori staðið uppi með
tvö meistarabelti eftir
bardagann. Hér verður
leið hans að þessum
tímamótum rakin.
Conor Anthony McGregor er einungis 28 ára og strax orðinn lang þekktasti bardagamaður í heimi en frægð hans nær langt út fyrir heim
bardagaíþrótta. Hann hefur verið
duglegur við að birtast á myndum
með frægu fólki og verið tíður gestur
í spjallþáttum en hann mætir til að
mynda iðulega í þáttinn hans Conans
O’Brien fyrir hvern bardaga. Conor
er að sama skapi launahæsti bar
dagamaðurinn en það er ekki ýkja
langt síðan hann átti varla fyrir
leigunni í heimaborg sinni, Dublin.
Frá pípulagningum til „pay per view“
Árið 2006 var Conor kominn með tölu
verða reynslu í boxi og sparkboxi en
var á sama tíma að vinna fyrir sér sem
lærlingur í pípulagningum. Sama ár hitti
hann Tom Egan, en hann átti síðar eftir
að verða fyrsti Írinn til að komast í UFC
deildina og þeir fóru að æfa MMA saman.
Conor vann sinn fyrsta og eina áhuga
mannabardaga þegar hann var átján ára og
skrifaði í framhaldi undir samning hjá hinni
írsku Cage of Truth MMAdeild og fór að
mæta á æfingar í Straight Blast Gym hjá John
Kavanagh – en hann er enn yfirþjálfari hans og
Gunnars okkar Nelson í dag.
Til að byrja með var ferill Conors upp og
niður, en hann keppti nánast til skiptis í fjaður
og léttvigt. Árið 2011 var hann með fjóra sigra
og tvö töp – en það ár fór ferill Írans fyrst af stað
fyrir alvöru. Þessi ár vann hann átta bardaga í
röð, þar af tvo titilbardaga í bæði fjaður og létt
vigt – og varð þar með fyrsti evrópski bardaga
maðurinn til að ná því takmarki að vera með tvö
belti á sama tíma. Í framhaldi af því fékk hann
samning við UFCbardagasamtökin.
Conor-lestin leggur af stað
Conor kom með látum inn í UFC deildina. Fyrsti bar
daginn hans var gegn Marcus Brimage – ekkert sérlega
stórt nafn en hafði þó verið þátttakandi í raunveru
leikaþættinum The Ultimate Fighter. Strax í vigtuninni
fengu aðdáendur vott af því við hverju var að búast af
Íranum kjaftfora en hann og Marcus Brimage óðu beint í
ýtingar og djöfulgang nýkomnir af vigtinni. Conor mætti
svo pollrólegur í hringinn kvöldið eftir en Brimage virtist bálreiður og svo
fór að Conor rotaði hann eftir um það bil mínútu í fyrstu lotu.
Sigurinn vakti strax athygli, bæði vegna persónuleika Conors sem skein
strax í gegn í fyrsta bardaga hans, hvernig hann notfærði sér sálfræðilega
þáttinn til að gera andstæðing sinn reiðan og síðan tæknilegt box þar
sem hann var mjög snöggur að finna opnun fyrir „uppercuttið“ sitt sem
plantaði Brimage meðvitundarlausum á strigann skömmu síðar.
Conor vann næstu fjóra bardaga gegn þeim Max Holloway, Diego
Brandao, Dustin Poirier og Dennis Siver og kláraði hann alla bardagana
nema gegn Holloway – en þess má geta að Conor sleit krossband
gegn Holloway og bardaginn fór í dómaraúrskurð. Þessi sigurhrina
varð til þess að Conor fékk tækifæri til að berjast við meistarann
José Aldo við litlar vinsældir annarra bardagamanna í fjaður
vigtinni, en margir þeirra vildu meina að Conor hefði einungis
fengið bardagann vegna þess að hann var að hala inn peninga
fyrir UFCbardagasamtökin en ekki vegna þess að hann hefði
sigrað nógu sterka andstæðinga.
Kvartanirnar náðu ekki að stöðva hjól UFCmaskínunnar en
flogið var með Conor og Aldo um allan heim til að kynna bar
dagann í langstærstu kynningarherferð samtakanna frá upphafi.
Dramað var í algjöru hámarki þar sem þeir McGregor og Aldo
rifust við hvert tækifæri og í nánast öllum heimsálfum og var
næstum komið til handalögmála oftar en einu sinn.
