Fréttablaðið - 12.11.2016, Page 86

Fréttablaðið - 12.11.2016, Page 86
Eddie Alvarez og Conor McGregor hafa verið eins og hundur og köttur þegar þeir mætast og það verður líklega engin breyting á því í búrinu. Írska peningavélin Conor McGregor Aðfaranótt sunnudagsins munu Conor McGreg or og Eddie Alvarez eigast við í aðalbardaga kvölds- ins í sögulegri viðureign en þetta bardagakvöld er það fyrsta sem UFC-sam- tökin halda í New York- ríki. Einnig gæti Írinn kjaftfori staðið uppi með tvö meistarabelti eftir bardagann. Hér verður leið hans að þessum tímamótum rakin. Conor Anthony McGreg­or er einungis 28 ára og strax orðinn lang þekktasti bardagamaður í heimi en frægð hans nær langt út fyrir heim bardagaíþrótta. Hann hefur verið duglegur við að birtast á myndum með frægu fólki og verið tíður gestur í spjallþáttum en hann mætir til að mynda iðulega í þáttinn hans Conans O’Brien fyrir hvern bardaga. Conor er að sama skapi launahæsti bar­ dagamaðurinn en það er ekki ýkja langt síðan hann átti varla fyrir leigunni í heimaborg sinni, Dublin. Frá pípulagningum til „pay per view“ Árið 2006 var Conor kominn með tölu­ verða reynslu í boxi og sparkboxi en var á sama tíma að vinna fyrir sér sem lærlingur í pípulagningum. Sama ár hitti hann Tom Egan, en hann átti síðar eftir að verða fyrsti Írinn til að komast í UFC­ deildina og þeir fóru að æfa MMA saman. Conor vann sinn fyrsta og eina áhuga­ mannabardaga þegar hann var átján ára og skrifaði í framhaldi undir samning hjá hinni írsku Cage of Truth MMA­deild og fór að mæta á æfingar í Straight Blast Gym hjá John Kavanagh – en hann er enn yfirþjálfari hans og Gunnars okkar Nelson í dag. Til að byrja með var ferill Conors upp og niður, en hann keppti nánast til skiptis í fjaður­ og léttvigt. Árið 2011 var hann með fjóra sigra og tvö töp – en það ár fór ferill Írans fyrst af stað fyrir alvöru. Þessi ár vann hann átta bardaga í röð, þar af tvo titilbardaga í bæði fjaður­ og létt­ vigt – og varð þar með fyrsti evrópski bardaga­ maðurinn til að ná því takmarki að vera með tvö belti á sama tíma. Í framhaldi af því fékk hann samning við UFC­bardagasamtökin. Conor-lestin leggur af stað Conor kom með látum inn í UFC deildina. Fyrsti bar­ daginn hans var gegn Marcus Brimage – ekkert sérlega stórt nafn en hafði þó verið þátttakandi í raunveru­ leikaþættinum The Ultimate Fighter. Strax í vigtuninni fengu aðdáendur vott af því við hverju var að búast af Íranum kjaftfora en hann og Marcus Brimage óðu beint í ýtingar og djöfulgang nýkomnir af vigtinni. Conor mætti svo pollrólegur í hringinn kvöldið eftir en Brimage virtist bálreiður og svo fór að Conor rotaði hann eftir um það bil mínútu í fyrstu lotu. Sigurinn vakti strax athygli, bæði vegna persónuleika Conors sem skein strax í gegn í fyrsta bardaga hans, hvernig hann notfærði sér sálfræðilega þáttinn til að gera andstæðing sinn reiðan og síðan tæknilegt box þar sem hann var mjög snöggur að finna opnun fyrir „uppercuttið“ sitt sem plantaði Brimage meðvitundarlausum á strigann skömmu síðar. Conor vann næstu fjóra bardaga gegn þeim Max Holloway, Diego Brandao, Dustin Poirier og Dennis Siver og kláraði hann alla bardagana nema gegn Holloway – en þess má geta að Conor sleit krossband gegn Holloway og bardaginn fór í dómaraúrskurð. Þessi sigurhrina varð til þess að Conor fékk tækifæri til að berjast við meistarann José Aldo við litlar vinsældir annarra bardagamanna í fjaður­ vigtinni, en margir þeirra vildu meina að Conor hefði einungis fengið bardagann vegna þess að hann var að hala inn peninga fyrir UFC­bardagasamtökin en ekki vegna þess að hann hefði sigrað nógu sterka andstæðinga. Kvartanirnar náðu ekki að stöðva hjól UFC­maskínunnar en flogið var með Conor og Aldo um allan heim til að kynna bar­ dagann í langstærstu kynningarherferð samtakanna frá upphafi. Dramað var í algjöru hámarki þar sem þeir