Síðan kom áfallið – Jose Aldo meiddist á rifbeini og bardag
anum sem allir biðu eftir var frestað. Í staðinn barðist McGregor
við Chad Mendes um interimbeltið, en það er eins konar vara
belti. Úr varð alveg stórkostlegur bardagi þar sem Conor rotaði
Chad Mendes í annarri lotu en þó ekki án vandræða – amer
íski glímukappinn Mendes náði að rífa Conor í gólfið tvisvar
og koma á hann nokkuð þungum höggum.
Loksins kom svo að því að leiðir hans og José Aldo lágu
saman og úr urðu ákveðin vonbrigði fyrir aðdáendur
íþróttarinnar en bardaginn entist aðeins í 13 sekúndur.
José Aldo virtist úr jafnvægi og át vinstri hönd frá Conor
eftir að hafa hlaupið inn í hann með höfuðið á undan
en Aldo hafði fram að þessu verið ósigraður í heil tíu
ár og ekki vanur að gera mistök. Mögulega var þetta
sálfræðihernaði Conors að þakka.
Færir sig upp á skaftið
Nú þegar Conor var loksins kominn með fjaðurvigtar
titilinn og orðinn heimsþekktur og vellauðugur fór
hann að einbeita sér að öðrum þyngdarflokkum. Hann
átti að berjast við Raphael Dos Anjos, sem þá var létt
vigtarmeistarinn, en hann meiddist og inn steig Nate
nokkur Diaz.
Nate Diaz og bróðir hans Nick Diaz eru um margt
svipaðir Conor í hegðun – Conor var stundum kall
aður „írski Diazbróðirinn“ fyrstu daga sína í UFC
samtökunum. Diazbræðurnir stunda það að koma
andstæðingnum úr jafnvægi fyrir bardagann með
því að rífa kjaft og ná fram pirringi og reiði. Úr
varð þvílík flugeldasýning af illdeilum fyrir bar
daga þeirra þar sem löngutangir voru ítrekað
sýndar og orðabókin tæmd af blótsyrðum.
Veðbankar vildu nánast allir meina að Conor
ætti að vinna bardagann en aðdáendur voru
margir á öðru máli og bentu á að það væri ekki
sjálfsagt – Nate Diaz er þekktur fyrir gott box,
langan faðm, ofurmannlegt þol og það að vera
alveg yfirgengilega mikill harðjaxl – en það virðist
bæði ómögulegt að rota hann og valda honum
nokkrum sársauka yfirhöfuð. Einnig var bardag
inn háður í veltivigt – tveimur þyngdarflokkum
fyrir ofan fjaðurvigtina sem Conor hafði barist í
fram að þessu.
Úr varð að Conor mætti æstur til leiks og átti góða
fyrsti lotu – en strax varð augljóst að hann var að
reyna að rota Nate í einu höggi og sem fyrst. Það er
mjög orkufrekur bardagastíll og strax í annarri lotu
var hann augljóslega dauðþreyttur og á sama tíma fór
Nate að lesa Conor vel, náði svo einum „gúmoren“ á
hökuna á Íranum og hengdi hann svo eftir að vank
aður Conor reyndi illa framkvæmda fellu.
En þetta tap stöðvaði ekki Conorlestina, hægði
ekki einu sinni á henni, og þeir fengu að kljást aftur,
enda skilaði fyrri bardaginn risa upphæðum í kassann
hjá UFC. Úr varð að önnur rimma þeirra sem varð einn
stærsti bardagi allra tíma og þar sigraði Conor eftir fimm
lotur í æsispennandi bardaga.
Nú erum við komin að bardaganum í kvöld – Conor
McGregor í krafti sjarmans, útgeislunarinnar og auðvitað
hæfileikans að hala inn peninga fyrir UFCsamtökin, en það
er það sem þetta snýst um á endanum, fékk sénsinn á létt
vigtarbeltinu. Hann á möguleika á að halda tveimur beltum
á sama tíma en það hefur aldrei verið gert áður. BJ Penn, fyrr
verandi léttvigtarmeistari, reyndi að ná þessu sama takmarki
árið 2009 en tapaði mjög illilega fyrir GSP, þáverandi veltivigtar
meistara. Conor er löngu búinn að skrá sig inn en hann gæti orðið
að goðsögn í kvöld og þaggað niður í öllum efasemdaröddunum.
Gælunafn:
The Notorious
aldur: 28 ára
14.07.88
Hæð: 177 cm
fæddist í: Dublin,
Írlandi
siGrar: 20
rotHöGG: 17
uppGjafartak: 1
dómaraúrskurður: 2
Stefán Þór
Hjartarson
stefanthor@frettabladid.is
1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r38 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
leikvangurinn