McGregor og Aldo rifust við hvert tækifæri og í nánast öllum heimsálfum og var næstum komið til handalögmála oftar en einu sinn. Síðan kom áfallið – Jose Aldo meiddist á rifbeini og bardag­ anum sem allir biðu eftir var frestað. Í staðinn barðist McGregor við Chad Mendes um interim­beltið, en það er eins konar vara­ belti. Úr varð alveg stórkostlegur bardagi þar sem Conor rotaði Chad Mendes í annarri lotu en þó ekki án vandræða – amer­ íski glímukappinn Mendes náði að rífa Conor í gólfið tvisvar og koma á hann nokkuð þungum höggum. Loksins kom svo að því að leiðir hans og José Aldo lágu saman og úr urðu ákveðin vonbrigði fyrir aðdáendur íþróttarinnar en bardaginn entist aðeins í 13 sekúndur. José Aldo virtist úr jafnvægi og át vinstri hönd frá Conor eftir að hafa hlaupið inn í hann með höfuðið á undan en Aldo hafði fram að þessu verið ósigraður í heil tíu ár og ekki vanur að gera mistök. Mögulega var þetta sálfræðihernaði Conors að þakka. Færir sig upp á skaftið Nú þegar Conor var loksins kominn með fjaðurvigtar­ titilinn og orðinn heimsþekktur og vellauðugur fór hann að einbeita sér að öðrum þyngdarflokkum. Hann átti að berjast við Raphael Dos Anjos, sem þá var létt­ vigtarmeistarinn, en hann meiddist og inn steig Nate nokkur Diaz. Nate Diaz og bróðir hans Nick Diaz eru um margt svipaðir Conor í hegðun – Conor var stundum kall­ aður „írski Diaz­bróðirinn“ fyrstu daga sína í UFC­ samtökunum. Diaz­bræðurnir stunda það að koma andstæðingnum úr jafnvægi fyrir bardagann með því að rífa kjaft og ná fram pirringi og reiði. Úr varð þvílík flugeldasýning af illdeilum fyrir bar­ daga þeirra þar sem löngutangir voru ítrekað sýndar og orðabókin tæmd af blótsyrðum. Veðbankar vildu nánast allir meina að Conor ætti að vinna bardagann en aðdáendur voru margir á öðru máli og bentu á að það væri ekki sjálfsagt – Nate Diaz er þekktur fyrir gott box, langan faðm, ofurmannlegt þol og það að vera alveg yfirgengilega mikill harðjaxl – en það virðist bæði ómögulegt að rota hann og valda honum nokkrum sársauka yfirhöfuð. Einnig var bardag­ inn háður í veltivigt – tveimur þyngdarflokkum fyrir ofan fjaðurvigtina sem Conor hafði barist í fram að þessu. Úr varð að Conor mætti æstur til leiks og átti góða fyrsti lotu – en strax varð augljóst að hann var að reyna að rota Nate í einu höggi og sem fyrst. Það er mjög orkufrekur bardagastíll og strax í annarri lotu var hann augljóslega dauðþreyttur og á sama tíma fór Nate að lesa Conor vel, náði svo einum „gúmoren“ á hökuna á Íranum og hengdi hann svo eftir að vank­ aður Conor reyndi illa framkvæmda fellu. En þetta tap stöðvaði ekki Conor­lestina, hægði ekki einu sinni á henni, og þeir fengu að kljást aftur, enda skilaði fyrri bardaginn risa upphæðum í kassann hjá UFC. Úr varð að önnur rimma þeirra sem varð einn stærsti bardagi allra tíma og þar sigraði Conor eftir fimm lotur í æsispennandi bardaga. Nú erum við komin að bardaganum í kvöld – Conor McGregor í krafti sjarmans, útgeislunarinnar og auðvitað hæfileikans að hala inn peninga fyrir UFC­samtökin, en það er það sem þetta snýst um á endanum, fékk sénsinn á létt­ vigtarbeltinu. Hann á möguleika á að halda tveimur beltum á sama tíma en það hefur aldrei verið gert áður. BJ Penn, fyrr­ verandi léttvigtarmeistari, reyndi að ná þessu sama takmarki árið 2009 en tapaði mjög illilega fyrir GSP, þáverandi veltivigtar­ meistara. Conor er löngu búinn að skrá sig inn en hann gæti orðið að goðsögn í kvöld og þaggað niður í öllum efasemdaröddunum. Gælunafn: The Notorious aldur: 28 ára 14.07.88 Hæð: 177 cm fæddist í: Dublin, Írlandi siGrar: 20 rotHöGG: 17 uppGjafartak: 1 dómaraúrskurður: 2 Stefán Þór Hjartarson stefanthor@frettabladid.is 1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r38 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð leikvangurinn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.